Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Stórfengleg náttúra Suður-Þýskalands lætur engan ósnortinn, þar
sem umlykjandiAlpafjöllin og blómlegar sveitir skreyta dásamlegt
landslagið.Við heimsækjumArnarhreiður Hitlers, tærasta
stöðuvatn Evrópu, Königssee, njótum náttúrufegurðar í Ettal,
virðum fyrir okkur víðáttuna frá tindi Zugspitze og heimsækjum
eyjarnar Herren- og Fraueninsel á siglingu um vatnið Chiemsee.
Verð: 222.200 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
eh
f.
Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir
14. - 23. ágúst
Tignarleg fjöll&töfrandihallir
Sumar 18
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Bandaríski lögmaðurinn Lee Buch-
heit, hjá lögmannsstofunni Cleary
Gottlieb Steen & Hamilton í New
York, segir aðspurður að það kæmi
sér ekki á óvart ef áætlun íslenskra
stjórnvalda um afnám hafta yrði not-
uð í kennslubókum í framtíðinni.
Verkefnið hafi enda verið tröllaukið í
samhengi við íslenskt hagkerfi.
„Það leiddi af gríðarlegu umfangi
fjármálahrunsins á Íslandi að höftin
þurftu að vara lengur en nokkur
hafði reiknað með. Við slíkar aðstæð-
ur eru ekki mörg fordæmi fyrir því
að höftum sé lyft Það kæmi mér því
ekki á óvart ef nemendur í alþjóða-
fjármálum muni lengi nota þetta sem
kennslubókardæmi.
Þegar fjármagnshöft hafa verið
við lýði í svo langan tíma, og þegar á
bak við höftin hefur safnast upp fjár-
hæð sem nemur 70% af vergri lands-
framleiðslu landsins, hlýtur losun
hafta að vera erfitt og vandasamt
verk,“ segir Buchheit og bendir á að
framkvæmdahópur um afnám hafta
og Seðlabanki Íslands hafi borið hit-
ann og þungann af greiningarvinnu
sem var notuð við samningsgerðina.
Tvær leiðir voru færar
Eins og rakið er í grein hér fyrir
neðan var Buchheit einn hinna er-
lendu ráðgjafa sem stjórnvöld leit-
uðu til vegna viðræðna við kröfuhafa
slitabúanna. Hann er þjóðþekktur
eftir gerð Icesave-samninganna.
„Sem teymi fórum við yfir nokkr-
ar mögulegar leiðir til að nálgast
vandann. Verkfærin í verkfærakist-
unni voru hins vegar ekki mörg. Al-
mennt talað eru tvær leiðir færar til
að taka á miklu magni innlends
gjaldeyris sem kann að leita úr landi
þegar slakað er á höftum. Það má
annaðhvort reyna að minnka umfang
þessara eigna eða fresta útflæði fjár-
magnsins með lengingu, eða fara leið
sem er einhvers konar blanda þess-
ara tveggja.
Aðferðir til að minnka krónueignir
felast í tæknilegum útfærslum eins
og uppboða á gjaldeyri, sem er þá
seldur á yfirverði miðað við hefð-
bundið gengi, skattheimtu, val-
frjálsu stöðugleikaframlagi með eft-
irgjöf eigna og svo framvegis.
Aðferðir til að fresta útflæði fjár-
magns fela í sér tæknilegar út-
færslur eins og að lengja endur-
greiðsluferil núverandi fjárfestinga,
„hraðahindranir“ eða magntak-
markanir, og svo framvegis.“
Buchheit segir það hafa verið nær
samhljóða álit þeirra sem til þekkja
að setning haftanna hafi verið nauð-
synleg aðgerð eftir fjármálahrunið
en að þau haldi nú aftur af efnahags-
batanum á Íslandi.
Vildu forðast gengissveiflur
„Hvatinn fyrir aðgerðunum sem
kynntar voru í gær [í fyrradag] er
þörfin fyrir að leysa greiðslujafnað-
arvanda Íslands, forðast gengis-
sveiflur og tryggja áframhaldandi
efnahagsbata. Hvatinn að baki að-
gerðunum var ekki sá að afla tekna.
Ein afleiðing aðgerðanna verður
hins vegar sú að leiða af sér umtals-
vert fjárstreymi bæði króna og er-
lends gjaldeyris í ríkissjóð Íslands.
Þetta fé má nota til að draga úr
skuldum ríkissjóðs sem aftur ætti að
leiða til þess að skuldatryggingaálag
landsins batni og lántökukostnaður
lækki,“ segir Buchheit sem hóf störf
fyrir framkvæmdahóp um afnám
hafta um mitt síðasta ár.
Kom með nýja nálgun
Heimildamaður blaðsins sagði
Buchheit hafa áratugareynslu af
lausn flókinna mála. Komu Buch-
heits hafi fylgt nýjar áherslur. Hann
nálgist málin með aðferðafræði kylfu
og gulrótar, þ.e. aðferðafræði hörku
eða umbunar. Í tilviki haftaáætlun-
arinnar er stöðugleikaskatturinn
kylfan en gulrótin felst m.a. í því að
stjórnvöld greiða götu nauðasamn-
inga með lagabreytingum. Buchheit
lagði ríka áherslu á greiðslujafnað-
arvandann og úrlausn hans. Mikil
reynsla hans er talin eiga ríkan þátt í
því að kröfuhafar kusu að lúta
stöðugleikaskilyrðum stjórnvalda og
hafa þegar sent inn erindi þess efnis.
Buchheit fylgdi ný nálgun
Lögmaðurinn Lee Buchheit lagði fram „kylfu og gulrót“ á fundum við kröfuhafa slitabúanna
Hann segir afnámsáætlun íslenskra stjórnvalda verða notaða í kennslubókum í alþjóðafjármálum
Morgunblaðið/Kristinn
Höftin afnumin Lee Buchheit og Glenn Kim, ráðgjafar íslenskra stjórn-
valda, á fundi með kröfuhöfum sem fór fram á Íslandi í fyrravetur.
framkvæmdastjórn um losun hafta. Í
henni sátu áðurnefndir Benedikt
Gíslason og Eiríkur Svavarsson,
Freyr Hermannsson, forstöðumaður
fjárstýringar Seðlabankans, og
Glenn Victor Kim, fjármálaráðgjafi
hjá LJ Capital.
Við stofnun hópsins var gert sam-
komulag við Lee Buchheit, lögmann
hjá lögmannsstofunni Cleary Gott-
lieb Steen & Hamilton í New York,
Anne Krueger, hagfræðiprófessor og
fv. aðstoðarframkvæmdastjóra Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og
fjárfestingarbankans JP Morgan, og
ráðgjafarfyrirtækið White Oak.
Hafa yfirumjón með áætluninni
Stýrinefnd sem fjármálaráðherra
leiðir hefur haft yfirumsjón með
áætluninni. Í henni eru auk fjármála-
ráðherra þau Már Guðmundsson
seðlabankastjóri, Benedikt Árnason,
Ragnheiður Arnljótsdóttir, ráðu-
neytisstjóri í forsætisráðuneyti, og
Guðmundur Árnason, ráðuneytis-
stjóri í fjármála- og efnahagsráðu-
neytinu.
Lee Buchheit er sagður hafa haft
mikil áhrif á störf hópsins og nýttist
reynsla hans einstaklega vel, sér-
staklega í flóknum samskiptum við
kröfuhafa. Krueger er einnig sögð
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Viðmælendur blaðsins sem þekkja til
haftaáætlunarinnar rekja upphaf
hennar til skipunar sérstaks ráð-
gjafahóps vegna
vinnu við afnám
hafta 27. nóvem-
ber 2013.
Forsætisráð-
herra skipaði hóp-
inn og fór Sigur-
björn Þorkelsson
hagfræðingur
með formennslu.
Aðrir fulltrúar
voru hæstaréttar-
lögmennirnir Eiríkur Svavarsson og
Reimar Pétursson, verkfræðingur-
inn Jón Birgir Jónsson, hagfræðing-
urinn Jón Helgi Egilsson og Ragnar
Árnason, prófessor í hagfræði við HÍ.
Með hópnum störfuðu Benedikt
Árnason, efnahagsráðgjafi forsætis-
ráðherra, og Benedikt Gíslason, sem
var þá nýráðinn aðstoðarmaður
Bjarna Benediktssonar, fjármála- og
efnahagsráðherra. Var hópnum m.a.
falið að meta stöðu þjóðarbúsins og
koma með tillögur að leiðum við af-
nám hafta. Rúmu hálfu ári síðar, í
júlíbyrjun 2014, var skipuð sérstök
hafa nýst hópnum vel sem hagfræði-
legur ráðgjafi og þá sérstaklega
vegna tengsla við AGS.
Áður en erlendu ráðgjafarnir voru
valdir sumarið 2014 fóru fjórir
fulltrúar íslenskra stjórnvalda til
fundar við um tíu aðila í London sem
sýndu því áhuga að starfa með
stjórnvöldum að gerð afnámsáætlun-
ar. Áhuginn ytra var mikill og fékk
ríkisstjórnin upp undir 20 tilboð frá
lögmannsstofum, fjárfestingarbönk-
um og ráðgjarfafyrirtækjum.
„Öllum þótti þetta einstakt mál og
allir vildu taka það að sér,“ sagði
heimildarmaður sem þekkir málið.
Sigurður Hannesson stærðfræð-
ingur og Ásgeir Reykfjörð hdl. komu
inn í framkvæmdahópinn í janúar
auk tveggja fulltrúa Seðlabankans,
Jóns Sigurgeirssonar og Ingibjargar
Guðbjartsdóttur.
Hópurinn hafði þá metið þau þjóð-
hagslegu skilyrði sem þyrftu að vera
til staðar við afnám hafta í samvinnu
við greiðslujafnaðarteymi SÍ. Hófust
þá gagnkvæmir upplýsingafundir
með stærstu kröfuhöfum slitabúanna
þriggja þar sem framkvæmdahópur-
inn og Lee Buchheit kynntu þau
þjóðhagslegu skilyrði sem stjórnvöld
hugðust setja og jafnframt þá „kylfu“
sem fólst í stöðugleikaskattinum.
Fjöldi sérfræðinga lagði
hönd á plóg við áætlunina
Ráðgjöf Anne Krueger sögð hafa orðið að miklu gagni
Anne Krueger
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra,
segir aðspurður að eftir afnám hafta muni áfram
þurfa að stuðla að stöðugleika í íslensku efnahags-
lífi með hinum ýmsu stjórntækjum. „Við erum að
leggja grunn að því að afnema höftin eins og við höf-
um þekkt þau, þ.e.a.s. mjög ströng fjármagnshöft.
Það verður að gera grundvallargreinarmun á slíkum
höftum og einhvers konar þjóðhagsvarúðartækjum
sem við kynnum að vilja beita í framtíðinni.“
Spurður hvaða væntingar ríkisstjórnin hafi varð-
andi gengisþróun, í kjölfar haftaáætlunarinnar, segir
Bjarni að margt geti haft þar áhrif. „Það eru ótal
margir þættir sem geta haft áhrif á gengið en þegar
kemur að áhrifum slitabúa, eða útgreiðslu til kröfu-
hafa af eignum slitabúanna, þá eru þessar aðgerðir
hugsaðar til þess að gera slitabúin algjörlega hlut-
laus gagnvart áhrifum á gengið, þ.e.a.s. að afnema
hættuna á því að útgreiðsla til kröfuhafa muni fella
gengið. Þannig að væntingar mínar eru til þess að
þessar aðgerðir tryggi að slitabúin muni engan
þrýsting setja á gengið við afnám hafta.“
Svigrúm til skattalækkana
Bjarni segir aðspurður að ríkisstjórnin muni nýta
svigrúm til að draga úr álögum eftir því sem ríkis-
skuldirnar minnka, meðal annars vegna haftauppgjörsins.
„Það er alveg skýrt að það verður áfram forgangsmál hjá okkur að ein-
falda regluverk og draga úr álögum eftir því sem hægt er … Ég ætla ekki
að spá stórum aðgerðum til skattalækkana. Þær verður að tímasetja vel
og huga vel að stöðunni í efnahagslífinu að öðru leyti. Við erum nýbúin að
kynna nokkuð umfangsmiklar skattalækkanir. Spurningin var sú hvort
þessi bætti hagur ríkissjóðs muni geta undirbyggt frekari aðgerðir í ná-
inni framtíð og svarið við því er já. Það er alveg skýrt,“ segir Bjarni.
Voru sakaðir um popúlisma
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segist aðspurður vona
að Framsóknarflokkurinn muni uppskera á síðari hluta kjörtímabilsins
fyrir að hafa, að mati forystu flokksins, efnt heit um leiðréttinguna og af-
nám hafta. „Við erum hér að klára hluti sem ófáir sögðu fyrir kosningar
að væru óframkvæmanlegir, að við værum í einhvers konar popúlisma
með óraunhæfar hugmyndir og svo framvegis. Þannig að nú þegar þessi
mál sem voru sögð óraunhæf og alltof stór hefur verið hrint í framkvæmd
vonar maður að það verði virt við okkur. Fyrst og fremst er ég ánægður
að geta sagt við sjálfan mig og út á við að við höfum staðið við það sem
við lofuðum,“ sagði Sigmundur Davíð.
Stjórntæki verða áfram notuð
til að tryggja stöðugleika
FJÁRMÁLARÁÐHERRA RÆÐIR STÖÐUNA EFTIR AFNÁM HAFTA
Bjarni
Benediktsson
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Áætlun um afnám hafta