Morgunblaðið - 25.04.2015, Page 60
60 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
opið: mán-fim: 12-18 - fös: 12-16
Ný sending frá Mama B!
Armenar minntust þess í gær að öld ár er liðin
frá fjöldamorðum Tyrkja á Armenum í fyrri
heimsstyrjöldinni. Stjórnvöld í Armeníu segja að
Tyrkir hafi orðið 1,5 milljónum Armena að bana
í aðgerðum sem þau segja að skilgreina beri sem
þjóðarmorð. Stjórnvöld í Tyrklandi neita því og
segja að hálf milljón Armena hafi látið lífið í
átökum og hungursneyð vegna heimsstyrjaldar-
innar.
Margir þjóðarleiðtogar, þeirra á meðal Vla-
dimír Pútín, forseti Rússlands, og François Hol-
lande, forseti Frakklands, tóku þátt í minningar-
athöfn í höfuðborg Armeníu, Jerevan. Hollande
hvatti stjórnvöld í Tyrklandi til að viðurkenna
drápin á Armenum sem þjóðarmorð. Pútín
kvaðst einnig styðja Armena í deilunni. „Það er
engin og getur ekki verið nein réttlæting á
fjöldamorðum á fólki,“ sagði Pútín.
Um 20 ríki hafa viðurkennt fjöldamorðin sem
þjóðarmorð, eða dráp sem framin eru með það
fyrir augum að eyða þjóð, ættbálki eða hópi sem
skilgreindur er með tilliti til trúarbragða eða
kynþáttar. Bandaríkin eru á meðal landa sem
hafa ekki viðurkennt fjöldamorðin á Armenum
sem þjóðarmorð og Barack Obama forseti notaði
ekki það orð þegar hann minntist drápanna í
yfirlýsingu í gær.
Fólk heldur hér á myndum af nokkrum
fórnarlömbum fjöldamorðanna þegar blóm voru
lögð að minnismerki um Armenana. bogi@mbl.is
AFP
Vilja að Tyrkir viðurkenni þjóðarmorð
Þjóð súkkulaðis, osta og úra er ham-
ingjusamasta þjóð heimsins, ef
marka má árlega könnun á vegum
Sameinuðu þjóð-
anna.
Sviss trónir
efst á nýjum lista
yfir hamingju-
sömustu þjóð-
irnar. Ísland
hoppar í annað
sætið á listanum
úr því níunda.
Danmörk og Nor-
egur fylgja í hum-
átt á eftir, þá
Kanada, Finnland og Holland. Nor-
rænu þjóðirnar koma vel út úr
könnuninni en á meðal þeirra mælist
hamingjan minnst hjá Svíum sem
eru í áttunda sæti. Nýja-Sjáland og
Ástralía koma þar á eftir.
Hamingjan minnst í Tógó
Í fimmta neðsta sæti listans er
Afganistan, þar á eftir koma Rúanda
og Benín. Sýrland er í þriðja neðsta
sætinu, fyrir neðan það er Búrúndí
og hamingjan er talin vera minnst í
Vestur-Afríkuríkinu Tógó.
Könnunin nær til 158 landa og
„hamingjuvísitala“ þeirra er metin
út frá ýmsum þáttum, meðal annars
þjóðartekjum á mann, félagslegum
stuðningi, lífslíkum og einstaklings-
frelsi. Markmiðið með könnuninni er
að hafa áhrif á stefnu stjórnvalda í
löndunum og hvetja þau til aðgerða
sem auka lífsgæði íbúanna.
Hamingj-
an mest
í Sviss
Svissneskt gæða-
súkkulaði.
Íslendingar næst-
hamingjusamastir
Að minnsta kosti 115 börn hafa beðið
bana og 172 særst alvarlega í átök-
um og loftárásum í Jemen frá 26.
mars, að sögn Barnahjálpar Samein-
uðu þjóðanna, UNICEF.
Talsmaður UNICEF sagði í gær
að a.m.k. 64 börn hefðu látið lífið í
loftárásum arabaríkja undir forystu
Sádi-Araba frá því að lofthernaður-
inn hófst 26. mars og til 20. apríl. 26
börn til viðbótar biðu bana af völdum
jarðsprengna, 19 í skotárásum, þrjú
af völdum sprengikúlna og þrjú af
óþekktum ástæðum í tengslum við
átökin.
Yfir þúsund hafa fallið
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin,
WHO, segir að alls hafi yfir þúsund
manns beðið bana í átökunum í land-
inu. Flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna segir að minnst 550
óbreyttir borgarar liggi í valnum.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
segir að vitað sé um a.m.k. 140 börn
sem vopnaðir hópar hafi fengið í sín-
ar raðir frá 26. mars. Fyrr í mán-
uðinum sagði talsmaður samtakanna
að allt að þriðjungur liðsmanna víga-
sveitanna væri á barnsaldri.
„Hundruð þúsunda barna í Jemen
búa við lífshættulegar aðstæður,
mörg vakna hrædd um miðjar nætur
vegna sprenginga og skotárása,“
sagði fulltrúi UNICEF í Jemen.
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóð-
anna vonast til þess að geta komið
matvælum til 2,5 milljóna Jemena
sem talið er að þurfi á aðstoð að
halda. bogi@mbl.is
Minnst 115 börn
hafa látið lífið
550 óbreyttir borgarar liggja í valnum
Taez
Yarim
Loftárásir hers Sádi-Arabíu á Jemen
SANAA
JEMEN
SÓMALÍA
EÞ
ÍÓ
P
ÍA
SÁDI-ARABÍA
Adenflói
Rauða-
haf
Aden
Sadaa
Átök Loftárásir
Bab al-Mandab-
sund
Djibouti
Mukalla
150 km
Lahj