Morgunblaðið - 25.04.2015, Page 48
48 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Íslenskur landbúnaður stendur
ekki undir kostnaði við að mæta
nýjum kröfum um aðbúnað búpen-
ings nema mótvægisaðgerðir af
hálfu stjórnvalda komi til. Þær
gætu meðal annars falist í breyt-
ingum á umhverfi tolla og að sá
áskilnaður sé gerður innflutt kjöt
sé framleitt við
við jafnsettar að-
stæður og sömu
kröfur og gerðar
eru hér á landi.
Þetta segir Har-
aldur Benedikts-
son alþing-
ismaður
Sjálfstæð-
isflokksins í
samtali við
Morgunblaðið.
Nýverið skrifaði Haraldur pistla
á Facebook og reifaði þar stöðu
landbúnaðarins og verkefnin fram-
undan. „Viðbrögð við skrifunum
hafa verið sterk, enda er hafa að-
stæður í landbúnaði breyst hratt
að undanförnu,“ segir Haraldur
sem er bóndi á Vestri-Reyni undir
Akrafjalli.
Innflutningsgjald
fyrir hvert kjötkíló
Sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar
nýlega að draga aðildarumsókn Ís-
lendinga að Evrópusambandinu til
baka styrkir stöðu landbúnaðar,
segir Haraldur. Hann var lengi
formaður Bændasamtaka Íslands
sem beittu sér af krafti gegn aðild.
„Núna getum við sjálf mótað
starfsumhverfi landbúnaðarins til
lengri tíma. Á svonefndum aðlög-
unartíma markaði ESB stefnuna.
Staðan er gjörbreytt og við getum
náð markmiðum okkar á eigin for-
sendum. Í þessu felast sókn-
arfæri.“
Á árunum 1980 til 1995 voru erf-
iðleikar í íslenskum landbúnaði
vegna offramleiðslu mjólkur og
kjöts. Nú er staðan önnur og
markaðurinn þarf meira. Fleiri
munna er að metta, svo sem vegna
fjölgunar erlendra ferðamanna. Þá
er eftirspurn eftir hreinni fitu, sem
sögð er ekki jafn skaðleg og áður
var talið. Raunar halda íslenskir
bændur ekki í við markaðinn og
má þar nefna að um 20% alls kjöts
á Ísland er innflutt.
„Innflutning þarf skoða í stóru
samhengi,“ segir Haraldur. „Þetta
kjöt er gjarnan skorið eða í hrein-
um vöðvum. Ég er alveg opinn fyr-
ir því að opna fyrir aukinn inn-
flutning í gagnkvæmum
milliríkjarsamningum, en þá undir
þeim formerkjum að það sé flutt
inn í heilum og hálfum skrokkum
og unnið hér á landi. Einnig að
borgað sé til dæmis innflutnings-
gjald fyrir hvert kíló. Þannig, með-
al annars, verjum við stöðu og
hagsmuni kjötvinnslunnar og
starfa þar.“
Bændur viti hvað
sé framundan
Fyrir ekki svo löngu framleiddu
íslenskir kúabændur innan við 110
milljónir mjólkurlítra á ári, það
var í samræmi við þáverandi þörf
markaðarins og beingreiðslur. Nú
er framleiðslan, fyrir hvatningu
Mjólkursamsölunnar, komin í um
140 milljónir lítra. Ræður því auk-
in eftirspurn eftir fituríkri vöru
svo og útflutningur á skyri. Um
þetta segir Haraldur að margir
kúabændur geti án mikils tilkostn-
aðar aukið framleiðslu sína um
kannski 10%. Svigrúmið sé sjaldan
meira, nema byggð séu ný fjós,
fyrir til dæmis 50 til 70 kýr. Kostn-
aður við slíkt sé aldrei undir 120
milljónum króna.
„Bændur fara ekki í miklar fjár-
festingar nema þeir viti hvað sé
framundan,“ segir Haraldur.
„Beingreiðslur vegna mjólk-
urframleiðslu eru í dag um 6 millj-
arðar króna og hafa lækkað um
35% að raunvirði á síðastliðnum tíu
árum, miðað við framleitt magn.
Þá hefur tollvernd brunnið upp í
verðbólgu og er því veikari. Svona
get ég haldið áfram. Þá þarf að
svara því hve mikla framleiðslu
landið ber. Sveitarfélög þurfa að
skipuleggja landsvæði með tilliti til
þarfa landbúnaðarins. Slíkt kalla
ég atvinnustefnu. Það eru líka
margir bændur sem ekki geta eða
vilja bæta við sig framleiðslu.
Sumir vilja bara halda í sín fjöl-
skyldubú, rekstur sem yfirleitt
skilar góðri framlegð.“
Vöxtur tekur enda
Þrátt fyrir útflutning íslenskra
landbúnaðarvara, svo sem á skyri
og í nokkrum mæli lambakjöti, tel-
ur Haraldur að áherslan eigi að
vera á innanlandsmarkað. Lítið
þurfi til svo svo erlendir markaðir
lokist. Úkraínustríðið og við-
skiptaþvingarnir því samhliða vitni
um slíkt. Því sé affarasælast að
horfa á innanlandsmarkað og hafa
í huga að vöxtur hans hljóti að
taka enda. Ferðamönnum muni
ekki fjölga óendanlega og viðhorf
neytenda geti alltaf breyst hratt.
„Það væri skammsýni að falla
frá til dæmis núverandi kvótakerfi
í mjólkurframleiðslu, eins og nefnt
hefur verið, án þess að hafa rætt
til enda hvað taki við og ef áætl-
anir um aðstæður á markaði breyt-
ast. Um þetta vantar miklu skarp-
ari sýn en vonandi losnum við samt
við framleiðslustýringu sem fyrst,“
segir Haraldur sem á sæti í at-
vinnuveganefnd Alþingis þar sem
meðal annars er fjallað um land-
búnaðarmál.
Framleiðslustýring hverfi sem fyrst
Met í mjólkurframleiðslunni Landbúnaðurinn hefur breyst mjög hratt að undanförnu Getum
nú mótað eigin stefnu án aðkomu Evrópusambandsins Gjald verði lagt á hvert innflutt kjötkíló
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Mjólkurvinnsla Fjölgun ferðamanna og ný þekking um hreina fitu hafa
aukið sölu á mjólkurafurðum. Í ostagerð MS í Búðardal.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Jarðrækt Starfið í sveitinni er margt og vinnudagurinn oft langur. Mik-
ilvægt er að hugsa til framtíðar og plægja akurinn í ýmsum skilningi.
Haraldur
Benediktsson
Að mæta nýjum Evrópukröfum um
aðbúnað dýra segir Haraldur
Benediktsson munu kosta íslenska
bændur milljarða kr. Eggja- og ali-
fuglabændur telji kostnað sinn
vegna nýrra reglna verða um tvo
milljarða kr. Meginstef regluverks
þessa er að til dæmis svín hafi
meira rými, að gotbásar verði af-
lagðir, varphænur verði á gólfi en
ekki í búrum og í fjósum fara kýr
af básum í lausagöngu. Þá skal
vera meira rými í stíum og færri
alifuglar á hverjum fermetra í eld-
ishúsum.
„Aðlögunartíminn sem íslenskir
bændur fá er skammur. Erlendis,
svo sem í Noregi, er það svigrúm
að ný útihús skuli byggð í sam-
ræmi við aðbúnaðarreglurnar nýju.
Ekki er hins vegar skeytt um að-
búnað í eldri húsum. Það tel ég
ágætt meðalhóf. Í svínabúskap og
kjúklingarækt hafa íslenskir
bændur náð einstökum árangri,
sjúkdómum eins og salmonellu og
kamfýlu hefur verið útrýmt, lyfja-
notkun er í lágmarki og vaxt-
arhraði gripa er meiri en í nálæg-
um löndum,“ segir Haraldur og
heldur áfram:
„Það er ekki hægt að koma með
nýjar íþyngjandi reglur og segja
bændum að spjara sig á sama tíma
og stefnulaus innflutningur er
raunin. Sérstaklega er mikið flutt
inn af svínakjöti og það fer tæpast
nokkur svínabóndi í nýjar fram-
kvæmdir fyrr en komið er á hreint
fyrr en komið er á hreint hvernig
bregðast skal við aðbún-
aðarreglum, innflutningi, að-
stæðum á markaði, samkeppn-
isreglum og fleira slíku. Í þessu
mætast hagsmunir margra. Verk-
efnin framundan í landbúnaðinum
eru mörg og taka þarf stórar
ákvarðanir á næstu árum. Þær
gætu orðið erfiðar, en fyrst er út-
litið slæmt ef við tökum ekki um-
ræðuna og leitum lausna og
vinnum samkvæmt því. .“
Þurfum aðlögun og meðalhóf
MILLJARÐARKOSTNAÐUR VEGNA AÐBÚNAÐAKRAFNA
Svín Fái meira pláss í stíunum og ali-
fuglar eiga að fara úr búrunum.