Morgunblaðið - 25.04.2015, Qupperneq 106
106 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
ERNA
Silfurmunir og skartgripir
síðan 1924
GULL- OG SILFURSMIÐJA
Skipholti 3 - Sími 552 0775 - erna.is
Íslenskar
barnaskeiðar
úr silfri
Framleiðum einnig öll íslensku
borðbúnaðarmunstrin
ÓKEYPIS AÐGANGUR
HÁDEGISTÓNLEIKAR
Í NORÐURLJÓSUM, HÖRPU
ÞRIÐJUDAGINN 28. APRÍL KL.12:15
DÍSELLA LÁRUSDÓTTIR
SÓPRAN
ANTONÍA HEVESI
píanó
STRAVINSKY - RAVEL - VERDI
ÁST Í ÖLLUM LITUM
Í ár heldur Listaháskóli Íslands út-
skriftarhátíð í fyrsta sinn en henni
tilheyra allir viðburðir útskrift-
arnema skólans í ár. Hátíðin var sett
um síðustu helgi
þegar útskrift-
arsýning meist-
aranema í hönn-
un og myndlist
var opnuð í Gerð-
arsafni í Kópa-
vogi en útskrift-
arsýningum og
viðburðum á veg-
um útskrift-
arnema skólans
hefur fjölgað
stöðugt síðan og eru viðburðirnir í
heildina 28 talsins.
Hápunktur hátíðarinnar er í dag,
þegar 65 nemendur í BA í myndlist,
hönnun og arkitektúr opna útskrift-
arsýningu sína í Hafnarhúsi en út-
skriftarsýningarnar hafa báðar ver-
ið vel sóttar á undanförnum árum.
Um 14 þúsund manns hafa sótt sýn-
ingu nemenda í BA-námi árlega á
undanförnum árum á þeim tveimur
vikum sem sýningin stendur yfir.
Á fimmtudaginn fór fram tísku-
sýning í Hörpu á vegum útskriftar-
nema í fatahönnun og í gær frum-
sýndu ellefu nemendur 3. árs leik-
arabrautar, sem útskrifast með BA-
gráðu af leikarabraut sviðslista-
deildar vorið 2015 verkið Að eilífu
eftir Árna Ibsen í leikstjórn Stefáns
Jónssonar. Þá voru fyrstu tónleik-
arnir í tónleikaröð útskriftarnema
haldnir í Salnum í Kópavogi í gær-
kvöldi.
Sameiginlegt átak
Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor
LHÍ, segir ástæðu þess að ákveðið
var að koma öllum þessum við-
burðum undir einn hatt sem út-
skriftarhátíð þá að þrátt fyrir að þeir
hafi verið orðnir svona margir og
fjölbreyttir hafi nemendur sjálfir
ekki endilega upplifað þennan líflega
tíma í lok skólaársins sem sameig-
inlegt átak þeirra allra. Þar að auki
hafi fyrir löngu verið kominn tími til
að kynna þennan afrakstur nemenda
betur fyrir nærsamfélaginu og
ítreka möguleika almennings á því
að taka þátt eða sækja þessa við-
burði. Með því sé fólki veitt hlutdeild
í starfi skólans og innsýn í það
hreyfiafl sem skólinn svo sannarlega
er.
„Skapandi greinar eru ein mest
vaxandi atvinnugrein í landinu og
listirnar eiga veigamestan þátt í
því,“ segir hún og því hafi þótt
ástæða til að búa til sameiginlegan
fókus er skerpi á samstöðu nemenda
um sitt listræna starf og styrki um
leið tilfinningu allra sem áhuga hafa
á listviðburðum fyrir skólastarfinu. Í
þessum tilgangi hafi meira að segja
verið þróað smáforrit, sem auðveldi
fólki að fylgjast með því sem er í
gangi á hverjum degi.
Meðfylgjandi ljósmyndir voru
teknar 22. apríl þegar nemendur
voru önnum kafnir við uppsetningu
verka sinna í Hafnarhúsi.
ash@mbl.is
Undirbúningur Helga Birgisdóttir, nemandi í vöruhönn-
un, við uppsetningu á útskriftarverki sínu.
Morgunblaðið/Eggert
Forvitnilegt Andri Björgvinsson
myndlistarnemi á þetta verk.
14.392 Una Sigtryggsdóttir myndlistarnemi við verk
sitt sem ber heitið 14.392 dagar á ári.
Morgunblaðið/Eggert
Samvinna Nemendur hjálpast að við uppsetningu á úskriftarverki Andreu
Arnarsdóttur, Frekum speis, í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur.
Hvolf Sólveig Eir Stewart við útskriftarverk sitt sem nefnist Hvolf.
Innsýn í það hreyfi-
afl sem LHÍ er
Útskriftarsýning BA-nema opnuð
Fríða Björk
Ingvarsdóttir
Gróðursæld
Auður Lóa
Guðnadóttir
við verk sitt
Pottaplöntur.
Bogi Myndlist-
arneminn Ylva
Frick vandar sig
við uppsetningu
verks síns.