Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 105
MENNING 105
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
FRÁ FRAMLEIÐANDANUM STEVEN SPIELBERG
KEMUR EIN FLOTTASTA MYND SUMARSINS
POWERSÝNING
KL. 10:35
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
Bindi og pökkunarlausnir
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
fyrir allan iðnað
STÁLBORÐAR Ísfell er með margar gerðir bindivéla fyrir stál- og plastborða.
Handbindivélar, hálfsjálvirkar og alsjálfvirkar
einnig brettavafningsvélar fyrir plastfilmur.
HÁLFSJÁLFVIRK
BINDIVÉL
SJÁLFVIRK
BINDIVÉL
HANDBINDIVÉLAR
BRETTAVAFNINGS-
VÉLAR
POLYESTER OG
PLAST BORÐAR
Kvikmyndagagnrýnandi The
Guardian, Benjamin Lee, gefur nýj-
ustu kvikmynd Benedikts Erlings-
sonar, The Greatest Shows on
Earth: A Century of Funfairs, Circu-
ses and Carnivals, fjórar stjörnur af
fimm mögulegum, en myndin var
frumsýnd á heimildarmynda-
hátíðinni Sheffield Doc/Fest sem
lýkur í dag.
Lee bendir á að Benedikt sé ásamt
listrænu teymi sínu óhræddur við að
draga fram hinar myrkari hliðar
skemmtanabransans, sem innihaldi
m.a. dýraníð, kynferðislega hlut-
gervingu kvenna og illa meðferð á
börnum.
„Heilt yfir er myndin samt lof-
söngur um hugvitssamlega list-
sköpun, raunverulega skemmtun og
gleðina sem felst í því að deila hvoru
tveggja með
áhorfendum,“
segir Lee og tek-
ur fram að áður
óbirt myndefnið
bjóði upp á meiri
spennu en al-
mennt sjáist í
spennumyndum
úr smiðju Holly-
wood, enda mun
meira í húfi þeg-
ar gengið sé á línu.
Um tónlist myndarinnar, sem þeir
Georg Hólm og Orri Páll Dýrason úr
Sigur Rós sömdu í samvinnu við
Hilmar Örn Hilmarsson, segir Lee
að hún framkalli gæsahúð. Hrósar
hann þeim sérstaklega fyrir mikla
fjölbreytni í tónlistarsköpun sinni,
sem kallist vel á við myndefnið.
Lofsöngur um sirkus
Benedikt
Erlingsson
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Þetta var í raun taktísk ákvörðun,“
segir Andri Már Enoksson, með-
limur hljómsveitarinnar Vök, um þá
ákvörðun sveitarinnar að gefa út
þröngskífuna Circles sem kom út
fyrir skemmstu.
„Við höfum
mikið verið að
líta til hátíða er-
lendis og verið í
samskiptum við
umboðsmenn og
plötufyrirtæki.
Okkur var ráð-
lagt að það væri eftirsóknarverðara,
t.d. fyrir plötufyrirtæki, ef hljóm-
sveitin væri ekki búin að gefa út sína
fyrstu breiðskífu. Okkur langaði
hins vegar að gefa út efni og við vor-
um ekki tilbúin að gera breiðskíf-
una,“ segir hann.
Gott að vinna með Bigga Veiru
Biggi Veira vann með Vök að smá-
skífunni og segir Andri Már sam-
starfið hafa gengið einkar vel.
„Það var frábært að vinna með
honum, margt sem maður lærði. Það
flæða upp úr honum góðar hug-
myndir. Það var líka mjög gaman að
sjá það hvernig hann vinnur og
hvernig hann semur sitt stöff, góð
hugmyndafræði þar að baki. Það
væri mjög gaman að vinna áfram
með Bigga en það er mikið að gera
hjá GusGus svo við verðum eiginlega
bara að sjá til hvað gerist,“ segir
hann. Andri Már segir Vök hafa
þroskast mikið frá því að sveitin
vann Músíktilraunir árið 2013.
„Ég myndi segja að við værum
allt önnur sveit eftir þetta vinnslu-
ferli. Í grunnin er þetta náttúrlega
sama sveitin en við erum búin að
læra svo mikið á svo stuttum tíma.
Við vissum ekkert hvernig það var
að standa í því að spila á tónleikum,
vera í upptökum og slíku, í raun viss-
um við ekki neitt. Við þurftum að
vera fljót að læra hvernig hlutirnir
virkuðu,“ segir hann.
Fjöldi hátíða í sumar
„Við erum að vinna í breiðskífu
um þessar mundir, semja efni og að
taka upp. Við erum einnig að und-
irbúa tónleika á hátíðum sem við er-
um að fara að spila á erlendis í sum-
ar, þær eru tæplega tíu. Við munum
til að mynda koma fram á Hróars-
keldu í Danmörku og á Positivus-
hátíðinni í Lettlandi. Síðan verðum
við á minni festivölum hér og þar,“
segir hann en sveitin mun einnig
koma fram hér á Íslandi í sumar.
„Við komum til með að spila með
Ásgeiri í Hörpu hinn 16. júní, svo
stefnum við að því að halda útgáfu-
partý fyrir Circles 24. júní áður en
við höldum erlendis,“ Andri Már að
lokum.
Vök Hefur þroskast mikið frá því hún vann Músíktilraunir árið 2013.
Allt önnur sveit
en sigraði
Músíktilraunir
Vök gefur út þröngskífuna Circles
Leika m.a. á Hróarskeldu í sumar
Kvikmyndin Jurassic World verður
frumsýnd í bíó í dag, fjórða mynd-
in í syrpunni sem hófst með kvik-
mynd Steven Spielberg, Jurassic
Park, eða Júragarðurinn, árið
1993. Sögusvið Jurassic World er
eyjan Isla Nublar, líkt og í fyrstu
myndinni. Stóð þar til að opna
Júragarð með risaeðlum en sú
áætlun fór eftirminnilega út um
þúfur þegar eðlurnar sluppu laus-
ar. Nýr, stærri og fjölbreyttari
garður hefur nú verið opnaður,
nefndur Jurassic World, og fer allt
friðsamlega fram þar til nýræktuð
risaeðlutegund fer að ógna lífi
hundraða manna. Öryggisáætlun
er hrundið í framkvæmd og felst
hún m.a. í því að senda tamdar
snareðlur og fleiri eðlur til að
berjast við þær nýju. Leikstjóri er
Colin Trevorrow og með aðal-
hlutverk fara Chris Pratt, Judy
Greer og Ty Simpkins. Enga sam-
antekt á dómum er að finna um
myndina.
Risaeðlurnar snúa aftur
Júraheimur Úr kvikmyndinni Jurassic World sem verður frumsýnd í dag.
Bíófrumsýning