Morgunblaðið - 25.04.2015, Side 55
FRÉTTIR 55Viðskipti Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Orkuveita Reykjavíkur býður þér á opinn ársfund
í Gamla bíóimánudaginn 27. apríl kl.14
Dagskrá
Frostavetur að baki
Bjarni Bjarnason, forstjóri OR
Fjárræði - sjálfræði
Haraldur Flosi Tryggvason, formaður stjórnar OR
Næstu skref hjá Orkuveitunni
Dagur B. Eggertsson, borgarstjórinn í Reykjavík
Snjöll samfélög og Ljósleiðarinn
Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur
Urriði, fræslægja og fjarstaddir jarðfræðingar
Hildigunnur H. Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Þróunar OR
Brynja Þorgeirsdóttir stýrir fundinum
TeiturMagnússon flytur tónlist
Opinn ársfundur Orkuveitu Reykjavíkur 2015
Gleðilegt sumar!
Við bjóðum í sólarkaffi að loknum fundi
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
5
-0
8
4
7
Skráning á www.or.is
Gert er ráð fyrir að afkoma Ice-
landair Group á fyrsta ársfjórðungi
verði betri en ráðgert var í upphafi
árs samkvæmt drögum að árshluta-
reikningi félagsins. Ástæðan er
rakin til hærri tekna og betri nýt-
ingar.
Í jákvæðri afkomuviðvörun fé-
lagsins til Kauphallarinnar kemur
fram að EBITDA verði neikvæð
um 2-4 milljónir dollara. Sætanýt-
ing í millilandaflugi var 4,9 pró-
sentustigum hærri en á sama tíma-
bili á síðasta ári og herbergja-
nýting hótela var 7,8 prósentu-
stigum hærri. Tilgreint er að þróun
í gengi milli evru og dollars hafi
verið óhagstæðari en gert var ráð
fyrir.
Í tilkynningunni kemur fram að
horfur fyrir árið í heild séu góðar
og bókanir fyrir stærstu mánuði
ársins líti vel út. Styrking dollara
gagnvart Evrópumyntum hefur og
mun hafa neikvæð áhrif á afkomu
félagsins, sérstaklega á háanna-
tíma.
Þrátt fyrir óhagstæða gengisþró-
un er afkomuspá félagsins fyrir ár-
ið í heild óbreytt vegna betri af-
komu á fyrsta ársfjórðungi. Félagið
gerir ráð fyrir að EBITDA verði á
bilinu 160-165 milljónir dollara.
Þá segir í tilkynningunni að
starfsemi félagsins sé mjög háð ytri
aðstæðum, svo sem sveiflum á
gjaldmiðla- og eldsneytisverði og
að óvissa á vinnumarkaði á Íslandi
geti haft veruleg áhrif á afkomuna.
Árshlutareikningur félagsins fyr-
ir fyrsta ársfjórðung verður birtur
29. apríl næstkomandi.
Afkoma Icelandair yfir áætlun
Morgunblaðið/Þórður
Icelandair Hærri tekjur og betri nýting leiðir til þess að afkoma félagsins á
fyrsta fjórðungi þessa árs verður betri en ráð var fyrir gert í upphafi árs.
Olíukostnaður í sjávarútvegi í ár
gæti orðið fjórðungi minni en árið
2013, samkvæmt nýrri greiningu
hagfræðideildar Landsbankans. Á
árinu 2013 var
olíukostnaður
fiskveiða 17,2
milljarðar
króna og segir í
greiningunni að
gera megi ráð
fyrir að hann hafi
numið 17,4
milljörðum
króna á síðasta
ári. Ef meðal-
olíuverð og gengi
dollarans það sem af er þessu ári
endurspeglar árið í heild þá megi
gera ráð fyrir að olíukostnaðurinn
verði, að öðru óbreyttu, um 12,6
milljarðar króna á árinu og því 4,5
milljörðum krónum lægri en árið
2013. Umtalsverður hluti af rekstr-
arkostnaði í fiskveiðum felst í olíu-
og eldsneytiskostnaði og nam hann
um 15% af heildarkostnaði að með-
altali árin 2009-2013. Hlutfall olíu-
kostnaðar í fiskvinnslu er minna, en
hann nam 0,8% af heildarkostnaði að
meðaltali á sama tímabili. Seint á
síðasta ári lækkaði heimsmark-
aðsverð á olíu og það sem af er ári
hefur verðið að meðaltali verið 54,2
dollarar tunnan, sem er um 46%
lægra verð en í fyrra. Í greiningunni
er tiltekið að ástæðan fyrir því að
sparnaðurinn verði ekki meiri sé að
gengi dollarans gagnvart krónu hef-
ur styrkst á síðustu mánuðum sem
vegur á móti lækkun olíuverðsins.
Olíukostn-
aður 25%
lægri í ár?
Olíuverð lækkar
rekstrarkostnað.
Umtalsverð áhrif á
rekstur sjávarútvegs
Dr. Ásgeir Jóns-
son hefur verið
ráðinn efnahags-
ráðgjafi verð-
bréfafyrirtæk-
isins Virðingar,
sem varð til við
sameiningu Auð-
ar Capital og
Virðingar á síð-
asta ári. Sam-
kvæmt tilkynn-
ingu kalla frekari umsvif Virðingar á
sjálfstæða ráðgjöf og greiningar á
sviði efnahagsmála sem ætlað er að
nýtast starfsmönnum og við-
skiptavinum fyrirtækisins.
Ásgeir er dósent í hagfræði við
Háskóla Íslands og var þar til í lok
síðasta árs efnahagsráðgjafi
GAMMA. Áður starfaði hann sem
forstöðumaður greiningar hjá Arion
banka og forvera hans, Kaupþingi.
Ásgeir Jóns-
son ráðinn
til Virðingar
Ásgeir
Jónsson