Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Blaðsíða 36

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Blaðsíða 36
Hoffmann (1776-1822), með öllu fram- andi. Á daginn var hann prússneskur emb- ættismaður og samviskusemin uppmáluð. Á kvöldin skrifaði hann aftur á móti dular- full ævintýri og hryllingssögur, og fyrir kom að nágrannamir vöknuðu við hróp hans á nóttunni, þegar hann var gripinn skelfingu andspænis sínum eigin uppvakn- ingum. Stærsta tvífarasaga Hoffmanns er skáld- sagan Elixírar andskotans (Die Elixiere des Teufels, 1815-16). Þar segir frá hryllilegri ævi Medardusar munks, sem ofsóttur er af flestum tegundum tvífara. Hann er fórnar- lamb útlitslíkinda, tvíburaruglings, innri klofnings þar sem annar persónuleikinn veit ekki hvað hinn gerir, og ættarfylgju eða bölvunar sem lögð hefur verið á syndugan forföður hans. Bókin er um margt sérstæð á höfundarferli Hoffmanns, ekki eins írón- ísk og bölsýnni en flest annað sem hann skrifaði. Hann var maður frjálslyndur, sem var óvenjulegt um þýska rómantíkera, en í þessu verki sækir kaþólskur hugarheimur sterkt á hann. Medardus er að leita að sjálf- um sér, mistúlkar guðlegar bendingar í þágu holdlegra fýsna og þykist heilagur þegar hann er bara að fullnægja gimd sinni. En enginn má sköpum renna, og niðurstaða Hoffmanns í bókinni er svartsýn örlaga- hyggja — kannski má einmitt túlka hana vel með ættarfylgju. Elixírar andskotans er dæmi um tvífara- sögu sem öðm fremur tjáir leitina að sjálfs- veru. Medardus speglast í tvíförum, vegna þess að hann veit ekki sjálfur hvem mann hann hefur að geyma. Um leið slær hún þann streng sem svo margar tvífarasögur 19. aldar leika á: streng brjálseminnar. Of- skynjanir, hugarórar, hyldýpi örvæntingar, kvalafullur efi — allt þetta sækir á þann sem í þessum sögum mætir tvífara sínum. Ef sálfræðin og sjálfspælingar gáfu tvífar- anum nýja merkingu, er það ekki síst merk- ing brjálseminnar. Enda er brjálsemin hinn sanni tvífari sálfræðinnar; líktog illa máli farinn og ruglingslegur, en hatursfullur tví- burabróðir ræðins og sjálfumglaðs fræði- 19 manns. Persónum tvífarasagnanna mistekst að vera heilsteyptar. Sumir höfunda gripu til gamallar myndar í því sambandi. í sögunni um Peter Schlemihl (1814) eftir Adelbert Chamisso selur aðalpersónan skuggann sinn, með öllu lakari árangri en Sæmundur fróði forðum, og ekki fer lærði maðurinn í ævintýri H.C. Andersens vel út úr viðskiln- aðinum við sinn skugga. Báðir missa hluta af sjálfi sínu með skugganum. Annað afbrigði af þessu er þegar aðal- persónur gæða dauða hluti lífi, sem þeir geta auðvitað ekki sótt annað en til sjálfs sín, gera hlutina með vissum hætti að tví- fara sínum. Þannig fer um stúdentinn Nath- anael í ævintýri Hoffmanns, „Sandmann- inum“ (1815 — þessi smásaga varð fyrir- mynd ballettsins Coppelíu). Veikgeðja pilt- ur verður yfir sig ástfanginn af hugvitsam- lega gerðri dúkku. Hann heillast ekki síst af því hvað Ólimpía, en svo var fígúruverkið nefnt, var góður hlustandi. Hér er tvífarinn klárlega birtingarmynd sjúklegrar sjálfsást- ar. Þjóðsaga sem var alþekkt meðal Gyð- inga og minnir á Pygmalion-sögnina, tré- manninn í Ragnars sögu loðbrókar eða bara Gosa, um rabbíann sem skapaði manngerv- ing úr leir og gæddi hann lífi með galdra- stöfum, er lögð til grundvallar skáldsögu Gustav Meyrinks, Der Golem (1915), sem er kannski síðasta sagan sem geymir svo- lítið af „saklausum“ hrolli tvffarasagna 19. aldar. Listamaður í leit að eilífu sjálfi gæðir 34 TMM 1990:3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.