Morgunblaðið - 25.04.2015, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Fjölbreyttar leiðir
í bílafjármögnun
Lánshlutfall
allt að 80%
Engin
stimpilgjöld
Allt að 7 ára
lánstími
Landsbankinn býður góð kjör, fjölbreyttar leiðir og
allt að 80% fjármögnun á nýjum og notuðum bílum.
Kynntu þér allt um bílalán á landsbankinn.is/bilalan.
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Markaðsaðilar virðast ekki hafa haft
mikinn áhuga á hlutabréfakaupum í
íslensku bönkunum í febrúar 2008 á
sama tíma og eigin viðskipti Kaup-
þings juku mikið við sig í bankanum.
Í þessu kristallast nokkuð málflutn-
ingur saksóknara í kauphliðarhluta
hins stóra markaðsmisnotkunar-
máls Kaupþings, en málið hélt
áfram í gær, á fjórða degi aðalmeð-
ferðar, í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Forstjórinn fylgdist náið með
Í símtali sem saksóknari spilaði
milli Birnis Sæs Björnssonar, fv.
starfsmanns eigin viðskipta Kaup-
þings, og Björns Hjaltested Gunn-
arssonar, fv. starfsmanns Kaup-
þings, segir Björn að það sé enginn
kaupandi á markaðinum. Bætir
hann við að það komi sér á óvart
hversu mikinn fjölda bréfa Birnir
hafi tekið inn á sig þennan mán-
uðinn og áætlar að hann hafi keypt
um 25 milljón hluti í Kaupþingi frá
áramótum. Segir hann að það sé bú-
ið að „dúndra“ á hann gífurlega
miklu magni. Síðar segir Björn að
allir kúnnar á Íslandi séu „dauðir“
og Birnir segist vel skilja það.
Þá kemur einnig fram að Ingólfur
Helgason, forstjóri Kaupþings á Ís-
landi, hafi fylgst náið með öllum við-
skiptum eigin viðskipta bankans í
Kaupþingi sjálfu og hringt reglulega
í almenna starfsmenn deildarinnar
varðandi það að setja inn kauptil-
boð. Þetta er meðal þess sem kom
fram í símtölum og tölvupóstum sem
sýndir voru í dómsal.
Sagði tómlegt á markaðnum
Saksóknari fór yfir fjölda tölvu-
pósta og símtala Birnis við yfirmenn
sína og aðra starfsmenn í Kaup-
þingi. Mikið til eru símtölin og póst-
arnir samskipti við Ingólf og meðal
annars hringdi Ingólfur í hann einn
morguninn og sagði að það væri
tómlegt á markaðinum. Birnir játaði
því og sagðist vera að fara að setja
tilboð inn og Ingólfur ýtti undir það.
Aðspurður hvort Ingólfur hafi oft
fylgst svona vel með segir Birnir að
svo hafi verið.
Í öðru símtali ræddi Ingólfur við
Birni um lækkun sem varð á mark-
aði í Svíþjóð strax um morguninn.
Þeir ræddu gengi bréfanna, sem var
68,75, en Ingólfur ýtti á að hafa til-
boð 69,50. Segist Birnir ætla að
„laga þetta“.
Stutt á milli hagnaðar og taps
Reglulega sendi Birnir póst með
stöðu dagsins á Ingólf og Einar
Pálma Sigmundsson, yfirmann eigin
viðskipta. Var þar oftast horft til
hreyfinga á bréfum Kaupþings og
eignar eigin viðskipta í hlutabréfum
bankans. Aðspurður hvort hann
hefði fengið fyrirmæli um slíkar
sendingar sagði Birnir svo vera.
Spyr saksóknari hann reglulega út í
fyrirmæli Ingólfs og virðist vera að
tengja ákvarðanir hans við það sem
Birnir svo framkvæmir í Kauphöll-
inni.
Saksóknari spyr ítrekað Birni
hvort hann hafi verið ósáttur við
fyrirmæli yfirmanna, en slíkt hafði
komið fram áður í réttarhöldunum.
Birnir svarar því til að öll viðskipti
hafi verið gerð með það að markmiði
að hagnast, þótt skammtímasveiflur
geti verið miklar og stutt á milli
hagnaðar og taps.
Óskaði eftir stöðuyfirliti
Þá hefur tenging þeirra Hreiðars
Más Sigurðssonar og Sigurðar Ein-
arssonar, fv. forstjóra og stjórnar-
formanns Kaupþings, verið heldur
takmörkuð enn sem komið er í mál-
inu. Þeir virðast þó hafa fylgst náið
með öllu sem var að gerast og ósk-
aði Hreiðar meðal annars beint eftir
stöðuyfirliti frá almennum starfs-
manni í eigin viðskiptum bankans.
Samkvæmt gögnum sem sýnd
voru í gær virðist því sem Birnir
hafi sent æðstu stjórnendum bank-
ans, þeim Hreiðari, Sigurði, Ingólfi
og Steingrími Kárasyni, fram-
kvæmdastjóra áhættustýringar,
reglulegt stöðuyfirlit yfir eign eigin
viðskipta í Kaupþingi, breytingar
innan dags og hver kaup dagsins
voru.
Íslenskir kúnnar allir „dauðir“
Hið stóra markaðsmisnotkunarmál Kaupþings hélt áfram í héraðsdómi á fjórða degi aðalmeðferðar
Markaðsaðilar virtust ekki hafa haft mikinn áhuga á hlutabréfakaupum í íslensku bönkunum
Morgunblaðið/Eggert
Héraðsdómur Saksóknari fór yfir tölvupósta og símtöl Birnis við yfirmenn sína og aðra starfsmenn í Kaupþingi.