Morgunblaðið - 25.04.2015, Qupperneq 40
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
sími 571 5464
Stærðir 38-54
Smart föt fyrir
smart konur
Gleðilegt
sumar!
Rauðarárstíg 33, 105 Reykjavík
Fjarðargötu 19, 220 Hafnarfirði,
sími 511-7000, www.innrammarinn.is
Fjarðargötu 19, Hafnarfirði
Velkomin á nýtt
rammaverkstæði
og verslun
Úrval tilbúinna
ramma og
myndaalbúma
félaginu á Djúpavogi um þessar
mundir en sveitarfélaginu hefur
tekist með samstilltu átaki með
íbúum að ná viðspyrnu sem hefur
aukið bjartsýni meðal íbúa á fram-
tíð svæðisins. Í ljósi þessa hefur
ungt fjölskyldufólk verið að fjár-
festa í umtalsverðum mæli í íbúðar-
húsnæði á svæðinu og ganga nú
fasteignir kaupum og sölum sem
aldrei fyrr.Er nú svo komið að um-
talsverður skortur er á íbúðar-
húsnæði.
Nýtt fiskvinnslufyrirtæki,
Búlandstindur ehf., tók til starfa
um áramót og hafa frá þeim tíma
verið unnin um 500 tonn af bolfiski
af bátum frá Djúpavogi og Horna-
firði.Þá hafa verið unnin um 200
tonn af regnbogasilungi frá Fisk-
eldi Austfjarða sem starfrækir fisk-
eldi í Berufirði. Hjá Búlandstindi
eru nú fastráðnir 33 starfsmenn.
Um þessar mundir er unnið
að metnaðarfullum húsvernd-
arverkefnum á Djúpavogi. Fremst
má þar nefna hið sögufræga Fak-
torshús sem er ætlað ríkulegt hlut-
verk í nánustu framtíð. Þá er einn-
ig unnið að endurgerð gömlu
Djúpavogskirkju og eru bæði þessi
verkefni á höndum sveitarfélagsins.
Þá vinnur húsasafn Þjóðminja-
safnsins að áframhaldandi upp-
byggingu Weyvadtshúss á Teig-
arhorni. Fyrir skemmstu gaf
sveitarfélagið út yfirgripsmikla og
vandaða Húsakönnun þar sem eldri
og merkari húsum í sveitarfélaginu
eru gerð góð skil.
Vakna dag hvern við marg-
breytilegan fuglasöng
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Djúpivogur Unnið að metnaðarfullum húsverndarverkefnum í bænum.
ÚR BÆJARLÍFINU
Andrés Skúlason
Djúpavogi
Sumarið er á næsta leiti og hefur
sólin leikið við bæjarbúa að und-
anförnu. Farfuglarnir sem gjarnan
hafa fyrst viðkomu á Suðaust-
urlandi streyma um þessar mundir
í stórum hópum inn yfir landið og
dag hvern vakna íbúar við marg-
breytilegan fuglasöng.
Þá eru fleiri söngfuglar á ferð-
inni á Djúpavogi þessa dagana en
Hammondhátiðin stendur nú yfir,
en þessi árlega 4 daga tónlist-
arveisla er nú haldin í tíunda skipt-
ið. Á þessari 10 ára afmælishátíð
sem hefur vaxið ár frá ári var upp-
selt á alla tónlistarviðburðina.
Margar af vinsælustu hljómsveitum
landsins troða upp á dagskránni að
venju. Þá eru margir aðrir áhuga-
verðir menningarviðburðir haldnir
á Djúpavogi í tengslum við Ham-
mondhátiðina.
Fulltrúar sveitarfélagsins
Djúpavogshrepps hafa lagt mikið
undir á síðustu vikum mánuðum að
skapa grundvöll fyrir nýjum og
fjölbreyttum störfum á svæðinu og
hefur áunnist nokkuð í þeim efn-
um.M.a. hefur starfstöð og stöðu-
gildi Minjavarðar Austurlands ver-
ið staðsett á Djúpavogi, sömuleiðis
verkefnisstjóri af hálfu Aust-
urbrúar og þá verður starfsmaður
Nýsköpunarmiðstöðvar með starfs-
stöð á Djúpavogi innan skamms
tíma. Allt er þetta til þess fallið að
styrkja stöðu samfélagsins á
Djúpavogi en starfsstöðvar þessar
munu einnig vinna út fyrir svæðið.
Umtalsverð gróska er í sam-
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Steinþór Einarsson, skrifstofustjóri
rekstrar og þjónustu hjá ÍTR, segir
að til standi að skipta um gervigras á
völlum Fylkis, Fram og KR sem
komið er á tíma. Hins vegar sé það
stjórnmálamannanna að ákveða for-
gangsröðun í þeim efnum og því ekki
hægt að segja til um hvenær farið
verður í slíkar framkvæmdir.
Eins og fram kom í frétt Morgun-
blaðsins á mánudag eru dæmi um
óvenjuháa meiðslatíðni hjá börnum
sem iðka knattspyrnu hjá Fylki.
Samkvæmt athugun félagsins hafa
allt að 50-60% þeirra sem æfa hjá fé-
laginu á aldrinum 13-19 ára átt við
meiðsli að stríða. Telja forráðamenn
félagsins að líkur séu á því að ónógt
viðhald, auk þess sem grasið, sem
lagt var árið 2007, sé komið á tíma,
geti verið stór orsakaþáttur í hárri
meiðslatíðni. Hefur félagið fengið
sjúkraþjálfurnarstöð til liðs við sig
til þess að kanna málið betur.
Endingartími gervigrass er álitinn
sjö til tíu ár eftir notkun.
Ekki lagt á þessu ári
Steinþór segir ljóst að gervigrasið
á Fylkisvelli verði ekki endurlagt á
þessu ári þar sem slíkt er ekki á fjár-
hagsáætlun borgarinnar.
Borgin sinnir viðhaldi á átta gervi-
grasvöllum í Reykjavík. Samkvæmt
upplýsingum úr borgarkerfinu kost-
ar viðhald, rafmagn og hiti á hverjum
gervigrasvelli um sjö milljónir króna
á ári. Viðhaldið er tvíþætt og felst
annars vegar í því að bursta vellina
átján sinnum á ári og bæta við
gúmmíi á álagspunkta við vítapunkta
og horn. Hins vegar er farið tvisvar á
ári yfir völlinn með sérstakri vél sem
losar um innfyllingu og viðheldur
mýkt hans.
Steinþór segir að erfitt sé fyrir
borgina að bregðast við fregnum af
meiðslum barna á Fylkisvelli þar sem
ekki sé ljóst hvort gervigrasinu er
um að kenna auk þess sem það sé eft-
irlitsaðilans að koma á framfæri
athugasemdum ef viðhaldi þyki ekki
nægilega vel sinnt. Steinþór ítrekar
þó að það sé á áætlun að skipta um
gervigras á Fylkisvelli.
Ekki gott gúmmí
Verkís sér um eftirlit en borgin
fær einkaaðila til að sinna viðhaldi.
Að sögn Steinþórs hefur ekki verið
gerð athugasemd við viðhald á vell-
inum hingað til. Það gúmmí sem lagt
hafi verið á velli fyrir um tíu árum sé
ekki gott ogð menn hafi verið
óánægðir með það. Síðan hafi verið
skipt um gúmmítegund. „Það gervi-
gras sem framleitt er í dag er mun
betra en það sem var framleitt fyrir
tíu árum.“
Ekki á fjárhagsáætlun á þessu ári
Morgunblaðið/Eggert
Fylkisvöllur Til stendur að leggja nýtt undirlag á gervigrasvelli hjá Fylki,
Fram og KR. Stjórnmálamanna er hins vegar að ákveða hvenær það verður
gert. Há meiðslatíðni barna hefur sett svip á starfið hjá Fylkismönnum.
Nýtt gervigras
á dagskrá
Ekki hefur verið lagst í svipaða at-
hugun og þá sem Fylkismenn lögð-
ust í til þess að kanna meiðslatíðni
barna á gervigrasvöllum hjá Fram
og KR en þeir vellir eru jafngamlir
Fylkisgrasinu. Þorsteinn Hall-
dórsson, sem nýlega tók við meist-
araflokki kvenna hjá Breiðabliki,
var áður þjálfari hjá 2. og 3. flokki
KR. Hann segir að leikmenn hafi
kvartað undan álagsmeiðslum í
hnjám en ekki hafi verið um eins
hátt hlutfall að ræða og hjá Fylki.
Fram æfir á tveimur stöðum. Á
nýju grasi í Úlfarsárdal og eldra
grasi í Safamýri. Lárus Grét-
arsson, þjálfari hjá 4. og 3. flokki
hjá Fram, segir að meiðslatíðni
hafi verið lág í Safamýri. „En
mönnum líður miklu betur í
skrokknum eftir æfingar í Úlfars-
árdalnum,“ segir Lárus.
Ekki sama meiðslatíðni
JAFNGAMALT GERVIGRAS HJÁ FRAM OG KR
Gunnar Þór Hallgrímsson, dósent
við líf- og umhverfisvísindadeild
Háskóla Íslands, og Tómas Grétar
Gunnarsson, forstöðumaður Rann-
sóknaseturs
Háskóla Ís-
lands á Suður-
landi, leiða í
dag, laugardag,
ferð í Graf-
arvogi þar sem
farfuglarnir
safnast saman.
Þátttakendur
taki með sér
sjónauka og gjarnan fuglabækur.
Brottför er kl. 11 gangandi frá bíla-
stæðinu við Grafarvogskirkju.
Ferðin tekur um 2 klst. og er farin í
samstarfi við Ferðafélag barnanna.
Ferðin er liður í samstarfi Há-
skóla Íslands og Ferðafélags Ís-
lands um göngu- og hjólaferðir und-
ir yfirskriftinni „Með fróðleik í
fararnesti“ sem hófst á aldarafmæl-
isári skólans árið 2011. Reynsla og
þekking fararstjóra Ferðafélagsins
og þekking kennara og vísinda-
manna háskólans blandast saman í
áhugaverðum ferðum um höf-
uðborgarsvæðið og næsta nágrenni
þess. Ferðirnar verða níu talsins á
árinu 2015 og tekur hver um tvær
klukkustundir. Þátttaka er ókeypis
og allir eru velkomnir.
Markmiðið með samstarfinu er
að vekja áhuga almennings á
fræðslu og hollri útivist og fjölga
valkostum í þeim efnum, segir í til-
kynningu.
Fugla-
skoðun í
Grafarvogi
Lóan er komin