Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 104
104 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Þetta er mikil og dramatísk efnis-
skrá með áhugaverðri uppbygg-
ingu,“ segir Kristín Mjöll Jakobs-
dóttir, einn aðstandenda Klassík í
Vatnsmýrinni, en aðrir tónleikar í
tónleikaröðinni verða haldnir í kvöld,
miðvikudaginn 10. júní, klukkan 20 í
Norræna húsinu.
Þar munu Finn-
arnir Marko Ylö-
nen, sem kemur
til með að leika á
selló, og píanó-
leikarinn Martti
Rautio stíga á
svið.
Hafa unnið
mikið saman
„Tvímenning-
arnir eru báðir í
fremstu röð. Ylö-
nen er staddur
hér á landi til að
kenna við Al-
þjóðlegu tónlist-
arakademíuna í
Hörpu en tónleik-
arnir eru haldnir í
samstarfi við
hana. Heima fyrir
starfar hann sem
prófessor við Síbelíusar-akadem-
íuna. Ylönen hefur leikið mikið í
gegnum tíðina og verið mikið í
kammermúsík auk þess sem hann
hefur átt flottan sólóferil. Síbelíusar-
akademían er mjög virt og það tekur
langan tíma að komast þar að, það
segir nokkuð um hans ágæti,“ segir
Kristín Mjöll.
Martti Rautio, sem starfar einnig
við Síbelíusar-akademíuna sem fyr-
irlesari í kammertónlist, heldur yfir
fimmtíu tónleika á hverju ári um all-
an heim. Tvímenningarnir hafa starf-
að mikið saman undanfarin ár og gef-
ið út hljómdiska með fjölbreyttri
tónlist fyrir selló og píanó. Tónverkin
sem þeir flytja eru samin rétt fyrir
og um fyrri heimstyrjöld, eða frá ár-
unum 1912 til 1915, og eru eftir tón-
skáldin Síbelíus, Prokofiev, Kodaly,
Janacek, Webern og Debussy.
Starfsárið helgað söngkonum
Klassík í Vatnsmýrinni er tón-
leikaröð Félags íslenskra tónlistar-
manna – klassískrar deildar FÍH í
samvinnu við Norræna húsið. Tón-
leikaröðin leggur áherslu á norrænt
og alþjóðlegt samstarf. Markmiðið
með tónleikaröðinni er að gefa
áheyrendum tækifæri til að hlýða á
fyrsta flokks innlenda og erlenda
listamenn með áherslu á einleik-
arann annars vegar og kamm-
ertónlist hins vegar.
„Tónleikaröðin leggur áherslu á
einleikara, þá sérstaklega á alþjóð-
lega vísu. Að því leyti eru tónleikar
finnsku tvímenninganna í samræmi
við það sem við höfum verið að leggja
upp með og það sem koma skal. Við
verðum þó með nokkrar söngkonur
síðar á árinu, tónleikarnir að þessu
sinni gefa kannski ekki tóninn fyrir
restina á árinu þegar litið er til þess,“
segir hún en starfsárið 2015 verður
að hluta til helgað söngkonum í til-
efni af því að hundrað ár eru liðin frá
því að konur fengu kosningarétt.
Nokkrir tónleikar á döfinni
„Þetta er því kannsi hálfgert
kvennaár hjá okkur. Við stillum
þessum finnsku körlum þó upp á
móti konunum,“ segir Kristín Mjöll.
Í september mun sænska sópran-
söngkonan Gitta-Maria Sjöberg og
danski píanóleikarinn Irene Hasager
halda tónleika á vegum tónleikarað-
arinnar. Jón Sigurðsson leikur síðan
heila dagskrá með verkum eftir hið
merka píanótónskáld Alexander
Scriabin í október en hundrað ár eru
liðin frá því að hann lést. Starfsárinu
kemur síðan til með að ljúka í nóv-
ember með því að Auður Gunn-
arsdóttir sópran og Helga Bryndís
Magnúsdóttir píanóleikari flytja óp-
eruna Mannsröddin eftir Francis
Poulenc.
Miðar á tónleika kvöldsins eru
seldir við innganginn.
Sellóleikari Ylönen starfar líka sem prófessor við Síbelíusar-akademíuna.
Dramatík í dag-
skrá tvímenninga
Marko Ylönen og Martti Rautio með
tónleika í Norræna húsinu í kvöld
Martti
Rautio
Kristín Mjöll
Jakobsdóttir
Stórfyrirtækið Apple hefur kynnt
til sögunnar nýtt „app“, þ.e. smá-
forrit, sem nefnist Apple Music og
mun keppa við tónlistarstreymis-
veitur á borð við Spotify og Tidal.
Með Apple Music mun fólk geta
streymt lögum og tónlistarmynd-
böndum, hlustað á netútvarpsstöð-
ina Beats 1 sem stýrt verður af
þekktum plötusnúðum og þátta-
gerðarmönnum úr útvarpi og tón-
listarmenn munu geta deilt óút-
gefnum lögum sínum og öðru efni
með notendum. Þá geta notendur
notið þeirrar þjónustu að láta mæla
með tónlist fyrir sig og þá bæði af
starfsmönnum Apple og þar til
gerðum forritum. Apple Music
verður hleypt af stokkunum 30.
júní í yfir 100 löndum og mun mán-
aðaráskrift kosta það sama og að
Spotify, 9,99 dollara og 14,99 doll-
ara fyrir allt að sex manna fjöl-
skyldu, tæpar 2.000 krónur.
Tónlist Tim Cook, forstjóri Apple,
kynnti Apple Music í fyrradag.
Apple keppir við
Spotify og Tidal
AFP
San Andreas 12
Jarðskjálfti ríður yfir
Kaliforníuríki og þarf þyrlu-
flugmaðurinn Ray að bjarga
dóttur sinni.
Metacritic 43/100
IMDB 6,7/10
Laugarásbíó 20.00
Sambíóin Álfabakka 17.30,
17.30, 18.30, 20.00, 20.00,
21.00, 22.30, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 17.30,
20.00, 22.30
Tomorrowland 12
Casey er venjuleg stelpa
sem finnur nælu sem leiðir
hana í framtíðarheim þar
sem gáfaðasta fólk heims
reynir að bæta framtíð
mannkyns.
Metacritic 60/100
IMDB 6,9/10
Sambíóin Álfabakka 17.20,
20.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.20
Sambíóin Akureyri 17.30
Sambíóin Keflavík 17.20
Spy 12
Susan Cooper er hógvær
starfsmaður CIA; hún vinnur
í greiningardeildinni en er í
rauninni hugmyndasmiður-
inn á bak við hættulegustu
verkefni stofnunarinnar.
Metacritic 84/100
IMDB 7,4/10
Laugarásbíó 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.20,
20.00, 22.35
Smárabíó 17.30, 20.00,
22.40
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.20
Good Kill 16
Herflugmaðurinn Thomas Eg-
an hefur þann starfa að ráð-
ast gegn óvinum Bandaríkj-
anna með drónum sem hann
flýgur úr öruggu herstöðv-
arskjóli, fjarri átakasvæðinu
sjálfu.
Metacritic 65/100
IMDB 6,3/10
Sambíóin Álfabakka 22.55
Hot Pursuit 12
Vanhæf lögreglukona þarf að
vernda ekkju eiturlyfjasala
fyrir glæpamönnum og
spilltum löggum.
Metacritic 49/100
IMDB 3,2/10
Sambíóin Kringlunni 18.00,
20.00
Avengers: Age of
Ultron 12
Þegar Tony Stark reynir að
endurvekja gamalt friðar-
gæsluverkefni fara hlutirnir
úrskeiðis og það er undir
Hefnendunum komið að
stöðva áætlanir hins illa
Ultrons.
Morgunblaðið bbbmn
IMDB 9,3/10
Sambíóin Álfabakka 17.00,
20.00.
Pitch Perfect 2 12
Stúlkurnar í sönghópnum
The Barden Bellas eru
mættar aftur.
Morgunblaðið bbbmn
IMDB 7,2/10
Smárabíó 20.00, 22.30
Child 44 16
Brottrekinn sovéskur herlög-
reglumaður rannsakar rað-
morð á börnum.
Morgunblaðið bmnnn
IMDB 5,8/10
Sambíóin Kringlunni 22.00
Loksins heim Geimveran seinheppna Ó
kemur til jarðar og hittir hina
ráðagóðu Tátilju, sem sjálf
leitar móður sinnar sem
rænt var af geimverum.
Metacritic 48/100
IMDB 6,7/10
Smárabíó 15.30, 17.45
Ástríkur á
Goðabakka Júlíus Sesar ákveður að
reisa glænýja borg til að um-
kringja Gaulverjabæ.
IMDB 7,0/10
Smárabíó 15.30
Ópera:
La Bohéme Háskólabíó 18.15
Fúsi 10
Fúsi er liðlega fertugur og
býr einn með móður sinni.
Líf hans er í afar föstum
skorðum og fátt kemur á
óvart.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 64/100
IMDB 7,7/10
Bíó Paradís 18.00
Human Capital
Bíó Paradís 22.15
Still Alice
Bíó Paradís 18.00
The New Girlfriend
Bíó Paradís 20.00
Mr. Turner
Bíó Paradís 20.00
Wild Tales
Bíó Paradís 17.45
What We Do in the
Shadows
Bíó Paradís 23.00
The Arctic Fox- Still
Surviving
Bíó Paradís 20.00, 21.00
París Norðursins
Bíó Paradís 22.00
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is
Kvikmyndir
bíóhúsanna
Eftir að heimurinn hefur gengið í gegn-
um mikla eyðileggingu er hið mannlega
ekki lengur mannlegt. Í þessu umhverfi
býr Max, fámáll og fáskiptinn bardaga-
maður.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 88/100
IMDB 9,3/10
Sambíóin Álfabakka 17.20, 20.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30
Mad Max: Fury Road 16
Bræðurnir Gummi og Kiddi eru sauð-
fjárbændur og hafa ekki talast við
áratugum saman.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 83/100
IMDB 8,2/10
Laugarásbíó 16.00, 18.00, 20.00
Smárabíó 20.00, 22.10
Borgarbíó Akureyri 17.40
Hrútar 12
Á eyjunni Isla Nublar hefur nú ver-
ið opnaður nýr garður, Jurassic
World. Viðskiptin ganga vel þang-
að til að nýræktuð risaeðlutegund
ógnar lífi fleiri hundruð manna.
IMDB 8,6/10
Laugarásbíó 17.00, 20.00, 22.35
Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00,
22.35
Sambíóin Keflavík 20.00
Smárabíó 15.30, 17.15, 17.15, 20.00, 20.00, 22.40, 22.40
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.40, 20.00, 22.20
Jurassic World 12