Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
alla þjóðina. Fjölbreytileikinn í
mannlífinu skiptir máli,“ segir Elín
og bætir við að lítið hafi orðið úr
efndum um aukna þjónustu.
Fluttu þangað allslausar
Eftir að Elín flutti suður fór
hún í nám í Háskóla Íslands í um-
hverfis- og auðlindafræði, til að læra
um hugmyndafræði félagslegrar
sjálfbærni.
„Í Árneshreppi hefur fólk búið í
1.200 ár án þess að ganga á auðlind-
irnar, lífsstíllinn er því nokkuð sjálf-
bær. Ég komst að því í náminu að
þegar talað er um sjálfbærni þá
vantar alveg að taka með það sem
ég vil kalla menningarlega sjálf-
bærni. Ég er núna að vinna að
meistaraverkefni mínu þar sem ég
spyr: Hvað er menningarleg sjálf-
bærni í Árneshreppi? Ég komst að
þeirri niðurstöðu að hún felst í því
að fólk flytji aftur í Árneshrepp. Þá
horfðist ég í augu við það að ég vil
eiga heima í þessum hreppi og ég vil
að dóttir mín fái að upplifa að eiga
heima þar. Ég vil líka að þar verði
byggð langt inni í framtíðina. Þess
vegna fluttum við þangað, alls-
lausar.“
Kynntist forfeðrunum
Elín segir að í Árneshreppi lifi
óslitinn ættleggur íslensku menn-
ingarfjölskyldunnar, þar sé menn-
ingin lifandi en ekki í boxi á safni.
„Ég er því þjóðmenningar-
bóndi, en engin þjóðernishyggja
felst í því, af því þjóð er ekki aðeins
við sem erum lifandi núna, heldur
líka allir forfeður sem hafa verið hér
á undan okkur. Í Árneshreppi man
fólk lengra aftur, kannski af því það
hefur meiri tíma. Og fyrir vikið hef
ég kynnst forfeðrum íbúanna þar
mjög vel. Allt samfélagið viðheldur
eigin sögu með því að segja sögur af
fólki. Ég vil vera partur af menning-
unni í Árneshreppi og taka þátt í því
að viðhalda henni, þó að ég sé ætt-
laus á þessu svæði og eigi þar enga
sögu forfeðra. Hvernig þræði ég
mig saman við söguna þar svo
menningarleggurinn viðhaldist? Jú,
með því að gerast þjóðmenning-
arbóndi. Í starfi hans felst menning-
arvefnaður,“ segir Elín og bætir við
að sjálfbærni snúist alltaf um að
skila einhverju áfram til komandi
kynslóða.
Ætlar að byggja torfbæ
Elín er með hugmyndin um að
stofna nýbýli í Árneshreppi.
„Ég er bóndi í leit að jarðnæði,
ég er meira að segja komin með
skilti fyrir bæinn, hann á að heita
Þráðarleggur, og vinur minn Val-
geir sem býr í hreppnum, hefur
skorið bæjarnafnið út fyrir mig í
rekavið. Guðjón Kristinsson,
hleðslumeistari frá Dröngum, ætlar
að hjálpa mér að byggja torfbæ. Þar
langar mig að hafa þjóðmenning-
arskóla, til að muna hvernig fólk
hefur lifað af í gegnum tíðina. Sauð-
kindin hefur haldið í okkur lífinu í
tólf hundruð ár og það skiptir máli
að muna það. Við sætum ekki hér á
spjalli ef ekki væri fyrir sauð-
kindina. Við þurfum að bera virð-
ingu fyrir því sem fæðir okkur og
klæðir. Þó ég væri grænmetisæta
þá væri ég ekki hér nema fyrir
þessa kind sem hélt lífi í forfeðr-
unum. Við eigum ekki alltaf að
kaupa ódýrasta matinn, heldur
hugsa líka í samhenginu. Hag-
kvæmnisþráhyggja samtímans er að
mörgu leyti undirrót þeirra alvar-
legu vandamála sem við stöndum
frammi fyrir, bæði í umhverfisvánni
og öðru. Við verðum að muna í dag-
legri hegðun okkar að vonandi eigi
fólk eftir að lifa á jörðinni í önnur
tólf hundruð ár, og þúsund sinnum
tólf hundruð ár. Skammtíma gróða-
sjónarmið ráða ferðinni í nútíman-
um og virðing fyrir því sem gefur
okkur lífið, er á hverfanda hveli.
Það er svo almennt að fólk hugsi að
það eigi rétt á hinu og þessu, burt
séð frá því hvað það skuldar. Ég
upplifi að ég skuldi lífinu endalaust
og Árneshreppi, þetta er skuld sem
ég fæ aldrei greitt, en ég vinn að því
að reyna að endurgreiða í daglegu
lífi.“
Allir þurfa að hjálpa öllum
Fólkið í Árneshreppi er fátt og
tími hvers og eins er dýrmætur.
„Þarna er eitthvað ennþá lif-
andi sem er hverfandi annars stað-
ar, og þá hættir okkur til að segja
að fólkið sé sérstakt, jafnvel verður
tilbeiðsla. En þetta er ósköp venju-
legt fólk, hversdagsleiki þess er aft-
ur á móti sérstakur. Samfélagið í
Árneshreppi gengur út á svo miklu
meira en hagkvæmni, þarna er sam-
hjálp sem kemur til af því að byggð-
in er afskekkt. Allir eru meðvitaðir
um að allir þurfa á öllum að halda,
þó svo að fólk sé ekkert endilega
sammála dagsdaglega. Þannig er
virðing fyrir einstaklingnum og
framlagi hans.“
Elín segist vera að leita að
jarðnæði í Árneshreppi þar sem hún
hafi aðgang að reka.
„Svo ég geti nýtt viðinn til
bygginga og húshitunar, og torf og
grjót þarf ég líka til að byggja mér
hús, svolítið tún fyrir tíu kindur,
hænsn og vatn. Jóhanna Engilráð
dóttir mín hefur þegar ákveðið að
litla fjárhúsið okkar eigi að vera fal-
legt og gult og blátt á litinn.“
Elín sýslar í hjáverkum við að
gera heimasíðu fyrir og um Árnes-
hrepp og blogg þjóðmenning-
arbónda verður þar falið á milli hey-
bagga: arneshreppur.is
Dóttirin Jóhanna Engilráð í Stóru-Ávík, þangað sem þær mægður fluttu í fyrrasumar. Nú búa þær í Norðurfirði. Elín sýður ærleggi Til að geta búið til þráðarleggi, líkt og formæðurnar.
Siminn.is/spotify
6
SPOTIFY PREMIUM ÁSKRIFT
SÍMANS
SNJALLPÖKKUM
ENDALAUST