Morgunblaðið - 25.04.2015, Side 72
72
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann.
Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á
EÐA Í SÍMA
TILBOÐ Á ÖFLUGUM
SÓLARSELLUM FRÁ ÞÝSKALANDI
GOP mono-sólarsellur frá Þýskalandi með 10A hleðslu-
stýringu. Sellurnar eru monocrystal-glersellur, sem
eru virkari í minni birtu en væru þær úr polycrystal.
Sendum hvert á land sem er.
Upplýsingar í síma 787 2211 eða á www.gadget.is
Henta vel á húsbíla, ferðavagna og sumarhús.
Sellurnar eru 100W og stærðin er 1194 x 542 x 35 mm.
Fullt verð 86.800 kr.
MOGGAKLÚBBSVERÐ 65.100 kr.
ATH! Takmarkað magn
Gylfaflöt 5 •112 Reykjavík
Opið frá 9:00 til 16:00
MOGGAKLÚBBURINN
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
A
lexander Schepsky kom
með ferska strauma inn í
íslenska reiðhjólamenningu
fyrir þremur árum þegar
hann opnaði, með félögum sínum,
Reiðhjólaverzlunina Berlín
(www.reidhjolaverzlunin.is). Nú er
komið að tímamótum í rekstrinum
því búðin flytur í sumar frá
Snorrabrautinni og yfir á Geirs-
götu 5a, úti á Granda.
Þar verður reiðhjólaverslunin í
góðum félagsskap ísbúða, sælkera-
verslana og alls kyns frumkvöðla
og menningarstarfs. Ljóstrar Alex-
ander því upp að til að gera versl-
unina enn betri standi til að starf-
rækja í framtíðinni lítinn kaffibás á
staðnum, þar sem gestir og gang-
andi geta kippt með sér einum
bolla á ferð sinni um bæinn. Á nýj-
um stað mun Reiðhjólaverzlunin
Berlín einnig fara í samstarf við
Kexland og verður þá hægt að
bóka í versluninni fyrirfram skipu-
lagðar hjólaferðir um borgina á
klassískum eðalhjólum, jafnvel með
nestispakka úr eldhúsi Sæmundar í
Sparifötum. Þessi nýjung er bæði
fyrir ferðamenn sem og fyrir Ís-
lendinga sem vilja kynnast hjóla-
leiðum um borgina eða gera sér
glaðan dag með vinum eða fjöl-
skyldunni.
Góður ferðamáti
Alexander ólst upp í Þýska-
landi og vandist því að nota reið-
hjól sem farartæki, mun frekar en
sem íþróttatæki. Í þýskum borgum
hjólar fólk á öllum árstímum og
tekur reiðhjólið fram yfir aðra far-
armáta enda fljótlegt, þægilegt,
ódýrt og heilsubætandi að skjótast
á hjólinu undir eigin afli. Þegar Al-
exander settist að á Íslandi rak
hann sig á að ekki var að því
hlaupið að finna svokölluð „borg-
arhjól“ og áherslan mikið til á
fjalla- og keppnishjól. „Þegar reið-
hjólasportið fer fyrst að skjóta rót-
um hér á landi þá voru það einkum
fjallahjólin sem seldust, og í sam-
ræmi við aðstæður til hjólreiða eins
og þær voru þá. Síðan fara há-
tækni „racerar“ að bætast við, fyr-
ir þá sem vilja hjóla sem hraðast í
skærlitum spandexfatnaði. Það sem
vantaði voru einföld borgarhjól til
að skjótast á niður í bæ í hvers-
dagsfötunum, þar sem hjólreiða-
maðurinn situr í þægilegri stöðu
með gott útsýni yfir umferðina, og
hjólar á hæfilegum hraða.“
Alexander sá að tími borgar-
hjólanna var kominn enda reiðhjó-
laáhugi landsmanna í hámarki og
mikið búið að greiða fyrir reið-
hjólasamgöngum á höfuðborgar-
svæðinu.
Hann opnaði verslunina og sel-
ur þar reiðhjól, aukahluti og fatnað
sem hentar til hjólreiða en er um
leið hentugur fyrir skrifstofuna,
skólastofuna eða kaffihúsið.
Nú með eigið merki
Í aðalhlutverki eru reiðhjól frá
rótgrónum og virtum framleið-
endum eins og Pashley og Bobbins
en nýlega bættist við hjólalína sem
ber nafn reiðhjólaverslunarinnar og
eru hjólin smíðuð eftir höfði Alex-
anders. „Þegar við fögnuðum
tveggja ára afmæli verslunarinnar
kviknaði sú hugmynd að bjóða
fram okkar eigin hjól. Skammt frá
heimabæ mínum í Þýskalandi fann
ég fyrirtæki sem framleiðir hjól
eftir sérpöntun. Við völdum klass-
ískt hollenskt stell, vandaðar
bremsur, hnakk, gíra, bögglabera
og ljós og útkoman er hjól með öllu
sem þarf til notkunar innanbæjar.“
Verðbilið á hjólunum í búðinni
er frá 100.000 kr til 220.000 kr og
upp úr. „Dýrust eru Pashley hjólin
enda eru þau Rollsinn í reið-
hjólaheiminum. Þar eru hjólin
handsmíðuð eftir pöntun og nostr-
að við hvert reiðhjól svo að verk-
smiðjan afkastar á einu ári því sem
aðrir framleiðendur smíða á einum
mánuði.“
Klæðileg og hentug föt
Reiðhjólafólk hefur sverið sér-
staklega ánægt með úrvalið af
fatnaði og aukahlutum í búðinni.
Aðstandendur verslunarinnar
leggja metnað sinn í að finna fal-
legar reiðhjólatöskur og körfur, og
reiðhjólafatnað sem er í senn
klæðilegur og hagnýtur. „Nýjasta
viðbótin við fataúrvalið er jakki
sem hægt er að klæðast bæði á
réttunni og röngunni. Hann er ögn
Hugguleg hjól fyrir huggulegt fólk
Kúlur Það skemmir ekki fyrir að lífga upp á daginn með litríkum hjálmi. Prýði Hjálmar þurfa ekki að vera í skærum litum og úr plastefnum eins og myndin sýnir.
Farskjóti Á vönduðu borgarhjóli má ferðast áreynslulítið milli staða.
Reiðhjólaverzlunin Berlín flytur um set á næstunni og
opnar glæsilega búð úti á Granda Efnt verður til tísku-
sýningar í maí þar sem áherslan verður á fallegan reið-
hjólafatnað, fögur hjól og eigulega aukahluti.
Þegar fjárfest er í vönduðu hjóli er vissara að kaupa líka sterkan lás.
Þó íslenskt samfélag sé friðsamt þá segir Alexander að það gerist of
oft að óprúttnir aðilar taki reiðhjól ófrjálsri hendi.
„Það þarf samt ekki að grípa til jafnróttækra aðgerða og í New
York þar sem eigendur reiðhjóla hafa vanist því að festa hjólin bæði
með þungri og þykkri keðju og öflugum U-lás. Aftur á móti er ekki
hægt að reikna með að venjulegur 2.000 kr lás veiti mikla vörn ef
brotaviljinn er einbeittur,“ segir hann.
„Það verður líka að festa hjólið við eitthvað. Annars eru þjófarnir
vísir til að henda reiðhjólinu einfaldlega aftur í skottið á bíl og fjar-
lægja lásinn í rólegheitum heima hjá sér.“
Til að veita hámarksvernd er gott að nota tvenns konar tegundir af
lásum. Ef þjófarnir eru svo kræfir að vera með áhöld á sér til að brjót-
ast í gegnum lása þá eru þeir sjaldan svo vel tækjum búnir að vera
með áhöld sem duga á tvær tegundir reiðhjólalása.
Gott hjól þarf góðan lás
SUMAR-SÓLútivera