Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Blaðsíða 48

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Blaðsíða 48
Skólameistarar hafa flestir hverjir alveg auðþekkjanlegt fas, ákveðinn sköruleika sem virðist tilheyra starfmu, þó allur gangur sé reyndar á því hvort kemur á undan og kallar á hitt, fasið eða starfið. Hjá þeim sumum getur þessi sköruleiki auðvitað verið innantómur og uppstilltur, menn tileinka sér þennan sérstaka myndugleika í fasi til þess eins að geta sett sig á háan hest gagnvart nemendum og kennurum. En það þurfti ekki að hlusta lengi á þennan skólameistara til að átta sig á því að svo var ekki hjá honum. Honum mæltist bæði skörulega og vel, en um leið skynsamlega og mannlega. Stundum sló hann á létta strengi, en varð svo mjög alvarlegur beint á eftir til að undirstrika áhersluatriði. Hann kunni að nota þagnir og beitti blæbrigðum raddarinnar af sérþekkingu. Og það var strax auðfundið af viðbrögðum nemendanna að hér var réttur maður í réttu starfi. Ég leit öðru hverju út eftir fremstu röðinni og gjóaði um leið augunum skáhallt aftur í salinn. Það var auðséð, að unglingamir hlustuðu með athygli og aðdáun og dmkku í sig hvert orð sem hann sagði. Hvergi var fyrirlitningar- glott að sjá, hvergi fliss og óróa, hvergi leiða eða geispa. Hvergi þetta venjulega „hvað þykist hann vita um það helvítis kallinn“. Skólameistarinn var greinilega einn af þeim hamingjusömu mönnum í kennarastétt, sem njóta þess að umgangast unglinga, geta gert það eðlilega og á jafnréttisgrundvelli, en þó um leið haldið fullri reisn og beitt þegar við á öllu því valdi og þeim þunga sem íylgir aldri og reynslu. Ég hlustaði með athygli á mál meistara, bæði af því að orð hans vöktu áhuga minn í sjálfu sér, og eins vildi ég reyna að taka vel eftir, til að vera betur búinn undir umræðumar á eftir. Það virkar alltaf vel að geta vitnað beint í orð viðstaddra manna. En brátt fór hún að trufla mig æ meir þessi hugsun um að hann minnti mig á einhvem, en gallinn var bara sá að ég gat alls ekki komið því fyrir mig hver það væri. Fyrst hélt ég að það væri ef til vill einhver sem ég hefði séð í sjónvarpi eða bíómynd, en sannfærðist brátt um, að það hlyti að vera einhver sem ég kannaðist við. Og ekki nóg með það, mér varð smám saman ljóst að það var beinlínis svo að ég nauðaþekkti þennan mann. Og áður en ég vissi af var ég alveg hættur að heyra hvað hann sagði og farinn í huganum að máta hann kerfisbundið við alla þá fjölbreyttu karaktera sem orðið hafa á vegi mínum bæði fyrr og síðar. Og þar er svo sannarlega um auðugan garð að gresja, en ekki að sama skapi snyrtilegan og skipulegan, eftir allt mitt hark og slark um ævina, og allt á kafi í illgresi. Ég var alveg að því kominn að gefast upp í þessari leit og ætlaði að fara að einbeita mér að ræðunni á ný þegar skólameistari gerði allt í einu handarhreyfingu sem varð til þess að því laust eins og eldingu niður í huga minn hver hann væri. Og það var svo sannarlega óvæntur kandidat sem þar var mættur til leiks, en reyndist þó fljótlega fara með sigur af hólmi. Skyndilega bar meistari höndina upp að efrivörinni, bara eitt 46 TMM 1990:3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.