Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 64
64 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Ferðatöskur
Sími: 528 8800
drangey.is
Smáralind
Stofnsett 1934
Töskur
Hanskar
Seðlaveski
Ferðatöskur
Tölvutöskur
Belti
Skart og skartgripaskrín
Góðar vörur
Sanngjarnt verð
Persónuleg þjónusta
Kíktu inn á drangey.is
Tilvalin
útskriftar-
gjöf
Ítarlegar upplýsingar á
drangey.is/ferdatoskur
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Rússar hafa sakað Bandaríkjamenn um að mis-
beita valdi sínu til að grafa undan Sepp Blatter,
fyrrverandi forseta Alþjóða knattspyrnusam-
bandsins, FIFA. Draga Rússar í efa að banda-
ríska dómsmálaráðuneytið hafi rétt til að ákæra
14-menningana sem sakaðir eru um mútuþægni
og aðra spillingu. Svar Bandaríkjamanna er með-
al annars að hinir ákærðu hafi notað bandaríska
banka í umræddum mútumálum.
Rússar segja að um sé að ræða samsæri um að
refsa þeim vegna deilnanna um Úkraínu.
Segja FIFA-mál notað í stórveldaslag
Kínverjar gagnrýna afskipti bandarískra yfirvalda af spillingunni innan FIFA
Nú hefur Vladímír Pútín
Rússlandsforseta, sem studdi
Blatter, að sögn norska blaðs-
ins Aftenposten bæst liðs-
styrkur: Kína.
„Þó að hugsanlegt sé að
spillingaróveðrið hraði umbót-
um hjá sambandinu er þetta
frekar frumleg áætlun um að
ná ákveðnum markmiðum í al-
þjóðastjórnmálum,“ segir í
grein kínversku ríkisfréttastofunnar Xinhua.
Xinhua gagnrýndi ákaft Bandaríkjamenn, sagði
þá ávallt hafa verið snjalla í að blanda sér í innri
Xi Jinping
málefni alþjóðastofnana og ríkja og þvinga þau
til að fara að vilja sínum. Xi Jinping Kínaforseti
hefur ekki tjáð sig sjálfur um málið en ólíklegt er
að Xinhua tjái skoðanir sem hann er andvígur.
Rússar fengu á sínum tíma réttinn til að halda
heimsmeistarakeppnina 2018 en grunsemdir hafa
vaknað um að þeir hafi beitt til þess mútum.
Margir vilja að FIFA taki réttinn af þeim og
einnig Katar sem ljóst þykir að hafi mútað emb-
ættismönnum til að fá keppnina 2022. Þing Evr-
ópusambandsins ræddi í gær tillögu um að
hvetja til þess að ESB-ríkin íhugi að hunsa HM í
báðum ríkjunum ef ekki verði ráðist gegn spill-
ingunni.
Íþróttir og pólitík
» Sumir fjölmiðlar í Róm-
önsku Ameríku hafa brugðist
öðruvísi við óveðrinu í FIFA en
reyndin hefur verið á Vestur-
löndum. Segja þeir að verið sé
að breyta FIFA í vígvöll í nýju,
köldu stríði.
» Brasilíumaðurinn Pele, einn
af dáðustu knattspyrnumönn-
um sögunnar, hefur hyllt Blatt-
er ákaft.
Björgunarmenn og óbreyttir borgarar í Aleppo í Sýr-
landi hjálpast að í Fardous-hverfi en stjórnarherinn
varpaði svonefndum tunnusprengjum á hverfið í gær.
Andstæðingar stjórnar Bashar al-Assads forseta hafa
lengi ráðið yfir hverfinu. Hundruð manna hafa týnt
lífi af völdum tunnusprengna á síðustu vikum og mán-
uðum í landinu. Þær eru bannaðar samkvæmt al-
þjóðalögum, einkum vegna þess að ekki er hægt að
miða þeim vandlega og því deyja ekkert síður óbreytt-
ir borgarar.
AFP
Tunnusprengjum beitt í Aleppo
Vélmennið (eða þjarkinn) HRP-2 Kai reynir að opna dyr við lok DARPA-
vélmennakeppninnar í Fairfax-klasanum í Pomona í Kaliforníu fyrir
skömmu. Japanskt teymi sem kallar sig AIST-NEDO hannaði vélmennið.
Alls kepptu 24 lið og var markmið þeirra að hanna vélmenni sem gæti að-
stoðað menn í hamförum af einhverju tagi.
Kann ég að opna dyr?
AFP
Tveir fræðimenn við háskóla sænska
hersins vara eindregið við því í grein
í Dagens Nyheter í gær að Svíar
kveðji hlutleysið og gangi í Atlants-
hafsbandalagið, NATO. Segja þeir
að slík ákvörðun muni aðeins verða
til að efla þá trú meðal rússneskra
ráðamanna að þeim stafi ógn af Vest-
urveldunum. Stefna þeirra verði því
enn óútreiknanlegri og hættulegri
fyrir vikið.
Kveikjan að þessari grein er eink-
um sú að ný ríkisstjórn Juha Sipilä í
Finnlandi lætur nú kanna kosti þess
og galla að Finnar hverfi frá hlut-
leysistefnu sinni og gangi í NATO.
Og í Svíþjóð hafa
kannanir sýnt að
fylgi við NATO-
aðild jókst í fyrra
úr 28% í 33%.
Ástæðan er álitin
vera árásarstefna
Rússa síðustu ár-
in. Vinstrisinnar
gagnrýndu ný-
lega að banda-
rískar B52-sprengjuvélar skyldu
æfa árás á sænskt landsvæði í
tengslum við æfinguna Arctic Chal-
lenge Exercise sem Svíar tóku þátt í.
kjon@mbl.is
Finnska stjórnin
íhugar NATO-aðild
Juha Sipilä