Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 71
UMRÆÐAN 71
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Marimekko
bolur
10,900,-
9.265,-
til í mörgum
litum
Marimekko
taska
18,900,-
16.065,-
Karhu Múmín
hlaupaskór
18.900,-
16.065,-
Múmín
sumarkrús
3.500,-
2.975,-
FINNSKA BÚÐIN, Laugavegi 27 (bakhús), #finnskabudin, 519 6688
FINNSKA BÚÐIN
er 3ára!
Afmælistilboð 8.
- 14. júni
Viltu vinna
frábærar vörur
?
Taktu þátt í
afmælisleiknu
m
okkar á
Facebook
Allar
vörur
-15%
Iittala
Mariskál
120 mm
frá 4.390,-
frá 3.732,-
Í Morgunblaðinu 20.
maí 2015 birtist opið
bréf mitt til Skattrann-
sóknarstjóra þar sem
ég fer fram á upplýs-
ingar um hvort emb-
ættið hafi óskað eftir
gögnum frá Ríkisskatt-
stjóra um þá sem talið
hafa fram ferða-
dagpeninga og fært
kostnað til frádráttar á
móti síðastliðin ár. Ástæða þess að
ég fer fram á svör við þessu er að
þeir sem þekkja hvernig þessum
málum er háttað og þá sérstaklega
varðandi embættismenn og aðra op-
inbera starfsmenn sem og flugliða
vita með vissu að í langflestum til-
vikum er fært mun meira til frá-
dráttar á móti fengnum dagpen-
ingum en sannanlega hefur verið
varið til greiðslu ferðakostnaðar og
þar með greiða viðkomandi aðilar
ekki tekjuskatt af þeim hluta dag-
peninganna sem í raun eru ekki ann-
að en dulbúin laun sem greiða á
tekjuskatt af lögum samkvæmt.
Skattyfirvöld leggja sig í framkróka
um að sjá ekki þau gríðarlegu und-
anskot sem hér eiga sér stað enda
hafa starfsmenn þeirra mikla per-
sónulega hagsmuni af því að við
þessu skattsvikakerfi sé viðhaldið
sem lengst. Ríkisskattstjóri telur sig
þess þó umkominn að setja sér-
stakar reglur varðandi þessa hluti
fyrir þá sem starfa við eigin atvinnu-
rekstur og þá sem tengjast þeim fjöl-
skylduböndum. Þing-
menn missa bæði sjón
og heyrn þegar þessa
hluti ber á góma enda
njóta þeir þessa fyr-
irkomulags því meira
sem þeir ná að spóka
sig erlendis í svoköll-
uðum opinberum er-
indagjörðum. Af þeim
63 þingmönnum sem ég
hef sent tölvupóst til
varðandi þessa hluti
hefur ekki einn einasti
þeirra séð ástæðu til að
svara mér og verður það að teljast
alveg ótrúleg samheldni meðal fólks
sem opinberlega þrátt fyrir mismun-
andi skoðanir kemur fram undir því
yfirskini að vinna við að bæta hag
alls almennings og tryggja jafnræði
þegnanna. Fjármálaráðherra hefur
ekki séð ástæðu til að svara tilboði
mínu um frítt vinnuframlag mitt við
að yfirfara skattframtöl þingmanna
og starfsmanna skattyfirvalda hvað
þetta varðar þrátt fyrir að umrætt
tilboð til hans hafi verið margítrek-
að. Hvað varðar opið bréf mitt til
Skattrannsóknarstjóra í Morgun-
blaðinu 20. maí 2015 þá hefur því enn
ekki verið svarað á sama vettvangi.
Hins vegar hefur mér borist svar í
tölvupósti frá Skattrannsókn-
arstjóra þar sem upplýst er að ekki
hafi verið tekin ákvörðun um að
embættið taki að eigin frumkvæði
meint skattsvik til rannsóknar sem
ég hef bent á. Í raun held ég að rétt-
ara hefði verið að segja að ákvörðun
hafi verið tekin um þetta en að sú
ákvörðun feli í raun í sér að skoða
þessi mál alls ekki. Það er löngu
tímabært að Ríkisskattstjóri breyti
verklagi sínu hvað þessa hluti varðar
og kalli eftir öllum viðeigandi gögn-
um til sönnunar þess að hver og einn
framteljandi færi í raun aðeins til
frádráttar það sem sannanlega er út-
lagður ferðakostnaður og að end-
urálagning fari síðan fram í sam-
ræmi við þau gögn. Ég beini því
þeirri fyrirspurn minni til Ríkis-
skattstjóra hví skatteftirlit með
þessum hlutum er svo slakt sem
raun ber vitni og hvenær vænta
megi þess að kallað verði eftir því að
umræddir aðilar verðir krafðir
gagna um sannanlegan ferðakostnað
sem færður hefur verið til frádrátt-
ar. Þá óska ég einnig eftir upplýs-
ingum frá Ríkisskattstjóra um hvar í
lögum sé að finna heimild fyrir því að
gera ríkari kröfur til aðila í eigin
rekstri um gögn til staðfestingar á
útlögðum kostnaði en aðila sem
starfa hjá hinu opinbera og ótengdra
aðila. Ég beini einnig þeirri spurn-
ingu til Ríkisskattstjóra hvort ekki
sé kominn tími til þess að gyrða sig í
brók og uppræta þessi skattsvik í
eitt skipti fyrir öll óháð því hverjir
eiga í hlut.
Leynigögnin – opið
bréf til ríkisskattstjóra
Eftir Örn
Gunnlaugsson »Er ekki kominn tími
til að gyrða sig í
brók og uppræta þessi
skattsvik í eitt skipti
fyrir öll óháð því hver á í
hlut?
Örn Gunnlaugsson
Höfundur er atvinnurekandi.
Samhjálp félaga-
samtök hafa rekið
gistiskýli fyrir utan-
garðsmenn í áratugi
með góðum og farsæl-
um árangri. Þjónusta
Samhjálpar byggir á
persónulegum
tengslum og miklum
kærleik og umhyggju
gagnvart skjólstæð-
ingum félagsins. Öll
þau ár sem Samhjálp sá um rekstur
Gistiskýlisins komu aldrei upp áföll
eða erfiðleikar í samskiptum Sam-
hjálpar við Þjónustumiðstöð Mið-
borgar og Hlíða, sem heyrir undir
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar.
Samningur Samhjálpar og Þjón-
ustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða
um rekstur Gistskýlisins rann út 28.
febrúar 2015.
Þjónustumiðstöðin auglýsti eftir
áhugasömum aðilum til að reka
Gistiskýlið. Aðeins tveir aðilar skil-
uðu inn umsókn og rekstraráætlun,
en það voru Samhjálp og Hjálpræð-
isherinn í Reykjavík. Lítill munur
var á þessum tveimur tilboðum.
Það var síðan pólitísk ákvörðun
meirihluta Velferðarráðs Reykja-
víkur að borgin sjálf myndi reka
Gistiskýlið, enda er það yfirlýst
stefna Vinstri grænna að borgin
annist sjálf rekstur allra úrræða
sem borgin er með á velferðarsviði.
Tíminn mun svo leiða í ljós hvort
þessi ákvörðun er farsæl fyrir hlut-
aðeigandi aðila.
Nú þegar borgin hefur tekið við
rekstri Gistiskýlisins þakkar Sam-
hjálp öllum stuðningsaðilum, hvort
heldur er einstaklingum
eða fyrirtækjum sem
hafa lagt málinu lið og
staðið að baki félaginu
við rekstur Gistiskýl-
isins. Samhjálp mun
halda áfram því mik-
ilvæga starfi sem félag-
ið vinnur að. Samhjálp
rekur meðferðarheim-
ilið Hlaðgerðarkot, þar
sem að jafnaði eru um
30 manns í meðferð og
60 til 70 á biðlista,
Kaffistofuna í Borgartúni 1, þar
sem um 60.000 máltíðir voru gefnar
skjólstæðingum félagsins á síðasta
ári, áfangaheimilin Brú, Spor og
M18 og Markaðinn í Ármúla 11. Á
vegum Samhjálpar gista um 80
manns í uppábúnum rúmum á
hverri nóttu.
Samhjálp óskar nýjum rekstr-
araðila Gistiskýlisins velfarnaðar og
óskar starfsmönnum og skjólstæð-
ingum Guðs blessunar í vandasömu
starfi. Það má aldrei gleymast að
kærleikur, væntumþykja og hlýja
hefur mikið að segja fyrir þá sem
leita skjóls í Gistiskýlinu.
Með kærri kveðju.
Samhjálp þakkar
áratuga langa sam-
ferð Gistiskýlisins
Eftir Vörð Leví
Traustason
Vörður Leví Traustason
» Það var síðan póli-
tísk ákvörðun meiri-
hluta Velferðarráðs
Reykjavíkur að borgin
sjálf myndi reka Gisti-
skýlið.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samhjálpar.
Mörgum manninum
virðist gleymast það í
dagsins önn, að lífið er
stutt til eilífðar litið.
Venjulega gera menn
sér það ekki ljóst fyrr
en á seinni helmingi
ævinnar, þegar þeir
vilja margir orðið
halda í hverja vikuna
og skynja að þær líða
hraðar með hverju ári
á einhvern óskiljanlegan hátt. Þetta
er eitt af undrum og ráðgátum efri
ára.
Hjarta manns slær ekki að eilífu.
Því er afmarkaður tími. Það slær
rúmlega hundrað þúsund slög á dag,
sem gerir tæplega fjörutíu milljónir
slaga á ári. Ef við gefum okkur að
maðurinn lifi í áttatíu ár, slær hjarta
hans tæplega fjóra milljarða slaga á
mannsævi. Lítum á þetta í krónum
talið.
Til eru menn, sem þykir fjórir
milljarðar ekki miklir peningar. Þeir
vilja meira. Aðrir vinna sér aldrei
inn svo mikið alla ævi. Fjórir millj-
arðar er álíka upphæð og menn
teldu eina krónu fyrir hvert hjarta-
slag dag og nótt án hvíldar í áttatíu
ár, svona rétt til þess að átta sig á
því hversu gríðarlega fjárhæð er um
að ræða, þ.e. króna á hjartaslag.
Tíminn er peningar, segja þeir
miskunnarlaust, sem væru þeir
hjartalausir.
Maðurinn á í kapphlaupi við tím-
ann, jafnvel þó hann sé kominn á
hraðskreiðari bíl, ferðist heimsálfa á
milli samdægurs, sé
með farsímann við
höndina og geti komist í
samband við menn hin-
um megin á hnettinum
og gert samninga við þá
á örfáum mínútum.
Peningasöfnun
manna eru engin tak-
mörk sett. Ég veit að
þeir geta metið hvert
hjartaslag á meira en
krónu og gera það hik-
laust, en þeir geta þó
ekki ávaxtað hjartaslög
sín á sama hátt og krónurnar. Þó
þeir geti verðlagt þau fyrir hærri
upphæðir, því svo sannarlega er
hvert hjartaslag dýrmætt, er það
ekki í þeirra valdi að kaupa æviárin
fyrir peningana sína og framlengja
þau út í hið óendanlega. Þar ráða
önnur öfl. Þau öfl, sem stjórna hin-
um stórkostlegu fyrirbærum náttúr-
unnar eftir settum reglum, svo sem
gangi himintungla, sólaruppkomu og
sólsetri, flóði og fjöru, sumri og vetri
og ævidögum mannsins á jörðu.
Hjartaslag á krónu er há upphæð
fyrir margan manninn, en fyrir aðra
er það og meira ekki nóg. Allir menn
eru þó hjartaslögum sínum háðir,
hvort sem þau eru metin á fleiri eða
færri krónur.
Hjartaslag á krónu
Eftir Einar Ingva
Magnússon
Einar Ingvi Magnússon
»Hjarta manns slær
ekki að eilífu. Því er
afmarkaður tími.
Höfundur er áhugamaður
um mannlífið.
Aukablað alla
þriðjudaga