Morgunblaðið - 25.04.2015, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
N 29
2015
Listahátíð
í Reykjavík
Dans, jazz & ópera
Shantala Shivalingappa
@ Borgarleikhúsið — 2. júní
Jan Lundgren Trio — Sænskur jazz
@ Gamla Bió — 4. júní
MagnusMaria
@ Þjóðleikhúsið — 3. júní
Stofnaðilar
Máttarstólpi Bakhjarlar
listahatid.is
KFUM og KFUK starfrækja sumar-
búðir í Kaldárseli sem er við Kald-
árselsveg í Hafnarfirði, en á
morgun, sunnudag, verður þar
mikil vorhátíð. Húsið verður opið
milli kl. 15 og 17 og allir eru vel-
komnir.
Margt skemmtilegt verður í boði,
hoppkastali, andlitsmálning, pyls-
um og sykurpúðum skellt á grillið,
tekið forskot á sæluna og boðið
upp á afmælisköku í tilefni af 90
ára afmæli Kaldársels sem verður
haldið hátíðlegt í sumar. Ef veður
leyfir verður farið í hellaferð.
Ef veðrið verður eitthvað að
stríða mun það ekki hafa önnur
áhrif en þau að hátíðin verður færð
inn eins og oft þarf að gera hér á
landi og hoppkastalinn verður blás-
in upp í íþróttahúsinu.
Allir eru hjartanlega velkomnir á
þessa ókeypis fjölskylduskemmtun. Gaman Þessir krakkar hoppuðu mikið í Kaldárseli í fyrrasumar.
Ókeypis fjölskylduskemmtun í Kaldárseli
Gleði Hún er sannarlega við völd gleðin hjá krökkunum sem dvelja í Kaldárseli og alltaf nóg um að vera.
Heimilislegir sunnudagar eru fastur
liður á Kex Hosteli alla sunnudaga en
þá eru látlausir viðburðir fyrir fjöl-
skyldufólk á öllum aldri. Á morgun,
sunnudag, mun Maria Dalberg jóga-
kennari stýra jóga fyrir börn,
mömmur, pabba, afa og ömmur.
Kennt verður í tveimur hollum og er
fyrri tíminn kl. 13 en seinni tíminn kl.
13:30. Gott væri ef fólk tæki með sér
jógadýnur. Ókeypis og allir velkomnir.
Annað kvöld ætlar dúettinn Hugar,
þeir Bergur Þórisson og Pétur Jóns-
son, að halda tónleika í Gym & Tonic-
salnum á Kex Hosteli. Tónleikarnir
verða einskonar útgáfutónleikar
þeirra fyrstu plötu sem kom út sum-
arið 2014 en þó verða leikin ný lög í
bland við efni plötunnar. Öllu verður til
tjaldað og vel valdir hljóðfæraleikarar
ætla að spila með hljómsveitinni á
tónleikunum sem hefjast kl. 20:30 og
er aðgangur ókeypis.
Heimilislegur sunnudagur á Kexinu og Hugar að kveldi
Hugar Spila annað kvöld.
Krakkajóga og tónleikar
Dauðinn og allt sem að honumlýtur er ekkert tabú í hugahinnar rúmlega þrítugu Ca-
itlin Doughty frá Havaí. Þvert á
móti er henni dauðinn hugleikinn og
raunar svo mikið áhugamál að jaðr-
ar við þráhyggju. Ekkert skrýtið
kannski að dauðinn sé lifibrauð
hennar og hafi verið í hartnær ára-
tug.
Doughty hefur getið sér þó
nokkra frægð fyrir bókina Reyk-
urinn fer í augun og aðrar lexíur frá
líkbrennslustofunni (Smoke Gets in
Your Eyes & Other Lessons from
the Crematory) sem kom út í haust
og náði fljótlega upp í 14. sæti hjá
The New York Times og 10. hjá
The Los Angeles Times á lista yfir
innbundnar fræðibækur.
Núna er Doughty í kynningarferð
um Evrópu með bókina sína og
jafnframt hálfgerðri herferð til að
breyta hugarfari fólks og afstöðu til
dauðans. Hún segist með bókinni
vilja svipta leyndarhulunni og fá
fólk til að tala opinskátt um dauð-
ann og horfast í augu við dauðleika
sinn. Þótt sjálf sé hún útfararstjóri
hvetur hún aðstandendur til að
sniðganga útfararstjóra og hlúa
sjálft að og búa látna ástvini til
greftrunar.
Afturhvarf til fortíðar
Henni finnst ríkjandi afstaða til
dauðans vera óheilbrigð og kallar
hana „frá augunum, úr huganum“
enda vilji fólk fyrst og fremst koma
líki aðstandanda síns sem fyrst í
burtu. Doughty hugnast betur siðir
eins og tíðkuðust áður en útfar-
arstofurnar ruddu sér til rúms á
þriðja tug liðinnar aldar. Þá bjuggu
fjölskyldurnar í sameiningu um lík-
in heima í stofu, grófu gröfina eigin
höndum og fjöldi manns mætti við
líkbrennsluna þar sem þeir ræddu
um dauðann frá ýmsum hliðum.
Fljótlega eftir meistaranám í
miðaldasögu með áherslu á dauða
og nornaveiðar frá Chicago-
háskólanum fluttist Doughty til Los
Angeles og réð sig til starfa hjá lík-
brennslustofu. Þótt hún væri alls-
endis reynslulaus lét atvinnuveit-
andinn hana ganga í öll störf. Hún
ók hvítum, gluggalausum sendibíl
og sótti lík á heimili og spítala, hátt
í ellefu lík í hverri ferð – og mátti
vitaskuld ekki til þess hugsa að
lenda í árekstri. Hennar starf var
líka að snyrta líkin til að aðstand-
endur gætu barið þau augum í
hinsta sinn, brenna og skila svo ösk-
unni til fjölskyldunnar.
Caitlin Doughty var alsæl. Svo
sæl reyndar að hún ákvað að hefja
nám til að fá réttindi sem útfarar-
stjóri. Þá fyrst kveðst hún hafa átt-
að sig á hversu aðstandendum er
haldið frá að taka þátt í dánarferl-
inu. Hugmyndir Doughty vekja að
vonum ekki mikla hrifningu útfar-
arstofa þar vestra. Ef fólk vill ekki
láta brenna sig, leggur hún til að
jarðarförin sé haldin heima. „Næst-
um öllum sem haldið hafa jarð-
arfarir heima og sjálfir snyrt líkið
finnst reynslan bæði jákvæð og gef-
andi. Ef þeir hafa raunverulega
elskað manneskjuna, líður þeim
mjög vel eftir að hafa hlúð að henni
með þessum hætti,“ segir hún.
„Dauðaafneitunarskápurinn“
Árið 2011 hafði hún forgöngu um
stofnun Reglu hins góða dauða, The
Order of the Good Death, fyrir sér-
fræðinga í útfararþjónustu og
fræðimenn sem áhuga hafa á að
skoða dauðann á nýjan hátt. Einnig
hefur hún sett nokkur myndbönd á
YouTube sem hún kallar Spyrðu út-
fararstjóra, Ask A Mortician, þar
sem hún fjallar um dauðann frá
mörgum hliðum. Hún segir nauð-
synlegt að fólk komi út úr „dauðaaf-
neitunarskápnum“.
Í vor hyggst Doughty opna eigin
útfararstofu í Los Angeles, fjöl-
skylduvæna útfararstofu.
Reykurinn fer í augun og aðrar lexíur úr líkbrennslustofunni
Dauðinn er ekkert tabú
Útfararstjórinn Caitlin Doughty les úr bók sinni í Seattle árið 2014.
Næstum öllum sem
haldið hafa jarð-
arfarir heima og
sjálfir snyrt líkið
finnst reynslan bæði
jákvæð og gefandi.