Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Blaðsíða 108

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Blaðsíða 108
ekki til greina að svona setning varpi ljósi á nokkum hlut vegna þess að hún er helber upp- spuni. Höfundur veit ekki hætishót um þetta og lesandi getur ekki treyst orðum hans. I tólftu neðanmálsgrein við fyrsta kafla bók- arinnar nefnir Þórunn að lýsing á samskiptum Snorra og Steinunnar ömmu hans sé tilbún- ingur. Gott og vel, en hvers vegna? Ekki orð um það. Líklega á tilbúningurinn að vekja með lesanda skynjun á lífi Snorra, en ímyndunar- aflið fer út í öfgar, ekki ólíkt grautnum sem lærisveinn galdramannsins réði ekki við: „Snorri traðjarkar fyrir neðan bæinn öðm hverju annað kvöldið í röð, á að fylgjast með því hvort skip komi yfír fjörðinn. Vön er á Bessastaðamönnum. Hann er riðvaxinn og spígsporar á höndunum til að drepa tímann, þrjóskast við þótt blóðið streymi niður í höfuðið og vöðvamir æpi á vægð. Fjörðurinn hangir annarlega á hvolfi og himinninn endalaus fyrir neðan. Himnar og helvíti hafa haft endaskipti. Þá sér hann milli handanna bátinn skríða í áttina að Höfn.“ (35) Jafn innihaldslausar eru flestar náttúmlýsingar bókarinnar. Þær gegna gjaman því hlutverki að opna fyrir nýju atriði eða tengja atriði, tii dæmis í byrjun kyndugs kafla um skipasmíðar: „Sumri hallar. Kaldir ljósgeislar skera loftið nær jörðu en daginn áður. Smávaxin grösin hafa fyllt sig sól, vatni, lofti og mold, þau em þunguð af fræjum eins og spendýr komin að burði. Kraftur sumarsins safnast í rætur og stofna. Þegar grösin geta ei lengur hrært sig er haustið komið. Vatnið frýs.“ (105) í sagnfræði er náttúrulýsinga ekki þörf nema þær segi eitt- hvað um efnið. Dæmi um það er lýsing Þór- unnar á ferð sóknarfólks á Homströndum til kirkju (138-40). Þar hefur landslagið merk- ingu, sem það hefur ekki ef það er notað í retórískum tilgangi, til að keyra frásögnina áfram eða skreyta hana. Ofnotkun veldur klif- unum: „Birtan sem ljómar um víðan flóann og fjallahringinn speglast í rökum augum þeirra og seytlar inn í brjóstið." (40) „Snarbrött fjöll speglast í augum manna í skipi á Isafjarðar- djúpi.“ (131) „Hafflöturinn, firðimir og fjöllin speglast í augum þeirra“ (182). Hugarfarssaga? Þórunn hefur hug á að sameina okkur núlifandi Islendinga fortíðinni: „Við eigum töluvert sam- eiginlegt með horfnum kynslóðum ... í hverju orði sem við hugsum heyrist ómur feðra og mæðra. Sagan segir hvemig þau nýttu landið, skynjuðu það, sættust við það og létu það móta sig. Við festum hér dýpra yndi ef við þekkjum hugsanir sem þau skildu eftir sig. Getum spáð í hvemig þau tengdust þúfum, himni og sól. Sjá- um þau á hvaða öld sem er og eigum með þeim sálufélag.“ (12) Þess vegna reynir hún að sýna og benda, lýsa og túlka, en þykir ekki nóg að gert, því hún vill fyrir alla muni „nálgast hugar- heim“ (81) þess fólks sem þá var uppi. Henni þykir meðal annars slæmt að vita ekki „hvað Snorri hugsaði um slæðing þann sem Halldór bóndi flýði undan“ (223). Undanfarin ár hefur þetta einmitt verið ágengt vandamál þess hóps sagnfræðinga sem kennir sig við hugarfars- sögu, en í stað þess að takast af alvöru á við spuminguna um möguleika á sagnfræðilegri vitneskju um hugarheim manna á 18. öld grípur Þórunn til sálfræðilegrar innlifunar. Bamið Snorri „finnur til öryggis" (26) og „þorir sig hvergi að hræra" (27). Unglingurinn Snorri og bróðir hans fundu til sælukenndar í Leirárlaug: „Laugin er ljúfur unaðspottur — þar nær jörðin ekki að toga í mann með offorsi og þunga. Sælukenndin nær dýpra og dýpra inn í vitund- ina. Það slaknar á öllum vöðvum undir undir- fataullarhjúpnum. Þeir fljóta á bakinu og skýin speglast í augunum. Langi þá til að synda em þeir komnir áleiðis." (47) Fyrr má nú vera, en Snorri var næmur, og lestur á lýsingu á mann- ætum í Brasilíu vakti með honum „hroll“ (302). Ekki var Snorri heldur einn um slíkt og meira að segja spáir Þórunn í hugrenningar dýra: „Sauður gægist yfir hól, ekki sæll og jórtrandi heldur með þjáningasvip." (236) Innlifun í einstakar sálir kemur í veg fyrir að 106 TMM 1990:3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.