Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 72
72 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Ég er þakklát. Lífið
er sjaldnast fullkomið
ferli. Það er mótlætið
sem þroskar en það er
atlætið sem ég hef
fengið í lífinu sem ég
er þakklát fyrir. Ég
veiktist af erfiðum
sjúkdómum fyrir 26
árum. Veikindin hafa
markað líf mitt og
mótað skoðanir mínar,
ekki síst um samfélagið sem ég bý í.
Og ég er þakklát fyrir að vera fædd
og uppalin á Íslandi, að þetta land
hafi fóstrað mig. Ég hef lært að
stundum biður maður um of mikið.
Maður vill breyta og bylta en ekki
líta í eigin barm. Stundum verður
maður að lækka kröfurnar en hafa
metnað engu að síður.
Í tísku að níða Ísland niður
Ég kvaka oft um Íslands heilaga
nafn og langar jafnvel að hnýta því
krans úr sólkerfum himnanna eins
og segir í þjóðsöngnum. Því þetta
land og þessi þjóð hefur gefið mér
mikið og ég ætla aldrei að gleyma
því eða halda að lífið sé mikið betra
annars staðar. Og ég er ekki að
drepast úr þjóðerniskennd. En það
er eins og það sé í tísku að níða nið-
ur Ísland. Sumt er ef til vill betra
annars staðar en sumt er verra.
Eins og þegar glæpamenn fleyta
kerlingar með mannslíf á Miðjarð-
arhafinu, fólk sem á þá eina ósk að
fá að lifa betra lífi og í friði. Eins og
þegar 24% spænsku þjóðarinnar
eru atvinnulaus. Eins og þegar sýr-
lensk börn upplifa gríðarlegt umrót
og skelfingu í stríðinu þar og þurfa
að leggja á flótta frá heimalandi
sínu. Eins og þegar þjóðir eins og
Kúrdar, sem eru stærsta ríkislausa
þjóðarbrot heims, berjast fyrir
stofnun ríkis. Svona gæti ég lengi
talið upp.
Mikil þróun hjá fámennri þjóð
Ísland er ekki gallalaust en það
er gott land. Það eru ekki nema 71
ár síðan við urðum lýð-
veldi og kusum að hér
skyldi lýðræði vera
stjórnskipunin og við
þurfum að þróa það
frekar. Jafnvel þótt við
lítum til rúmlega 1100
ára sögu Íslands þá er
hún stutt. Menning-
arríki voru til í mörg
þúsund ár fyrir tímatal
Krists. Hér varð vissu-
lega hrun, í tengslum
við alþjóðlegt fjár-
málahrun þótt fjár-
málalæsi Íslendinga hafi reyndar
ekki verið upp á sitt besta. En það
er langt í frá eina efnahagslega
hrunið eða kreppan sem orðið hef-
ur í sögu Ísland. Móðuramma mín
komst ekki í skólann um tíma þeg-
ar hún var 12 ára því hún átti enga
skó. Hún var fædd árið 1925.
Föðuramma mín fékk mænuveik-
ina og lamaðist árið 1955, þá 34
ára.
Það var ekkert velferðarkerfi
sem tók á móti henni eftir að hún
var komin í hjólastól. Ég hef hins
vegar fengið mjög mikla aðstoð frá
hinu opinbera. Vissulega er
heilbrigðiskerfið okkar í kreppu
eins og er en þar með er ekki sagt
að við höfum ekki metnað til að
gera betur. Menntakerfið hefur
tekið stór stökk fram á við á einni
öld, sérstaklega þegar hugsað er til
þess að fræðsluskylda var ekki inn-
leidd fyrr en 1907. Enn erum við
minnt á það hvað við erum ung þjóð
– og oft óþolinmóð. Við sem þjóð
erum álíka fjölmenn og íbúar í
borginni Malmö í Svíþjóð. Ísland er
ekki og verður ekki best í heimi en
það er engu að síður gott land til
þess að búa á og við skorum hátt á
mörgum sviðum á alþjóðlegum
vettvangi. Við megum ekki gleyma
því. Hins vegar þurfum við, af því
að við erum nútímasamfélag, ávallt
að huga að hinum smæstu og styðja
við, eins og t.d. öryrkja sem hafa
litla eða enga framfærslugetu, og
þeim sem lægstar hafa tekjurnar í
gegnum heilbrigt jöfnunarkerfi.
Það voru utanaðkomandi að-
stæður sem urðu til þess að við ris-
um upp úr öldudal margra alda.
Við byggðum okkar fjárfestingar í
atvinnulífi og í velferðarkerfi eink-
um á tveimur stoðum eftir stríð.
Fisksölu til Evrópu, einkum Bret-
lands, í stríðinu og Marshall-aðstoð
Bandaríkjamanna, sem veitt var til
að styrkja lýðræði og markaðskerfi
ríkja í Evrópu. Við eigum að halda
því áfram, bæði á innanlandsmark-
aði en einnig með innflutningi og
sterkum samskiptum og viðskipta-
samningum við önnur ríki þangað
sem við gætum flutt út okkar
vörur, þjónustu og hugvit. Við eig-
um að stuðla að nýsköpun í at-
vinnuvegum landsins sem orðnir
eru fjölbreyttari en áður og skipu-
leggja til framtíðar, en með vernd-
un náttúrunnar og jarðarinnar að
leiðarljósi. Til þess verðum við að
nota hyggjuvitið og skynsemina.
Fæ örugglega meira til baka
en ég greiði í skatta
Ríkið er bara við – ekki ég eins
og margir virðast halda. Sjóðurinn
okkar sem við köllum ríkissjóð er
takmörkuð lind. Verkefnin eru
mörg hjá lítilli þjóð í dreifbýlu
landi og við þurfum að velja vel í
hvað við setjum fjármagnið. En
það veit ég að miðað við þá skatta
sem ég greiði þá eru þeir örugg-
lega minni en það sem samfélagið
hefur gefið mér og fjölskyldu minni
til baka. Góða menntun sem ég
sjálf greiddi lítið fyrir, heilbrigð-
isþjónustu sem ég hefði aldrei haft
efni á að greiða sjálf úr eigin vasa
auk annarrar aðstoðar velferð-
arkerfisins, sem væri langt um-
fram mín efni. Við verðum áfram
að styrkja þessa innviði íslensks
samfélags og jöfnuðar en um leið
gæta þess að hvatar til fram-
kvæmda og atvinnusköpunar verði
eðlilegir.
Sá sem er reiður hugsar oft ekki
rökrétt. Það verður að rýna til
gagns. Horfum í kringum okkur og
spyrjum: Ef horft er til þeirra 193
þjóða sem eru í Sameinuðu þjóð-
unum, höfum við það almennt svo
slæmt? Þurfum við meira eða vilj-
um við meira?
Að þurfa meira
eða vilja meira?
Eftir Unni H.
Jóhannsdóttir
Unnur H. Jóhannsdóttir
» Ísland er ekki og
verður ekki best í
heimi en það er engu
að síður gott land til
þess að búa á og við
skorum víða hátt á
sviðum á alþjóðavett-
vangi.
Höfundur er kennari, blaðamaður og
diploma í fötlunarfræði.
ER KOMINN TÍMI
Á SJÓNMÆLINGU?
Hamraborg 10 – Sími: 554 3200 – Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14
Traust og góð þjónusta í 19 ár
Úrval af nýjum
umgjörðum frá
Vélstjóri óskast
Vélstjóri óskast á farþegabáta frá Reykjavík í sumar. Unnið er
á vöktum 2-3-2, 9 til 13 tíma vaktir. Viðkomandi þarf að hafa
réttindi á farþegabáta <750kW og hafa lokið STCW grunn-
námskeið ásamt hóp- og neyðarstjórnunar námskeiði
í Slysavarnarskóla sjómanna.
Áhugasamir sendið umsókn með ferilskrá á storf@elding.is
Öll leitum við ham-
ingjunnar og þráum
að fá að njóta hennar.
Stundum leitum við
reyndar langt yfir
skammt. Ætlum yfir
lækinn til að sækja
vatnið eða finnst
grasið grænna í görð-
um nágrannans.
Hamingjan felst í
því að leitast við að
lifa í kærleika, friði og sátt. Lifa í
meðvituðu þakklæti og með fyr-
irgefandi hugarfari. Hún felst í því
að gefa en einnig því að rækta
með sér þá list að kunna að þiggja.
Í því að vera auðmjúkur, með já-
kvæðu hugarfari, skilningsríkur,
uppörvandi og hvetjandi. Þannig
og aðeins þannig náum við áttum
og raunverulegum sáttum við okk-
ur sjálf og umhverfi okkar.
Með vorið vistað í sálinni
Þótt á móti kunni að blása og
kuldi og trekkur taki völdin um
stund svo það næðir um, hafðu þá
hugfast að það mun birta til og
vora á ný. Því er svo nauðsynlegt
að vera með vorið vistað í sálinni,
sólina og eilíft sumar í hjarta.
Myrkrið, kuldinn og óttinn
draga nefnilega úr okkur kjark.
Gera okkur dofin, huglaus og
máttlaus og ræna okkur gleðinni.
En trúnni, voninni og kærleik-
anum fylgir líf, styrkur, þrek og
baráttugleði.
Varpaðu hamingjunni
ekki frá þér
Varpaðu hamingjunni ekki frá
þér vegna vanlíðunar, vantrúar og
vonleysis eða vegna neikvæðni,
þröngsýni eða skilningsleysis.
Njóttu þess að veita af örlæti
hinum fegurstu gjöfum úr sál-
arsjóði hjartans svo straumur hins
lífgefandi anda finni sér farveg og
berist frá hjarta til hjarta.
Ef allir spyrðu sig stöðugt, hvað
get ég gert til að fólkinu í kringum
mig geti liðið sem best og gengju
með þá hugsjón út í
daginn að hafa það
hreinlega að markmiði
að gleðja náungann,
fólkið sitt og þau sem
á veginum verða þá
yrðu allir hamingju-
samari og tilveran
tæki að fyllast tilgangi
og gleði.
Tölum saman og
knúsumst þótt ólík
séum og ósammála um
svo margt. Við erum
öll á sömu leið og þurfum á hvert
öðru að halda. Samgleðjumst og
verum uppörvandi og hvetjandi.
Leitumst við að laða það besta
fram í eigin fari og samferða-
manna okkar.
Verum ekki feimin
við framtíðina
Verum því ekki feimin við fram-
tíðina. Guð gefi okkur hugrekki til
að stíga inn í hana. Látum um
okkur muna náunganum, sjálfum
okkur og samfélaginu til góðs.
Látum hamingjuna ekki vera eitt-
hvert marklaust hugtak. Opnum
augun fyrir henni svo henni verði
ekki kalt og einmana á óræðum
slóðum.
Hamingjan þarf á þér að halda
og þú á henni.
Elskum á meðan við lifum. Elsk-
um fólkið okkar á meðan það lifir.
Því þegar það er farið er of seint
að sýna því virðingu og umhyggju,
kærleika og ást svo það fái notið
þess.
Hamingjan þarf
á þér að halda
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
» Verum uppörvandi
og hvetjandi. Leit-
umst við að laða það
besta fram í eigin fari og
samferðamanna okkar.
Elskum á meðan við lif-
um!
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og áhugamaður um lífið.
Mikið finnst mér
skrítið að það
komi sérstakur
sumartími á akst-
ur strætó. Minn
vinnutími breytist
ekki þótt það
komi sumar? En
ykkar?
Farþegi.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Strætó
Strætó Biðin eftir strætó getur stundum verið frekar löng.