Morgunblaðið - 25.04.2015, Qupperneq 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Bátamessa hefur verið haldin ár-
lega af bátaflokkum Landsbjargar
við Faxaflóann. Þetta árið verður
hún haldin af HSSK laugardaginn
25. apríl í Kópavogshöfn. Æf-
ingasvæðið verður Nauthólsvík í
austri og Löngusker í vestri.
Æfing hefst með mætingu báta-
flokka kl. 09.00 um morguninn og
lýkur um kl. 13.00.
Alls munu 25 bátar með hátt í 90
manns innanborðs taka þátt, frá 14
sveitum allt frá Snæfellsbæ til Eyr-
arbakka. Auk þess taka þátt bátar
frá Isavia, Landhelgisgæslunni og
lögreglu.
Upphaflega var tilgangurinn að
bátaflokkar kæmu saman til að
kynnast innbyrðis og til að sjá bún-
að hver annars. Síðan taka við æf-
ingar til að sjá hvað betur má fara
og læra af til að vera betur búin
undir útköll, segir í tilkynningu.
Bátabjörgun æfð á
Faxaflóa í dag
Morgunblaðið/RAX
Hellas, félag Grikklandsvina, efnir
til málþings um fræði Aristótelesar
í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu
laugardaginn 25. apríl kl. 14:00.
Á málþinginu verður fjallað um
nokkrar hliðar hins fjölhæfa heim-
spekings. Fyrirlesarar eru þeir
Kristján Árnason bókmenntafræð-
ingur sem flytur inngang, Svavar
Hrafn Svavarsson prófessor gerir
siðfræði hans skil og Þór Jakobsson
veðurfræðingur fjallar um nátt-
úruviðhorf Aristótelesar. Málþingið
er öllum opið.
Hellas heldur mál-
þing um Aristóteles
Miðbær Reykjavíkur iðaði af lífi þegar Árni Sæberg, ljósmynd-
ari Morgunblaðsins, átti þar leið um í gær. Stúdentsefni voru að
dimmitera og rasa út áður en próflesturinn byrjar, ferðamenn
spókuðu sig í björtu en köldu veðri og starfsmenn borgarinnar
voru í óðaönn að fegra umhverfið. Ekki veitir af eftir storma-
saman vetur.
Þó að sumarið sé komið samkvæmt almanakinu benda veður-
spár til þess að kalt verði í veðri næstu daga, einkum fyrir norð-
an og austan, líkt og kemur fram hér framar í blaðinu í samtali
við Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing. En Íslendingar eru öllu
vanir þegar veðrið er annars vegar og hermt er að erlendir
ferðamenn komi einmitt til Íslands til að kæla sig niður og kynn-
ast mannlífinu. Þeir fengu einmitt gott tækifæri til þess í gær
þegar miðbær Reykjavíkur skartaði sínu fegursta.
Fjörugt mannlíf í miðbænum
Sprellað Stúdentsefni Borgarholtsskóla bregða á leik
við Austurvöll með hjálpsömum vegfaranda.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dimmisjón Þau voru í skrautlegum búningum, stúdentsefni Borgarholtsskóla, á Austurvelli í gær. Urðu þau að leysa ýmsar þrautir, m.a.
reisa mannlegan píramída. Þá er vissara að neðsta röðin stilli sér upp styrkum fótum og höndum. Þetta gekk misvel.
Laufhreinsun Vinsælt er að setjast í grasið á Austur-
velli og vissara að hreinsa lauf og annað lauslegt.