Morgunblaðið - 25.04.2015, Síða 99
MENNING 99
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Ber okkur skylda til aðgerðaþegar við vitum að mann-eskja er í lífshættulegrineyð? Þessi orð, sem eru
höfð eftir Roland Schimmelpfennig
höfundi Peggy Pickit sér andlit guðs
í leikskrá, fara nálægt því að vera
grunnspurning verksins. Næstu
spurningar eru þá: Hvað eigum við
að gera? Nægir að borga? Hversu
miklu erum við til í að fórna af for-
réttindum okkar? Svör við þessum
spurningum eru ekki einföld.
Peggy Pickit sér andlit guðs lýsir
kvöldverðarboði tveggja para sem
bæði eru rúmlega fertug. Gestgjaf-
arnir eru Frank, yfirlæknir á sjúkra-
húsi, og Lísa, sem starfaði sem
hjúkrunarkona áður en dóttir þeirra
kom í heiminn. Gestirnir eru Katrín
og Marteinn, sem hafa starfað sem
læknar við erfiðar aðstæður í
sjúkraskýli í Afríku og hafa verið í
burtu í sex ár.
Frásagnaraðferðin er sú að per-
sónurnar eiga eðlileg samskipti en
svo frýs atburðarrásin og ein per-
sónan flytur einræðu sem getur til
dæmis verið hugleiðingar um aðrar
persónur eða frásögn af einhverju
sem gerðist þegar langt var liðið á
boðið. Þessi stökk í tíma gefa tilfinn-
ingu fyrir því að alltaf sé verið að
fjalla um boðið í heild og merkingu
þess og það heppnast vel. Þá eru
margar stuttar senur endurteknar
sem í sumum tilvikum verður til
áhersluauka.
Smátt og smátt kemur í ljós að
Afríkuhjónin hafa orðið fyrir
skakkaföllum í einkalífinu. Þau virð-
ast einnig efins um hvort vinna
þeirra hafi skilað árangri. Lísa og
Frank sem hafa setið heima eru ekki
hamingjusöm frekar en gestirnir og
samband þeirra skortir tilfinn-
ingalega dýpt. Þau hafa sent ein-
hvern fjárstuðning til Afríku en eru
meðvituð um að það sé ekki mikið.
Til viðbótar ríkir einnig ákveðin
samkeppni eða rígur milli paranna
tveggja.
Höfundur segir í leikskrá: „Leik-
ritið gerist hér, hjá okkur. Það
fjallar um Afríku en er evrópskt
leikrit.“ Anna Rún Tryggvadóttir,
sem gerir leikmynd og búninga, hef-
ur þrátt fyrir þetta ákveðið að flytja
Afríku að einhverju leyti inn á hið
vestræna heimili. Leikmyndin er
stofa með gulu gólfteppi en upp úr
því rís hryggur í miðju sem leikarar
geta meðal annars staðið á. Bak-
grunnurinn er grænn gróðurveggur,
hálfgerður frumskógur. Húsgögn
eru nútímaleg og jafnvel stílfærð.
Ég get ekki ímyndað mér tilganginn
með hryggnum og raunar ekki gróð-
urveggnum heldur. Persónulega
hefði ég talið að heimili með dýrum
hönnunarhúsgögnum hefði stutt
betur við efnið.
Varðandi búninga þykir mér bet-
ur takast til. Frank er í smekklegum
bláköflóttum fötum, Marteinn er
frjálslegri í vesti utan yfir skyrtu.
Katrín, sem hefur verið í Afríku, er í
svörtum samfestingi, sem gæti verið
gömul spariföt og heimafrúin Lísa
er í gul- og svartmynstruðum kjól
með stórri slaufu. Maður getur
ímyndað sér að hún telji það í afr-
ískum anda og vilji á þennan hátt
koma til móts við gestina. Tónlist
eru lög úr íslensku dægurlagasafni
sem gætu auðveldlega passað sem
æskutónlist fólks sem er rúmlega
fertugt og hefur alist upp á Íslandi.
Það er ágætlega til fundið.
Leikararnir standa sig almennt
vel. Valur Freyr Einarsson leikur
hinn drykkfellda, sveitta, þjakaða og
brotna Martein. Valur Freyr gerir
allt rétt í þessu hlutverki. Ef til vill
nýtur hann þess að nokkru að hann
er á hárréttum aldri á meðan aðrir
leikendur eru í yngra lagi. Hjörtur
Jóhann Jónsson er einnig prýðilegur
sem sá farsæli meðalmaður sem
Frank er. Hann hefur komið sér vel
fyrir en virðist ekki lifa mjög inni-
haldsríku lífi. Kristín Þóra Haralds-
dóttir leikur eiginkonu hans, hina
upptrekktu Lísu, að mínu mati einn-
ig vel. Hún er til dæmis mjög kraft-
mikil og nánast uggvænleg í lokin
þegar sjá má inn í svartnætti sam-
bands þeirra Franks. Maríanna
Clara Lúthersdóttir leysir hlutverk
sitt sem Katrín sómasamlega og er
öflugust undir lok verksins.
Peggy Pickit sér andlit guðs spyr
sem fyrr segir spurninga um hvort
og þá hvernig við eigum að hjálpa
fólki í neyð. Leikritið dregur líka
upp mynd af innihaldslausri vest-
rænni millistéttartilveru og segir frá
hjálparstarfsmönnum sem kannski
hjálpa ekki neitt þegar allt kemur til
alls.
Margt er hér prýðilega gert.
Verkið er þó langt í frá gallalaust. Sú
aðferð að beita miklum endurtekn-
ingum ber í sér hættu á tilgerð sem
mér finnst örla á hér. Sama má segja
um notkun á afrískri og vestrænni
dúkku til að sýna andstæður hinna
ríku Vesturlanda og fátæktar Afr-
íku. Ég átta mig, sem fyrr segir,
ekki heldur á hvert er verið að fara
með leikmyndinni.
Rithöfundurinn Binyavanga Wai-
naina hæðist að klisjum í umfjöllun
um Afríku í grein sem birtist í leik-
skrá. Þetta verk er ekki laust við
klisjur, hvort sem hugsað er um leik-
ræna framsetningu, Afríku, umfjöll-
un um hjálparstarf, miðaldra tilveru
eða hjónalíf.
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Klisjur „Þetta verk er ekki laust við klisjur, hvort sem hugsað er um leik-
ræna framsetningu, Afríku, umfjöllun um hjálparstarf, miðaldra tilveru eða
hjónalíf,“ segir m.a. í gagnrýni um Peggy Pickit sér andlit guðs.
Hvað ef manneskja er
í lífshættulegri neyð?
Borgaleikhúsið
Peggy Pickit sér andlit guðs
bbbnn
Peggy Pickit sér andlit guðs eftir Rol-
and Schimmelpfennig. Leikarar: Hjörtur
Jóhann Jónsson, Kristín Þóra Haralds-
dóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir og
Valur Freyr Einarsson. Leikmynd og
búningar: Anna Rún Tryggvadóttir, lýs-
ing Þórður Orri Pétursson, hljóðmynd:
Garðar Borgþórsson, þýðing: Hafliði
Arngrímsson. Leikstjóri: Vignir Rafn
Valþórsson. Frumsýning 22. apríl 2015 á
litla sviði Borgarleikhússins.
SIGURÐUR G.
VALGEISSON
LEIKLIST
Tónlistarkonan
Lára Sóley Jó-
hannsdóttir var
í fyrradag valin
bæjarlistamaður
Akureyrar
2015-16, á Vor-
komu Akureyr-
arstofu. Meðal
annarra við-
urkenninga sem
veittar voru við
sama tækifæri voru heiðursvið-
urkenning Menningarsjóðs. Hana
hlutu myndlistarkonan Iðunn
Ágústsdóttir sem lauk nýlega
einkasýningu í Listasafninu á Ak-
ureyri og Gunnar Frímannsson
sem hefur komið að starfi Sinfón-
íuhljómsveitar Norðurlands frá
upphafi og lagt sitt lóð á vog-
arskálarnar við uppbyggingu
sveitarinnar, að því er fram kem-
ur í tilkynningu.
Lára Sóley valin
bæjarlistamaður
Lára Sóley
Jóhannsdóttir
Sænski djasspíanóleikarinn Jan
Lundgren heldur tónleika á
Listahátíð í Reykjavík í Gamla bíói
4. júní kl. 20.
Lundgren er heimsþekktur pían-
isti og tónskáld og hefur gefið út
hátt í 50 hljómdiska. Síðasti diskur
hans, Flowers of Sendai, vann á síð-
asta ári verðlaun Jazz Journal sem
besti djassdiskur ársins, skv. vef há-
tíðarinnar.
„Jan hóf feril sinn sem klassískur
píanóleikari, en hefur frá unglings-
árum helgað sig djasstónlistinni.
Hann hefur haldið tónleika um all-
an heim með tríói sínu við frábærar
undirtektir og er á samningi hjá
hinu virta ACT-plötufyrirtæki, en
jafnframt hjá píanóframleiðand-
anum Steinway
& Sons, einn
fárra djasspían-
ista,“ segir þar.
Með Lundgren
leika Matthias
Svensson á
kontrabassa og
Zoltan Csörsz Jr
á trommur. Þeir
hafa leikið sam-
an síðan 1997, þegar hin margverð-
launaða plata, Swedish Standards,
kom fyrst út. „Tónlistin er hljóm-
fagur skandinavískur djass, sem
sver sig í ætt annarra heimsfrægra,
sænskra djasspíanista eins og Jan
Johansson, Anders Widmark og
Esbjörn Svensson,“ segir á vefnum.
Jan Lundgrein á Listahátíð í Reykjavík
Jan Lundgren
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Sun 26/4 kl. 19:00 Lau 9/5 kl. 19:00 Fös 22/5 kl. 19:00
Mið 29/4 kl. 19:00 Sun 10/5 kl. 19:00 Mán 25/5 kl. 13:00 ATH kl
13
Fim 30/4 kl. 19:00 Mið 13/5 kl. 19:00 Mið 27/5 kl. 19:00
Sun 3/5 kl. 19:00 Fim 14/5 kl. 19:00 Fös 29/5 kl. 19:00
Þri 5/5 kl. 19:00 Fös 15/5 kl. 19:00 Lau 30/5 kl. 19:00
Mið 6/5 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00 Sun 31/5 kl. 19:00
Fim 7/5 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00 Mið 3/6 kl. 19:00
Fös 8/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00 Fim 4/6 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 25/4 kl. 13:00 Sun 3/5 kl. 13:00 Sun 17/5 kl. 13:00
Sun 26/4 kl. 13:00 Sun 10/5 kl. 13:00
Síðustu sýningar leikársins
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Sun 26/4 kl. 20:00 14.k Fim 7/5 kl. 20:00 18.k Mið 13/5 kl. 20:00 22.k.
Mið 29/4 kl. 20:00 15.k Fös 8/5 kl. 20:00 19.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k.
Fim 30/4 kl. 20:00 16.k Lau 9/5 kl. 20:00 20.k. Fös 15/5 kl. 20:00 aukas.
Sun 3/5 kl. 20:00 17.k Sun 10/5 kl. 20:00 21.k Fim 21/5 kl. 20:00
Mið 6/5 kl. 20:00 aukas. Þri 12/5 kl. 20:00 aukas.
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00
Lau 2/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Beint í æð (Stóra sviðið)
Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 2/5 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00
Sýningum fer fækkandi
Peggy Pickit sér andlit guðs (Litla sviðið)
Sun 26/4 kl. 20:00 3.k. Fim 7/5 kl. 20:00 6.k. Sun 17/5 kl. 20:00
Fim 30/4 kl. 20:00 4.k. Lau 9/5 kl. 20:00 Fim 21/5 kl. 20:00
Sun 3/5 kl. 20:00 5.k. Sun 10/5 kl. 20:00
Urrandi fersk háðsádeila frá einu umtalaðasta leikskáldi Evrópu
Hystory (Litla sviðið)
Mið 29/4 kl. 20:00 6.k. Fim 14/5 kl. 20:00 Mið 20/5 kl. 20:00 auka.
Fös 8/5 kl. 20:00 auka. Fös 15/5 kl. 20:00
Nýtt íslenskt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Mán 27/4 kl. 10:00 Mán 27/4 kl. 13:00 Mið 29/4 kl. 10:00
Uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í.
Beint í æð! –★★★★ , S.J. F.bl.
leikhusid.is Segulsvið – ★★★★ „Mikill galdur“ – AV, DV
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Fjalla - Eyvindur og Halla (Stóra sviðið)
Lau 25/4 kl. 19:30 11.sýn Lau 2/5 kl. 19:30 12.sýn Sun 3/5 kl. 19:30 13.sýn
Síðustu sýningar.
Segulsvið (Kassinn)
Lau 25/4 kl. 19:30 11.sýn Lau 2/5 kl. 19:30 12.sýn
Hefur hlotið frábærar viðtökur - síðustu sýningar.
Sjálfstætt fólk - hetjusaga (Stóra sviðið)
Sun 26/4 kl. 19:30 Lokas.
Allra síðasta aukasýning!
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Sun 26/4 kl. 13:30
Kuggur og félagar geysast nú upp á svið í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn!
Svartar fjaðrir (Stóra sviðið)
Mið 13/5 kl. 19:30 Frums. Mið 20/5 kl. 19:30 3.sýn Sun 31/5 kl. 19:30 6.sýn
Fös 15/5 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/5 kl. 19:30 5.sýn
Leitin að Jörundi (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 3/5 kl. 20:00 Sun 10/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00
Sápuópera um hundadagakonung
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Macho Man Saving History (Salurinn)
Sun 3/5 kl. 20:00
Sviðslistahátíð Assitej (Salurinn)
Lau 25/4 kl. 13:00 Lau 25/4 kl. 16:00 Lau 25/4 kl. 18:00
Síðbúin rannsókn (Aðalsalur)
Mán 11/5 kl. 20:00 Þri 12/5 kl. 20:00 Fös 15/5 kl. 20:00
Both Sitting Duet og Body Not Fit For Purpose (Salurinn)
Lau 30/5 kl. 20:00
The Border (Salurinn)
Mán 18/5 kl. 20:00 Þri 19/5 kl. 20:00
Endatafl (Salurinn)
Fös 1/5 kl. 20:00 Fim 14/5 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00
Lau 2/5 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00
Fim 7/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00
Fös 8/5 kl. 20:00 Sun 24/5 kl. 20:00
Hávamál (Salurinn)
Mið 27/5 kl. 20:00 Sun 31/5 kl. 16:00 Sun 31/5 kl. 20:00