Morgunblaðið - 25.04.2015, Page 80
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þ
egar sólin hækkar á lofti
taka landsmenn fram sum-
arfatnaðinn. Nú skal sko
aldeilis viðra stuttbuxurnar,
t-bolina og sumarlegu strigaskóna.
Það vantar bara eitt til að fullkomna
útlitið: falleg sólgleraugu.
María Hlín Sigurðardóttir hjá
gleraugnaversluninni Auganu í
Kringlunni segir sólgleraugu seljast
vel allt árið, en salan taki þó kipp yf-
ir sumarmánuðina. „Það er hægt að
nota sólgleraugu á öllum árstímum
nema á allramyrkustu mánuðum
ársins og æ fleiri hafa komið auga á
hvað sólgleraugu eru sjálfsagður
aukahlutur jafnt að sumri sem vor-
i,hausti og vetri, rétt eins og vandað
úr eða falleg taska.“
Vörn gegn geislun
María segir marga líka nota sól-
gleraugun til að vernda heilsuna og
bæta líðan. Það geti veitt augunum
þægilega hvíld að nota sólgleraugu á
björtum dögum og hjálpar til að
halda í skefjum ýmsum óskemmti-
legum sjúkdómum að verja augun
gegn útfjólubláum geislum.
„Að nota sólgleraugu gegnir þá
svipuðu hlutverki og að bera á sig
sólarvörn en útfjólubláir geislar geta
skaðað augun rétt eins og húðina.
Ætti fólk þá að gæta að því að kaupa
sólgleraugun hjá virtum gler-
augnaverslunum því svo virðist sem
borið hafi á því að sólgleraugu sem
seld eru í almennum verslunum og
bensínstöðum veiti ekki endilega þá
geislunarvörn sem merkingarnar
segja til um. Er í sjálfu sér ekkert
eftirlit sem vottar það að sólgler-
augu sem auglýst eru sem vörn gegn
útfjólubláum geislum séu í raun að
virka hundrað prósent eins og fram-
leiðandinn lofar.“
Að sögn Maríu er sólgler-
augnatískan mjög fjölbreytt um
þessar mundir. Allt virðist leyfast,
hvort sem fólk vill hafa sólgleraugun
stór eða smá. „Ég er nýkomin af
gleraugnasýningu erlendis og þar
voru áberandi kringlótt sólgleraugu
og gleraugu með ljósari glerjum.
Ljósari glerin geta verið ákaflega
smart, en líka praktísk við íslenskar
aðstæður því þau er hægt að nota þó
birtan sé ekki mjög mikil og t.d.
hægt að hvíla þannig augun þegar
setið er við tölvuskjáinn
löngum stundum.“
Litríkir speglar
Þá segir
María að speglah-
úðun virðist vera
að koma sterk inn
um þessar mund-
ir. „Það má
greina áhrif frá 8.
og 9. áratugnum og
speglaglerin fást með ýmsum lita-
tónum.“
Sólgleraugu með spegiláferð
hafa stundum átt það til að vera við-
kvæm fyrir rispum en María segir
að með nýjustu húðunaraðferðum sé
spegilfilman sterkari en áður. „Ef
glerin eru fengin frá virtum fram-
leiðanda þarf einbeittan brotavilja til
að rispa spegilhúðina,“ segir hún og
hlær.
Að sögn Maríu eru margir sem
hafa tamið sér að kaupa ný og flott
sólgleraugu einu sinni eða tvisvar á
ári. „Sólgleraugun eru þá skemmti-
legur aukahlutur og smátt og smátt
eignast þetta fólk gott safn af sól-
gleraugum sem passa með ólíkum
fatnaði og við ólík tækifæri,“ út-
skýrir hún. „Í sólglerugum getur
fólk líka leyft sér meiri djörfung en í
venjulegum styrkleikagleraugum.
Venjuleg gleraugu til að leiðrétta
nærsýni eða fjarsýni þurfa oft að
vera íhaldssamari í útliti en í sólgler-
augunum má bregða á leik með liti
og form.“
Talandi um gleraugu með
styrkleika þá segir María að heyri til
undantekninga í dag að fólk sem
þarf á gleraugum að halda til að sjá
frá sér láti smíða smellur með litluðu
gleri til að festa yfir hversdagsgler-
augun. Þess í stað velur fólk að
kaupa sólgleraugu með styrkleika.
Hún segir að hafa verði í huga að
ekki koma allar umgjarðir til greina
ef hafa á styrkleika í glerinu.
„Því meiri styrkleika sem þarf,
því smærri þarf umgjörðin að vera.
Þess vegna þarf að velja sólgler-
augun í samráði við fagmann í versl-
uninni og ganga úr skugga um
að umgjörðin henti þörf-
um viðskiptavin-
arins.“
Gefa svalt útlit á heitum sumardögum
María hjá Auganu segir
sólgleraugnatískuna fjöl-
breytta um þessar mundir
Spegiláferðir í ýmsum
litatónum eru að koma
sterkar inn og einnig
kringlótt sólgleraugu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Umgengni María Hlín segir ekki skynsamlegt að geyma sólgleraugun í
hanskahólfinu löngum stundum. Hitasveiflurnar geti verið miklar.
Stílhrein Falleg
sólgleraugu frá
Oliver Peoples og
Barton Perreira.
Vegleg Þessi
myndu sóma
sér vel á Sophiu
Lauren. Hönnin
er eftir Isabel
Marant frá Oli-
ver Peoples.
80
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
DAGSKRÁ:
12:30 Opnunarávarp
Þórarinn Sólmundarson, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneytinu
12:40 From Science to Praxis – Opportunities and Challenges
Dr. Peter Moll, Senior Science Policy Adviser, Science Development
13:20 Þverfaglegar rannsóknir í íslensku vísindasamfélagi
Kynningar og umræður
l Kristín Svavarsdóttir, vistfræðingur hjá Landgræðslu ríkisins
l Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri
l Unnur Anna Valdimarsdóttir, próf. við HÍ og forstöðumaður Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum
l Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands
Umræðustjóri: Kristín Svavarsdóttir, Landgræðslu ríkisins
Fundarstjóri: Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís
MÁNUDAGINN 27. APRÍL KL. 12:30-14:30
Á GRAND HÓTEL REYKJAVÍK
Á Rannsóknaþingi 2015 verður fjallað um þverfaglegar rannsóknir. Undanfarin ár hefur samstarf
milli fræðasviða aukist mikið og áhersla er lögð á þverfaglega nálgun og samstarf í vísindum og
nýsköpun. Á þinginu verður leitast við að bregða ljósi á þessa þróun, fjalla um reynslu, áskoranir
og tækifæri á þessu sviði og fá fram umræður um stöðu þverfaglegra rannsókna.
Þingið er öllum opið og þátttaka ókeypis. Skráning á heimasíðu Rannís.
Athugið að húsið opnar kl. 12:00 með léttum hádegisverði fyrir gesti.
RANNSÓKNAÞING 2015
ÞVERFAGLEGAR RANNSÓKNIR
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
SUMAR-SÓLútivera
Til að sólgleraugun endist vel
þarf að hugsa rétt um þau. Eins
og með önnur gleraugu segir
María gott að skola gleraugun
með köldu vatni áður en glerið
er pússað. „Þetta er rétt eins og
þegar bílinn er þveginn, að fyrst
þarf að skola af honum mestu
óhreinindin áður en byrjað er að
bursta og bóna.“
Geyma ætti sólgleraugun í
hörðu hulstri og vefja hreinsi-
klútnum utan um glerið til að
veita aukna vernd. „Ef að gler-
augun fara beint ofan í hliðar-
töskuna, eins og ég sé allt of
margar konur gera, þá er viðbú-
ið að þau láti fljótt á sjá.“
Það getur líka verið mjög
ósniðugt að geyma sólgleraugun
í hanskahólfinu á bílnum. „Á það
sérstaklega við ef bíllinn er ekki
geymdur í bílskúr. Miklar hita-
sveiflur geta orðið inni í bílnum
og farið að hafa áhrif á gler-
augun, sér í lagi ef þau eru úr
plasti. Hitinn getur þá linað
plastið og aflagað en kuldinn
gert það stökkara og viðkvæm-
ara.“
Skola fyrst, pússa svo