Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 57
á jarðarkringlunni. Þessar tekjur
hafa meðal annars runnið til út-
breiðslu og þróunar knattspyrn-
unnar í aðildarríkjum FIFA. En
þær hafa einnig reynst eitraður
kaleikur því ásakanir um margs-
konar misferli, allt frá svindli með
aðgöngumiða og upp í kosninga-
mútuþægni, einkenna valdatíð
Blatter.
„Fall hans ætti að koma af stað
flóðbylgju er kaffærir spillta leið-
toga sambanda um heim allan. Við
þurfum að sjá spillingarmennina
senda í fangelsi og höfum þörf fyr-
ir framlag mikilla fyrirmynda,
góðra íþróttaleiðtoga og unnenda
fótboltans,“ skrifaði brasilíski
sóknarmaðurinn Romario, heims-
meistari 1994, á Twittersíðu sína.
Alexandra Wrage, forseti Trace
International, sjálfseignarstofn-
unar sem veitir fjölþjóðafyrir-
tækjum ráð til að verjast mútu-
þægni, sat í fyrrnefndri
umbótanefnd FIFA en sagði af sér
eftir að lykiltillögum nefndarinnar
var hafnað. Þar á meðal voru til-
lögur um óháð eftirlit með starf-
semi FIFA og takmörk á setu-
lengd í framkvæmdastjórn
sambandsins.
Wrage varar við því að láta
uppistandið vegna afsagnar Blat-
ter skyggja á þá vinnu sem endur-
reisn orðspor FIFA kallar á. Og
bendir á, að aðeins fjórum dögum
fyrir afsögnina greiddu næstum
tveir þriðju aðildarlanda sam-
bandsins óbreyttu ástandi atkvæði
sitt.
„Varast ber að vænta skriðu
stuðnings við umbætur. Helsta von
FIFA er að fram komi nýr maður
með afburða stjórnunarhæfileika
og óflekkuð heilindi. Hvort hann
kemur úr íþróttinni sjálfri eða ann-
ars staðar frá skiptir minna máli
en hvort hann er með hreinan
skjöld og enga umdeilda pinkla í
farteskinu,“ segir hún.
Margir í framboði
En Platini verður ekki einn um
hituna þótt sigurstranglegur sé
talinn. Chung Mong Joon, heiðurs-
varafoseti FIFA og fyrrverandi
frambjóðandi í forsetakosningum í
Suður-Kóreu, hefur sagst vera að
íhuga framboð til FIFA. Þá gaf
fyrrnefndur Ali Jórdaníuprins,
bróðir Abdullah konungs, til kynna
við CNN-sjónvarpsstöðina, að
hann væri tilbúinn til að sækjast
að nýju eftir forsetastól FIFA.
„Ég er til reiðu fyrir lands-
samböndin öll sem vilja breytingar
og líka þau sem hræddust breyt-
ingar,“ sagði Ali sem hlaut 73 at-
kvæði í kosningunni hjá FIFA
gegn 133 atkvæðum Blatters. Og
búast má jafnvel við fleiri fram-
boðum.
Bjóði Platini sig fram kemur
líklega vænn skerfur af atkvæð-
um Ali í hans hlut. Ekki eru fyrr-
nefndir veðmangarar á einu máli
um forsetaefnin. Fyrirtækið Co-
ral Bookmakers metur Ali prins
sigurstranglegastan með líkind-
unum 11-10 og Platini næstlíkleg-
astan með líkindunum 6-4.
Stærsti veðmangarinn, William
Hill, telur frönsku fótboltahetj-
una sigurlegri með líkunum 6-5.
Þangað til eftirmaður hans er
fundinn mun Blatter sitja í emb-
ætti en líklegast er að aukaþing
um kjör nýs forseta FIFA fari
fram á tímabilinu desember til
mars næstkomandi.
Efins um að Blatter hætti
Annar fulltrúi í fyrrnefndri um-
bótanefnd FIFA undir stjórn
Pieth, Michael Hershman, með-
stofnandi Transparency Inter-
national, virðist ekki fyllilega
sannfærður um að Blatter hverfi af
vettvangi. Minnir hann á að við
forsetakjör árið 2011 hafi hann
heitið því að bjóða sig aldrei aftur
fram en síðar skipt um skoðun.
„Sepp Blatter er enn í starfi og
stýrir FIFA áfram, ég ætla ekki
að trúa því [að hann hætti] fyrr en
ég sé það gerast.“
Á annarri skoðun er forseti
enska knattspyrnusambandsins,
Greg Dyke. Hann er á því að Blat-
ter verði handtekinn vegna
spillingarmála „innan skamms“ og
hrekist því úr embætti.
AFP
Evrópuboltinn Michel Platini, forseti UEFA, afhenti liðsmönnum Barcelona bikarinn eftir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á Ólympíuleikvanginum í
Berlín síðastliðið laugardagskvöld, eftir sigur á Juventus. Sjálfur var Platini sigursæll knattspyrnumaður og þjálfari og hampaði mörgum bikurum.
FRÉTTIR 57
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015