Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 46
SVIÐSLJÓS
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Húsdýragarðurinn fagnaði stór-
afmæli hinn 19. maí síðastliðinn en 25
ár eru nú liðin frá því hann var opn-
aður. Tómas Ósk-
ar Guðjónsson,
forstöðumaður
Fjölskyldu- og
húsdýragarðsins,
segir gengi garðs-
ins með ágætum
en starfsemin hef-
ur verið í stöðugri
uppbyggingu frá
opnun. Fram-
undan er mesta
álagstímabil ársins eins og jafnan á
sumrin.
Líf og fjör í 25 ár
Húsdýragarðurinn var opnaður í
Laugardal hinn 19. maí árið 1990 en
meginmarkmið hans er að veita borg-
arbúum tækifæri til að kynnast betur
íslenskum húsdýrum og búskap-
arháttum. Í garðinum má finna ýmis
íslensk húsdýr, selatjörn, hreindýr,
refi og minka. Á síðustu árum hefur
dýraflóran þó stækkað umfram ís-
lensku húsdýrin með ýmsum teg-
undum skriðdýra, skordýra og frosk-
dýra. Til dæmis flutti slangan Flækja
nýlega í garðinn, en hún er eina lög-
lega slangan á Íslandi.
Tómas segir ungviði dýranna njóta
mestra vinsælda hjá gestum garðs-
ins, en um þessar mundir megi meðal
annars sjá hreindýrakálfa og selkópa
í Laugardalnum.
„Snudduhornið“ nýtur einnig mik-
illa vinsælda en þar geta börn skilið
snuð sín eftir fyrir dýrin þegar þau
hyggjast hætta að nota þau sjálf.
„Hornið hefur hjálpað mörgum for-
eldrunum, það er gríðarlegur fjöldi af
snuddum sem berst hingað. Krakk-
arnir virðast eiga auðveldara með að
gefa snudduna upp á bátinn ef þau
sjá tilgang með því,“ en Tómas segir
hugmyndina hafa sprottið óvænt hjá
starfsmanni garðsins.
Í kjölfar mikilla vinsælda Húsdýra-
garðsins fyrstu starfsárin, reis Fjöl-
skyldugarðurinn við hlið hans árið
1994. Í garðinum má m.a. finna fall-
turn, bílabraut, bátatjörn og veit-
ingasölu. Hann hefur sérstaka um-
hverfisstefnu og því eru leiktækin
flest rafknúin og umhverfisvæn. Fjöl-
skyldugarðurinn hefur tekið miklum
breytingum gegnum árin en hönnun
garðsins hefur þó ávallt skírskotað til
mikilsverðra þátta í menningarsögu
landsins og goðafræðinnar. Þar má
nefna brúna Bifröst sem tengir
garðana tvo saman, en í garðinum má
einnig finna öndvegissúlur og vík-
ingaskip.
Á svæðinu starfa um tuttugu fast-
ráðnir starfsmenn, allt árið um kring.
Yfir sumartímann fjölgar í hópnum
en þá eru stöðugildin sextíu.
Fjölbreytt aðsókn árið um kring
Þótt Fjölskyldugarðurinn sé lok-
aður yfir vetrarmánuðina er Hús-
dýragarðurinn vel sóttur áfram, en
þá fer fram fræðslustarfsemi fyrir
grunn- og leikskólabörn. Boðið er
upp á námskeið þar sem börnunum
gefst kostur á fræðslu um íslensk
húsdýr en einnig framandi dýr, sjáv-
ardýr og villt íslensk spendýr. Vin-
sælast námskeiðanna er Vinnumorg-
unn Húsdýragarðsins, en þá sjá
nemendur í þriðja bekk um dýrin og
sinna þeim hluta úr skóladeginum.
„Aðsóknin hefur aukist hjá fræðslu-
hópum á veturna og skólar alls staðar
af landinu sækja garðinn töluvert,“
segir Tómas og bætir við að aðsóknin
aukist þó á sumrin. Hann segir að að-
almarkhópar garðsins séu fjölskyldur
og fræðsluhópar en gestaflóran sé þó
mjög fjölbreytt. „Ótrúlegt en satt, þá
er töluvert um ung pör leiðast hér
ástfangin um og skoða dýrin,“ bætir
Tómas við og segist ánægður með þá
þróun.
Í upphafi var áætlað að fólk kæmi
þrisvar sinnum á ævinni í garðinn en
sú spá virðist hafa gengið eftir, „Nú
streyma til okkar foreldrar sem
komu hingað sem börn, á fyrstu árum
garðsins og síðan koma afar og ömm-
ur með barnabörnin.“
Áframhaldandi uppbygging
Tómas segir að töluvert verði um
nýjungar í garðinum í sumar. Tekið
verður í notkun nýtt vaðleikjasvæði
fyrir ung börn en einnig hafa gröf-
urnar í garðinum og bátarnir verið
endurnýjuð. Sumaropnun Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðsins lýkur svo
24. ágúst en þá tekur við vetrardag-
skrá Húsdýragarðsins.
Uppbygging verður á næstu árum
í garðinum. „Nýja móttökuhúsið er
fyrsti steinninn í framtíðaruppbygg-
ingu garðsins. Það hefur verið gerð
áætlun um framhaldið,“ en Tómas
segir að næsta skref sé bygging nýs
dýrahúss til rýmisauka fyrir dýrin en
síðan standi til að byggja nýtt
fræðsluhúsnæði, sem vöntun hefur
verið á. Hann sér fyrir sér að garð-
urinn muni í framtíðinni sinna
fræðsluhlutverki sínu enn betur.
Tómas er ánægður með samstarf
sitt við borgaryfirvöld, „Stjórn-
málamenn í meirihluta og minnihluta,
hafa sýnt Húsdýragarðinum einlæg-
an velvilja.“ Menn virðast vinna sam-
an að málefnum Húsdýragarðsins
bætir hann við, en Tómas telur Hús-
dýra- og fjölskyldugarðinn ótvírætt
eiga jafn mikið erindi við borgarlífið í
dag og hann átti við opnun. Fræðsla
um íslensk dýr sé mikilvæg í borg-
inni.
Fjölskrúðug flóra fólks og dýra
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn 25 ára Aðsókn hefur haldist stöðug frá opnun Dýraflóran fer
stækkandi Vetrardagskrá hefur gengið vel síðustu ár Ástfangin pör leggja leið sína í garðinn
46 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Austurveri • Glæsibæ • Húsgagnahöllinni • Mjódd • Smáratorgi • Suðurveri
Hafðu veisluna eftir
þínu höfði!
Skoðaðu úrvalið á
vefverslun okkar
bakarameistarinn.is.
Veisluþjónusta undir stjórn matreiðslumeistarans Skúla Hansen
Er veisla framundan?
Sími 533 3000 bakarameistarinn.is
Fjölskyldu- og húsdýragarð-
urinn er staðsettur í Laugardal.
Hann var stofnaður árið 1990
og hefur starfað óslitið síðan. Í
Húsdýragarðinum má m.a. finna
hesta, kindur, kýr, geitur, svín,
refi og minka en í Fjöl-
skyldugarðinum eru ýmis leik-
tæki og veitingaaðstaða. Í garð-
inum má einnig finna
Vísindaveröld, þar sem gestir
geta gert „sínar eigin vísinda-
uppgötvanir“ og kynnst nátt-
úrulögmálunum. Fjölmargir við-
burðir fara fram í garðinum á
ári hverju, til dæmis keppnin
um sterkasta mann Íslands
ásamt fjölda sjálfstæðra við-
burða en garðurinn heldur einn-
ig mikla jóladagskrá.
Mikið úrval
afþreyingar
FJÖLSKYLDU- OG HÚS-
DÝRAGARÐURINN Í 25 ÁR
Selalaugin Selkópur sleikir sólina og stillir sér upp fyrir gestina.
Ærslabelgur Ung stúlka skemmtir sér vel á Ærslabelgnum en hann var endurnýjaður fyrir sumarið.
Morgunblaðið/Kristinn
Gæðingur Dýrin í garðinum eru gæf en börnum gefst oft kostur návist við
dýrin. Fákur þessi virðist ánægður með heimsókn ungrar telpu á sólardegi.
Tómas Óskar
Guðjónsson