Morgunblaðið - 25.04.2015, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Ársskýrslan
er opin öllum
Kynntu þér starfsemi og
afkomu Landsvirkjunar á
arsskyrsla2014.landsvirkjun.is
Opinn ársfundur Landsvirkjunar
verður 5. maí í Hörpu.
Allir velkomnir.
Í ár eru 50 ár frá stofnun Lands-
virkjunar. Búrfellsstöð var fyrsta
stórframkvæmd fyrirtækisins.
Ítarleg umfjöllun um aukna eftirspurn eftir
íslenskri raforku, fjölbreytta virkjunarkosti,
umhverfisrannsóknir og trausta fjárhagsstöðu
fyrirtækis í eigu allra landsmanna.
Nemendur sem hefja nám í fram-
haldsskóla nú í haust munu ljúka
stúdentsprófi á þremur árum í stað
fjögurra. Samtímis er aðalnámskrá
framhaldsskóla að fullu innleidd.
Þessi breyting felur í sér að væntan-
lega útskrifast helmingi fleiri nem-
endur á árinu 2018 þar sem tveir ár-
gangar útskrifast.
Samráð við ráðuneyti
Þórður Kristinsson, sviðsstjóri
kennslusviðs hjá Háskóla Íslands,
segir skólann ekki hafa gert neinar
sérstakar ráðstafanir til að bregðast
við þessum tvöfalda árgangi stúd-
enta sem mun útskrifast 2018.
„Í raun eru ekki hafnar neinar
ráðstafanir að öðru leyti en að það er
búið að vera samráð við ráðuneytið
og við fundum reglulega með for-
ystumönnum framhaldsskólanna.
Við reynum að átta okkur í samein-
ingu á því hvernig þetta gerist og
hvaða áhrif þetta muni hafa á inntak
námsins og fjölda nemenda. Rætt er
um innleiðingu á þessari nýju nám-
skrá og hvort hún feli í sér nægan
undirbúning fyrir háskólanám,“ seg-
ir Þórður.
Námið efnislega hið sama
Þórður segir engar sérstakar
breytingar vera í skoðun varðandi
inntak háskólanámsins. Fjöldatak-
mörkun innan deilda skólans hafi
ekki verið rædd að svo stöddu og
kveðst Þórður ekki gera ráð fyrir
breytingum hvað þær varðar. Í dag
eru fjórar deildir háskólans með inn-
tökupróf. Eins og staðan er í dag
virðast því helmingi fleiri nemendur
þurfa að keppa um jafnmörg pláss
árið 2018.
Þórður segir þó nauðsynlegt að
skoða stöðuna betur þegar nákvæm-
ar tölur um nemendafjölda sem út-
skrifist á þessu tímamarki komi í
ljós. „Reynt er að beita ekki fjölda-
takmörkun bara út af þessu. Fjölda-
takmörkun byggist á allt öðrum for-
sendum. Hún byggist á því hvort við
getum og höfum aðstæður til að
sinna öllum nemendunum,“ segir
Þórður og bendir á að nemendur
þurfi til að mynda þjálfun inni á spít-
ölum og heilsugæslustöðvum og
fjöldi nemenda verði því að taka mið
af aðstöðu og öðrum ytri þáttum.
Hann bendir þó á að það sé ákveðin
viðleitni hjá deildum með fjölda-
takmörkun að taka sífellt fleiri í há-
skólanám og nefnir þar sérstaklega
að hjúkrunarfræði- og læknisfræði-
deild hafi verið að hleypa fleiri nem-
endum í gegnum inntökupróf. Þórð-
ur getur ekki svarað því hvort
nemendafjöldi í deildum sem ekki
hafa inntökupróf muni breytast. All-
ar deildir hafi áhuga á að taka inn
sem flesta.
Hinir háskólarnir eru meðvitaðir
um stöðuna en engar ráðstafanir eða
breytingar hafa verið ákveðnar hjá
þeim. brynjadogg@mbl.is
Fundað vegna styttra
náms til stúdentsprófs
Trúlega sækja tvöfalt fleiri um háskólanám árið 2018
Morgunblaðið/Eggert
Stytting stúdentsprófs Trúlega sækja tvöfalt fleiri um háskólanám árið
2018. Háskólar hafa ekki gert ráðstafanir en funda um stöðuna.
Hallgrímskirkja er sem stendur í
öðru sæti í kosningu yfir 50 skrýtn-
ustu hús veraldar sem vefsíðan stran-
gebuildings.com heldur úti. Aðeins
hið dularfulla steinhús í Guimaraes í
Portúgal er sagt skrýtnara sam-
kvæmt notendum vefsins.
Hallgrímskirkja er byggð eftir
teikningum Guðjóns Samúelssonar
húsameistara og tók um fjóra áratugi
að klára bygginguna. Hún er hæsta
kirkja Íslands. Engin ástæða er gefin
fyrir því af hverju Hallgrímskirkja er
á listanum en eins og nafn vefsíð-
unnar gefur til kynna þá er umfjöll-
unarefnið fyrir fólk sem hefur áhuga
á sérstæðum og undarlegum arki-
tektúr.
Lítið er vitað um steinhúsið í Guim-
araes annað en að það sé einbýlishús
úr steini. Ekki er vitað hver á það né
hvort það sé notað yfir höfuð. Þá er
byggingarár eða hugmyndin á bak
við það ekki kunn.
Tónlistarhúsið í Porto sem Rem
Koolhaas teiknaði og kláraði árið
2005 er í þriðja sæti en engin önnur
íslensk bygging er á topp 50 listanum.
benedikt@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Skrýtin Hallgrímskirkja þykir í
augum sumra skrýtin bygging.
Hallgrímskirkja meðal
skrýtnustu húsa heims
Aðeins steina-
húsið í Guimaraes
talið skrýtnara
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis-
ráðherra og Robert Douglas Nich-
olson, utanríkisráðherra Kanada,
áttu á fimmtudag fund í Montreal í
aðdraganda ráðherrafundar aðild-
arríkja Norðurskautsráðsins, sem
hófst í dag í Iqaluit í Kanada. Ráð-
herrarnir ræddu tvíhliða samskipti
Íslands og Kanada, m.a. samstarf
ríkjanna í öryggis- og varnar-
málum, fríverslun og flugmálum.
Af alþjóðamálum bar hæst
ástand og horfur í Úkraínu og í
Mið-Austurlöndum. Þá bar þeim
saman um nauðsyn þess að eiga ná-
ið samráð og samstarf í baráttunni
gegn alþjóðlegri hryðjuverkaógn.
Ráðherrarnir lýstu eindregnum
vilja til að efla og víkka samskipti
Íslands og Kanada enn frekar.
Ræddu samskipti Íslands og Kanada