Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 10
Nú eru komnir hjólheimar í Sólheima
í Reykjavík, því þar hefur verið sett
hjólapumpa með þrýstingsmæli fyrir
utan bókasafnið við samnefnda götu.
Með þessu er verið að stuðla að vist-
vænni ferðamáta og allir eru hvattir
til að drepa á bílunum og hjóla á
bókasafnið. Aldeilis heppilegt ef
vantar loft í dekk.
Ekki bara bækur
Hjólapumpa
Sólheimasafns
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Áhugaverð ferð með skírskotun til sögunnar, en hana leiðir
fararstjóri sem bjó í Austur-Þýskalandi áður en múrinn féll.
Ásamt fróðlegum skoðunarferðum um höfuðborgina Berlín,
verða borgirnar Leipzig og Dresden heimsóttar og þjóðgarðurinn
Sächsische Schweiz, demanturinn við Saxelfi skoðaður.
Verð: 182.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
eh
f.
Fararstjóri: Kristín Jóhannsdóttir
8. - 15. ágúst
LeyndarperlurAustur-Þýskalands
Sumar 16
Örfá sæti laus
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
sími 571 5464
www.tiskuhus.is
Smart
sumarföt
fyrir
smart
konur
Þjóðmenningarbóndi Elín við rekaviðardrumb í Árneshreppi, með mjólk og epli á leið í álfaborgina fyrir aftan.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Það er engin hefðbundinsveitarómantík að bakiákvörðuninni að flytja íÁrneshrepp og búa okkur
mæðgum þar líf. Það er heldur eng-
in hefðbundin rómantík hjá þjóð-
menningarbóndanum, en mig grun-
ar stundum að óafvitandi hafi ég
gifst heilu sveitarfélagi,“ segir Elín
Agla Briem sem flutti ásamt dóttur
sinni norður á Strandir í fyrrasumar
til að gerast þjóðmenningarbóndi.
„Ég er komin aftur því ég bjó í
Árneshreppi um þriggja ára skeið
þegar ég starfaði sem skólastjóri í
Finnbogastaðaskóla fyrir nokkrum
árum. Þá fékk ég áhuga á þessu
samfélagi og hverju það stendur
frammi fyrir. Hér minnkar þjón-
ustan stöðugt, fólki fækkar og lengi
hefur verið talað um að hreppurinn
hljóti að fara í eyði. Til að komast að
því hvernig væri hægt að fá úr
þessu bætt þá las ég mér til um eftir
hverju ráðuneytin vinna, og þar
stendur að ávallt skuli vinna út frá
hugmyndafræði um sjálfbæra þró-
un. Þá eru ákvarðanir ekki teknar
einvörðungu út frá hagrænum sjón-
armiðum, heldur verður líka að taka
til hinnar félagslegu sjálfbærni sam-
félagsins. Fólk kemur svo oft með
hagkvæmnisrökin og spurningarnar
hvers vegna eigi að setja pening í að
þjónusta þessar fáu hræður sem
búa þarna, það sé of dýrt. En sam-
þykkt var þingsályktunartillega árið
2003 um að viðhalda byggð í Árnes-
hreppi, og átti það að vera tíu ára
tilraunaverkefni, með þeim rök-
semdum að það væri sérstakur
menningararfur sem lifði í þessum
hreppi og hann væri dýrmætur fyrir
Þjóðmenningarbóndi
í leit að jarðnæði
Hún segir hagkvæmnisþráhyggju og skammtíma gróðasjónarmið ráða ferðinni í nútímanum og því sé
virðing fyrir því sem gefur okkur lífið, á hverfanda hveli. Nám Elínar Öglu Briem í umhverfis- og auð-
lindafræðum varð til þess að hún flutti aftur á hjara veraldar til að gerast þjóðmenningarbóndi.
Í Gerðubergi í Breiðholti er alltaf
eitthvað áhugavert um að vera,
bæði sýningar og viðburðir. Nú
stendur þar yfir sýningin Fimir fing-
ur í Boganum. Systkinin Fanney,
Óskar Henning og Sigurður Helgi
Valgarðsbörn eru hagleiksfólk gædd
miklum listrænum hæfileikum. Þau
sýna fjölbreytta listmuni og þar má
nefna kríur unnar úr þorskbeinum,
ýmis verk unnin úr kopar svo sem
smágerða rokka, kertastjaka og
laufabrauðsjárn.
Einnig eru á sýningunni silfur-
skartgripir og tréútskurður ásamt
myndverkum unnin í akrýl og vatns-
lit.
Verk systkinanna einkennast af
vönduðu handbragði, og þau eru
unnin af miklum hagleik og ein-
stakri natni og næmni fyrir efni-
viðnum. Allt bókstaflega leikur í
höndum þeirra.
Sýningin stendur til 27. sept-
ember og er opin kl. 8-18 alla virka
daga.
Vefsíðan borgarbokasafn.is
Kría Fagurlega útskorin í fiskbein.
Systkini skera
bæði út í fisk-
bein og tré
Á morgun, fimmtudagskvöld, verða
fyrstu tónleikarnir í fimmtudags-
kósíheitum kaffihússins Café Flóru í
sumar. Café Flóra er í grasagarðinum
í Laugardalnum í Reykjavík og þar er
afar notalegt umhverfi. Ásta Björg,
tónlistarkona og forsprakki hljóm-
sveitarinnar Hinemoa, verður sú
fyrsta með kósíkvöld á morgun og
hefjast tónleikarnir kl. 20 og standa
til 21.30.
Með Ástu verða þeir Arnór Sig-
urðarson á slagverk og gítar, Haf-
steinn Þráinsson á gítar og Birgir
Steinn Theódórsson á bassa. Að-
gangur er ókeypis og allir velkomnir.
Ásta Björg syngur fyrir gesti
Ásta Björg Kemur fram á morgun.
Fimmtudagskósíheit á Flóru
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.