Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 40
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Vilt þú vita hvers virði
eignin þín er í dag?
Pantaðu frítt söluverðmat án skuldbindinga!
HRINGDU NÚNA 820 8080
Sylvía
Löggiltur fasteignasali
sylvia@fr.is
Brynjólfur
brynjolfur@fr.is
Guðrún Vala Elísdóttir
vala@simenntun.is
Borgarnes | Þær Hildur Aðalbjörg
Ingadóttir og Halldóra Jónasdóttir
starfandi sjúkraþjálfarar í Borgar-
nesi standa að verkefninu ,,Vænt-
umþykja í verki“, sem er heilsuefl-
andi tilraunaverkefni. Hugmyndin
kviknaði vorið 2013 og hafa þær
unnið hörðum höndum að upp-
byggingu þess síðan.
„Væntumþykja í verki snýr að
eldra fólki og aðstandendum
þeirra og felur í sér hvatningu til
fjölskyldu og vina til að gera æf-
ingar með fólkinu sínu þegar það
kemur í heimsókn. Hugmyndin
varð til við reglubunda heimsókn á
dvalarheimilið við þjálfun eldri ein-
staklinga sem ég var búin að fylgja
í nokkurn tíma. Þá kom ég oft þeg-
ar aðstandendur voru í heimsókn
og fannst alveg kjörið að virkja þá
í að gera æfingarnar með fólkinu
sínu. Í kringum flesta er fjölskyld-
unet sem hægt er miðla í gegnum,
en eldra og veikara fólki fjölgar
um leið og kröfur og væntingar að-
standenda vaxa,“ segir Hildur.
Hún segir að rannsóknir hafi
sýnt að þátttaka og stuðningur
fjölskyldu og vina skipti mjög
miklu máli þegar kemur að aukinni
hreyfingu eldra fólks og að verk-
efnið sé hugsað sem kærkomin við-
bót við það sem heimili bjóða upp á
nú þegar.
„Við vildum sjá hvaða mögu-
leikar væru til staðar í ljósi niður-
skurðar í samfélaginu og oft tak-
markaðra möguleika, til þess að
flestir hefðu sem mesta möguleika
á heilsueflingu og aukinni vellíðan.
Fólki þykir vænt um að geta gert
gagn og láta gott af sér leiða, góð
heimsókn verður betri og ástvinir
njóta góðs af,“ segir Hildur.
Staðfest hefur verið með rann-
sóknum að öll hreyfing gerir gagn,
bæði líkamlega og andlega, hversu
lítil sem hún er.
Hver og einn fær æfingablað
„Við höfum verið að koma verk-
efninu á fót á dvalarheimilum þar
sem við byrjum á að kynna það fyr-
ir starfsfólki og venjan er að einn
starfsmaður á hverju heimili sé
tengiliður okkar um vakningu og
þátttöku aðstandenda. Í upphafi
skiptum við einstaklingum á dval-
arheimilum í þrjá aðalflokka út frá
líkamlegri getu; þ.e rúmliggjandi,
sitjandi og standandi. Við höfum
gert einfaldar en mjög gagnlegar
æfingar fyrir hvern flokk sem auð-
velt er að framkvæma. Þessar æf-
ingar höfum við tekið og sett sam-
an á blað ásamt einföldum útskýr-
ingum, en hugmyndin er sú að
hver einstaklingur fá æfingablað
við sitt hæfi sem verður inn á her-
berginu, aðstandendum aðgengi-
leg.“
Þetta er sem fyrr segir til-
raunaverkefni sem þær Hildur og
Halldóra eru í óða önn að byggja
upp og vonast þær til að þátttaka
aðstandenda verði sem best.
„Forsendurnar eru góðar,“ segir
Hildur, „því allir vilja sínum nán-
ustu það besta.“
Hún bætir við að aðstandendur
séu oft hræddir við að gera æfing-
ar með eldri ástvinum sínum í ótta
við að vera að „eyðileggja eitt-
hvað“ eða gera illt verra. Með
þessum einföldu æfingum sem
flestir eiga að geta framkvæmt
hafa aðstandendur fengið verkfæri
og öryggi til að taka þátt í heilsu-
eflingu og vellíðan ástvina sinna.
Verkefnið er stöðugt að vaxa og
snertir okkur öll. Nú þegar taka
fjögur hjúkrunar- og dvalarheimili
þátt og fleiri eru væntanleg.
„Viðbrögðin eru dásamleg og að-
standendur eru fyrst og fremst
þakklátir fyrir að fá einfaldar leið-
beiningar til að auka vellíðan ást-
vina sinna,“ segir Hildur og bætir
við að góð þátttaka sé ennfremur
vélarafl verkefnisins og markmiðið
sé að fá sem flest dvalarheimili til
að taka þátt, kveikja á áhuga, sam-
ábyrgð og virkni aðstandenda til
að finna að allir geti gert gagn.
Þær Hildur og Halldóra eru núna
að vinna að „vellíðunarpró-
grammi“ fyrir fólk í líknarmeðferð
sem verður tilbúið 1. september
næstkomandi.
Geri æfingar með fólkinu sínu
Kjörið að virkja aðstandendur þegar
þeir koma í heimsókn á dvalarheimilin
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Brautryðjendur Hildur Aðalbjörg Ingadóttir og Halldóra Jónasdóttir sjúkraþjálfarar standa að verkefninu.
Vegna byggingaframkvæmda í
miðborg Reykjavíkur hefur komið í
ljós bryggjukantur sem tilheyrir
gömlu Reykjavíkurhöfn. Kanturinn
sést bæði frá framkvæmdareit við
Borgarbókasafnið í Tryggvagötu
en einnig á reit austan við Toll-
húsið. „Þetta er hluti af gömlu
hafnarmannvirkjunum sem reist
voru á árunum 1913-1917 og náðu
alveg frá Ingólfsgarði að Örfirisey,
eða út á núverandi Granda. Þetta
var geysilega mikil og mikilvæg
framkvæmd á sínum tíma og það
var gjörbylting fyrir Reykjavík að
fá þessa hafnaraðstöðu, því þá
þurftu skipin ekki lengur að liggja
úti á hafnarlegunni, úti fyrir
Reykjavík,“ segir Guðbrandur
Benediktsson, safnstjóri Borgar-
sögusafns Reykjavíkur.
Guðbrandur segir endanlega
ákvörðun ekki hafa verið tekna um
varðveislu. „Ég hugsa að hann fái
að víkja að einhverjum hluta, kant-
urinn verður væntanlega fjar-
lægður og grjótið nýtt í eitthvað
annað. Það er fornleifaeftirlit með
framkvæmdunum, þetta verður
myndað, skráð og fylgst með því.
Mér finnst spennandi, sem sagn-
fræðingi starfandi innan minja-
vörslunnar, að sagan sé varðveitt
og gerð sýnileg, eins og kostur er,“
segir hann. Guðbrandur telur lík-
legt að eitthvað verði tekið úr
bryggjugarðinum en segir ákvörð-
un ekki hafa verið tekna um hvort
lítill hluti verði varðveittur.
brynjadogg@mbl.is
Ljósmyndir/Guðbrandur Benediktsson
Bryggjukantur Við Tollhúsið í miðbæ Reykjavíkur er um þriggja metra hár
kantur. Hann er um 100 ára gamall og er vaktaður af fornleifafræðingi.
Gamall bryggju-
kantur lætur sjá sig
Kantur sem
tilheyrir gömlu
Reykjavíkurhöfn
Skrúfa Nýlega fannst stór togara-
skrúfa við uppgröftinn á svæðinu.