Morgunblaðið - 25.04.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
SVIÐSLJÓS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Það hefur gengið undir ýmsum nöfn-
um undanfarin 141 ár; Tugthúsið,
Steinninn, Nían, Fangahúsið eða ein-
faldlega Hegningarhúsið. Frá árinu
1874 hefur reisulegt hús á Skóla-
vörðustíg 9, hlaðið úr íslensku hraun-
grýti, hýst þúsundir manna og
kvenna sem dæmd hafa verið til refsi-
vistar. Nú hillir undir nýja tíma í sögu
hússins og ýmsar hugmyndir hafa
komið fram um nýtt hlutverk þess.
Þær sem hæst hafa borið tengjast
veitinga- eða hótelrekstri og þá hafa
heyrst hugmyndir um að þar verði
safn. Forstöðumaður fangelsisins ber
hlýjan hug til hússins og segist munu
sakna þess.
Hegningarhúsið er elsta fangelsi
landsins, byggt 1874. Staðið hefur til
um skeið að starfsemi þess yrði flutt
annað, enda hentar húsið ekki til
reksturs nútímafangelsis og hefur
það undanfarin ár fengið tímabundin
starfsleyfi til tveggja ára í senn.
Gangi áætlanir eftir verður fangelsið
á Hólmsheiði tilbúið fljótlega eftir
næstu áramót og starfsemi Hegning-
arhússins og Kópavogsfangelsisins
flytur þangað vorið 2016. Þar verður
pláss fyrir 56 fanga, en nú eru sam-
tals 26 pláss í fangelsunum tveimur.
220-300 fangar á ári
Í Hegningarhúsinu er pláss fyrir
14 fanga í fimm tveggja manna klef-
um og tveimur gæsluvarðhalds- og
einangrunarklefum. Þangað koma
220-300 fangar á ári, fangelsið er svo-
kallað móttökufangelsi sem þýðir að
allflestir karlmenn sem koma til
fangavistar byrja þar, en konur fara
beint í fangelsið í Kópavogi. Þegar í
Hegningarhúsið er komið tekur við
læknisskoðun og mat á því hvar best
sé að viðkomandi afpláni og hann síð-
an fluttur þangað. Þetta mat tekur
mislangan tíma; allt frá nokkrum
dögum og upp í nokkrar vikur. Í ein-
staka tilvikum afplána fangar dóma
sína í Hegningarhúsinu og eru þar í
nokkra mánuði, oftast að eigin ósk.
„Fyrsti fanginn kom inn snemma
árs 1875 og hér hafa verið fangar all-
ar götur síðan,“ segir Guðmundur
Gíslason, forstöðumaður Hegning-
arhússins. „Áður gegndi hús Stjórn-
arráðsins hlutverki fangelsisins, en
hætt var að nota það í þeim tilgangi
1815. Næstu 60 árin voru fangar vist-
aðir í klefum í Austurstræti, reyndar
voru líkamlegar refsingar líka al-
Tugthús á tímamótum
Hegningarhúsið þótti of fínt fyrir fanga Rekið á undanþágum í mörg ár Forstöðumaður hef-
ur áhyggjur af mönnun í nýja fangelsinu á Hólmsheiði Færri „fastagestir“ með nýjum úrræðum
Á bak við fangelsið Lokaður garður er fyrir aftan Hegningarhúsið við
Skólavörðustíg þar sem fangar geta farið út tvisvar á dag, kjósi þeir svo.
Dómstóll Hegningarhúsið hýsti áð-
ur bæði héraðsdóm og hæstarétt.
Þvottapottur Kjallari er undir hluta hússins. Þar var áður tómstundaað-
staða, þar þvoðu fangar áður föt sín og stendur þvottapottur þeirra þar enn.
Í janúar 1955 birtist grein í Lesbók Morg-
unblaðsins undir fyrirsögninni „Fyrsti fang-
inn kom í hegningarhúsið fyrir 80 árum.“ Þar
er sagt frá þeim sem „vígði fangelsið“; fyrsta
fanganum sem hét Guðlaugur Sigurðsson.
Hann hafði áður verið dæmdur fyrir þjófnaði
af ýmsu tagi; m.a. á sálmabók, brennivíni,
sokkum sem héngu á þvottasnúru og smjöri
og hafði ýmist setið inni eða verið hýddur
fyrir þessi brot. Hann lét sér lítt segjast við
þær refsingar og hélt uppteknum hætti við
þjófnaði sem leiddi til enn einnar fangels-
isvistarinnar og varð hann fyrsti fanginn í
Hegningarhúsinu hinn 26. janúar 1875. Í greininni er vitnað í dómsorð
frá árinu 1874 þar sem segir m.a. að Guðlaugur sé líklega stelsjúkur. Fólk
hafi gert sér grein fyrir því, margir hafi vorkennt honum og ekki kært
hann.
Að sögn Guðmundar eru til skrár um alla fanga sem hafa verið í Hegn-
ingarhúsinu. „Í gamla daga voru afbrot skráð á nokkuð annan hátt en nú
og útliti og innræti manna lýst fjálglega. T.d. voru menn sagðir söðul-
nefjaðir, rauðeygðir með boginn fót, drykkfelldir og þjófóttir.“
Hann segir að fyrstu árin hafi ástæða fangelsisvistar manna í Hegn-
ingarhúsinu yfirleitt verið minniháttar brot. „Sauðaþjófnaður var sígild-
ur. Þá var drykkja, slagsmál og almenn leiðindi algeng ástæða. Þetta var
mikið til það sem við köllum ekki stórvægileg brot. En það átti þó ekki
alltaf við. Meðal fyrstu fanganna var kona sem bar út nýfætt barn sitt
hér í Reykjavík 1875 eða ’76,“ segir Guðmundur.
Söðulnefjaðir og drykkfelldir
FYRSTI FANGINN STAL M.A. SÁLMABÓK, SMJÖRI OG SOKKUM
Morgunblaðið/Golli
Forstöðumaðurinn Guðmundur hefur veitt Hegningarhúsinu forstöðu frá
1985. Hann segir að sér þyki vænt um húsið, annað sé ekki hægt. Þar sé góður
andi og þar hafi hann átt góð samskipti við samstarfsfólk jafnt sem fanga.
Upplifðu Frelsi með
Ferðapakkanum
Með Ferðapakka Símans er miklu
ódýrara að nota símann þegar þú ert
í útlöndum. Farðu til Bandaríkjanna
eða Evrópu* og þú borgar alls staðar
sama gjaldið.
Sendu SMS-ið „ferdapakki“ í 1900
og stökktu af stað
Þú greiðir sama gjald í
Bandaríkjunum og Evrópu
siminn.is
Nú er Ferðapakkinn einnig í
boði fyrir Frelsi
*Ferðapakkinn gildir innan EES