Morgunblaðið - 25.04.2015, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Til að byggja upp vöðva og öðlast kraft
Til að veita líkamanum orku
Flytur með sér A- og D-vítamín
Fyrir sterk bein, hvítar tennur og
fallegra bros
Til að líkaminn geti nýtt sér kalkið
Fyrir húðina, augun og sjónina
Fyrir efnaskipti líkamans
Fyrir sterk bein
Fyrir efnaskipti og orkujafnvægi
Fyrir alla frumustarfsemi
Orka 78 hitaeiningar
Prótein 8,8 g
Kolvetni 9,4 g
Fita 0,6 g
Kalk 282 mg
D-vítamín 0,8 μg
A-vítamín 90 μg
B2-vítamín 0,3 mg
Fosfór 196 mg
Joð 22 μg
B12-vítamín 0,84 μg
Miðað er við 2 dl (200 g)
Eitt glas af Fjörmjólk inniheldur
Einstaklega próteinrík og
inniheldur fjölda nauðsynlegra
næringarefna.
Húsavík og Björgu Einarsdóttur, rithöfund í
Reykjavík. Hann segist ekki útiloka að dæm-
in séu fleiri, en honum sé ekki kunnugt um
það.
Kjartan á Húsavík er fæddur 1925. Amma
hans, Rósa Indriðadóttir, fæddist 1814. Son-
ur hennar, faðir Kjartans, Jóhannes Krist-
jánsson, fæddist 1854 og dó 1942. Hann var
því rúmlega sjötugur þegar sonurinn fæddist.
Björg, sem fædd er 1925, á afa, séra Þor-
kel Eyjólfsson, sem fæddist 1814. Sonur hans
og faðir Bjargar, Einar Þorkelsson, fæddist
1867 og dó 1945. Björg rekur sögu föður síns,
afa og fleiri í fjölskyldunni í fróðlegri grein í
nýútkomnu Fréttabréfi Ættfræðingafélags-
ins. Í greininni segir Björg að afi sinn hafi
verið mikill latínumaður. Hann hafi kunnað
utanbókar latínuskáld fornaldar og haft yfir
kveðskap þeirra. Gjarnan hafi hann talað lat-
ínu og í því efni búið að því að sumarið 1842
var hann fylgdarmaður fransks greifa, Ang-
les að nafni, sem ferðaðist um Ísland. „Töl-
uðu þeir saman á latínu þar eð Þorkell hafði
ekki lært frönsku; haft var eftir honum að
flestir prestar, þar sem þeir komu, hafi þá
getað bjargað sér með því að tala latínu,“
skrifar Björg.
Átti afa fæddan 1781
Á milli Friðriks Kristjánssonar og afa
hans, Benjamíns Flóventssonar, eru sem fyrr
segir 207 ár. Þekkt er dæmi um lengra kyn-
slóðabil. María Tryggvadóttir, sem lést vorið
2007, 89 ára gömul, átti afa, merkisklerkinn
séra Gunnar Gunnarsson í Laufási, sem
fæddur var 1781. Á milli þeirra voru því 226
ár þegar María lést. Faðir Maríu var Tryggvi
Gunnarsson, alþingismaður og bankastjóri og
einhver mesti framkvæmdamaður hér á landi
á seinni tímum. Hann hvílir einn Íslendinga í
grafreit í garði Alþingishússins í Reykjavík.
Annan þjóðkunnan mann má nefna í þessu
samhengi, Axel heitinn Thorsteinsson frétta-
mann á Ríkisútvarpinu. Hann var fæddur
1895, sonur þjóðskáldsins Steingríms Thor-
steinssonar. Afi Axels og faðir Steingríms,
Bjarni Thorsteinsson amtmaður, var fæddur
1781 eins og séra Gunnar. Þegar Axel lést
1984 voru því liðin 203 ár frá því að afi hans
fæddist.
„Afi minn var vinur Jóns forseta“
Nokkrir núlifandi Íslendingar eiga afa eða ömmur sem eru fædd fyrir meira en 200 árum Afi
Friðriks Kristjánssonar á Akureyri fæddist í febrúar 1808 Gæti hafa þekkt Jónas Hallgrímsson
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Tvær aldir Afi Friðriks Kristjánssonar á Akureyri fæddist fyrir 207 árum. Hann var sam-
tímamaður Jónasar skálds Hallgrímssonar. Hér er Friðrik með konu sinni, Kolfinnu Gerði Páls-
dóttur. Friðrik er fæddur 1926 en afi hans, Benjamín Flóventsson, var fæddur árið 1808.
Sturla Friðriksson Jón Pétursson Jón Sigurðsson Jónas Hallgrímsson
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Einn núlifandi Íslendingur getur með sanni
sagt: „Hann afi minn var vinur Jóns Sigurðs-
sonar forseta.“ Hljómar ótrúlega þegar haft
er í huga að Jón fæddist fyrir meira en 200
árum og dó 1879. Sá sem um ræðir er Sturla
Friðriksson erfðafræðingur, fæddur 1924, og
því rúmlega níræður. Faðir hans, Friðrik
Jónsson kaupmaður (annar hinna nafnkunnu
’Sturlubræðra’) fæddist 1860, sonur Jóns Pét-
urssonar háyfirdómara sem fæddist 1812 og
var því aðeins einu ári yngri en Jón forseti.
Þeir nafnarnir voru ekki bara samtíðarmenn
heldur góðkunningjar, félagar í Kaupmanna-
höfn um árabil, skrifuðust síðan á eftir að
Jón Pétursson fluttist heim og hafa bréfin
verið gefin út. Þá sátu þeir saman á Alþingi í
nokkur ár. Um Jón Pétursson og Friðrik son
hans og þá ætt alla má fræðast í nýlegum
æviminningum sem Sturla hefur sent frá sér,
Náttúrubarn heitir hún.
„Methafinn“ á Akureyri
Fleiri núlifandi Íslendingar eiga afa eða
ömmur sem fædd eru fyrir 200 árum eða
meira. „Methafinn“ sem er á lífi er raunar
ekki Sturla heldur Friðrik Kristjánsson hús-
gagnasmiður og fyrrverandi húsvörður á
Hrafnagili í Eyjafirði, fæddur 1926. Afi hans,
Benjamín Flóventsson, fæddist í febrúar
1808, fyrir 207 árum. Hann var sam-
tímamaður Jónasar Hallgrímssonar skálds og
búsettur á sömu slóðum fyrir norðan. Vel má
vera að leiðir hans og listaskáldsins góða hafi
einhvern tíma legið saman. Þeir gætu líka
hafa þekkst. Sonur Benjamíns og faðir Frið-
riks, Kristján H. Benjamínsson, fæddist
1866.
Sigurlaug Björnsdóttir, sem fædd er 1919,
á einnig afa sem var fæddur 1808, í apríl það
ár. Það var Eiríkur Jónsson. Sonur hans, fað-
ir Sigurlaugar, var Björn Eiríksson, fæddur
1861.
Afinn talaði latínu
Jónas Ragnarsson, sem heldur úti vefnum
Langlífi á Facebook, hefur safnað upplýs-
ingum um núlifandi Íslendinga sem eiga afa
og ömmur sem fæddust fyrir tveimur öldum.
Hann nefnir til viðbótar við Friðrik, Sig-
urlaugu og Sturlu, Kjartan Jóhannesson á