Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 73
UMRÆÐAN 73
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Savana Junior
Kuldaþol -15°C
Þyngd 0,95 kg
VERÐ 11.995,-
Trekking
Kuldaþol -20°C
Þyngd 1,65 kg
Verð kr. 13.995,-
lÍs en ku
ALPARNIR
s
FAXAFENI 8, 108 REYKJAVÍK • SÍMI 534 2727 • ALPARNIR@ALPARNIR.IS • WWW.ALPARNIR.IS
20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM TJÖLDUM
Á FIMMTUDAG
Micra
Kuldaþol -14°C
Þyngd 0,95 kg
Verð kr. 16.995,-
Kúlutjöld - fjölskyldutjöld - göngutjöld
ÖLL TJÖLD TIL S
ÝNIS Í SAL
Heilbrigð-
isráðherra Póllands,
Ewa Kopaca, tók þá
ákvörðun að kaupa
ekki óöruggt bóluefni
gegn svínaflensu þar
sem lítið sem ekkert
af upplýsingum var
að finna í leiðbeining-
unum. Hér heima var
byrjað að flytja okk-
ur þau ósannindi, að
„bóluefnið gegn
svínaflensu sé öruggt“ (Vísir 6.
sept. 2009). Lyfjastofnun Evrópu
veitti markaðsleyfi eingöngu undir
farsóttarkringumstæðum og aug-
lýsti bóluefnið aldrei öruggt.
Hræðsluáróðurinn frá embætti
landlæknis fékk hér forgang í fjöl-
miðlum, og með þeim áróðri, að
„782 Íslendingar gætu látist úr
svínaflensu“ (DV 2009). En miðað
við að 60 þúsund manns höfðu
sýkst (Vísir 20. nóv. 2010) áttu
menn von á því að allt að 140
manns gætu látist, en þetta var
ekki í neinu samræmi við hræðslu-
áróðurinn. Þrátt fyrir að ekki væru
neinar upplýsingar fyrir hendi í
fylgiseðlum mælti embætti land-
læknis með bólusetningu fyrir
barnshafandi konur. Barnshafandi
konur voru hér flokkaðar í for-
gangshóp, og það þrátt fyrir að
niðurstöður dr. Erics Beeths
sýndu fram á að bóluefnið Pan-
demrix ylli vansköpun og fóst-
urmissi hjá rottum. Hérna heima
heyrði maður svo um fósturmissi
hjá konum, en Þrýstihópur skipu-
lagðra kvenna (National Coalition
of Organized Women) gaf það út,
að ekki færri en 3.587
fósturlát og andvana
fæðingar hefðu átt sér
stað eftir bólusetn-
ingar gegn svínaflensu
í heiminum. Banda-
ríska umhverfisstofn-
unin varar barnshaf-
andi konur við 18 mcg
af kvikasilfri í skelfiski
og túnfiski, en hér
þekkist ekki ennþá að
vara við þrátt fyrir að
25 mcg af kvikasilfri
séu í svona flensubólu-
efnum. Í leiðbeiningum
með bóluefninu voru ekki heldur
neinar upplýsingar um börn og
unglinga yngri en 18 („No Data“)
og síðan var ekkert af upplýs-
ingum yfir 60 ára og eldri, en
þetta segir okkur að bóluefnið var
ekki öruggt.
Ábyrgðarleysi og léleg til-
kynningaskylda til almennings
Allt að 800 manns fengu sjálfs-
ónæmissjúkdóminn drómasýki eftir
Pandemrix, og að minnsta kosti
þrjú tilfelli komu upp hér á landi,
en eins og gefur að skilja kom ekki
upp eitt einasta tilfelli í Póllandi.
Embætti landlæknis var algjörlega
ósammála því að bóluefni gæti
valdið sjálfsónæmissjúkdómum á
borð við gigt og svefntruflanir
o.s.frv. En fólk sem haldið er þess-
um sjúkdómum í dag talar á síð-
unni „Levet efter sprutan Pandem-
rix“ ekki um neitt annað en þessa
sjálfsónæmissjúkdóma og tengsl
skvalen (squalen) við þá. Af hverju
var okkur ekkert sagt frá þessari
áhættu fyrr? Frá 26. maí 2011 að
telja var búið að skrá inn í Eudra-
Vigilance-gagnagrunninn alls 281
tilfelli drómasýki eftir bólusetn-
ingar og af þeim komu 185 tilfelli
upp í Svíþjóð og Finnlandi og hin
96 drómasýkistilfellin höfðu komið
upp í Frakklandi, Noregi, Þýska-
landi, Sviss, Hollandi, Portúgal, Ír-
landi og Bretlandi. Meira en fimm
mánuðum síðar voru sóttvarn-
arlæknar hér að reyna að koma
inn þeim ósannindum, að „í Finn-
landi og Svíþjóð tengdist bólusetn-
ing með Pandemrix-drómasýki hjá
ungu fólki“. Þessi tengsl hafa hins
vegar ekki sést í öðrum löndum
þrátt fyrir milljónir bólusetninga
og hafa heldur ekki sést á Íslandi.“
(FB 27. des. 2011.) Þannig að allt
frá öðrum þjóðum en Svíþjóð og
Finnlandi í grunninum höfðu sótt-
varnarlæknar ekki hugmynd um
eða litu á sem lygar, rétt eins og
hin þrjú skráðu drómasýkistilfelli
hér á landi frá 2. mars 2011 væru
bara lygar. Það er greinilegt að
stefnan var hér að hætta ekki
bólusetningum fyrr en bóluefnið
væri útrunnið. Í stað þess að ríkið
borgi nú þessar 30 milljónir í
skaðabætur eftir úrskurð ættu yf-
irmenn sóttvarna, sem lýstu því yf-
ir að bóluefnið væri öruggt, að
bjóðast til þess að greiða þessar
skaðabætur úr eigin vasa!
Áhættan meiri en
einhver vörn
Ljóta leyndarmálið sem Mike
Adams talar um er að af öllum
dauðsföllum af völdum svínaflensu
höfðu 20% áður verið bólusett, sem
segir okkur að Pandemrix-
bóluefnið virkaði ekki neitt, rétt
eins og inflúensubóluefnið í ár, sem
virkaði ekki. Embætti landlæknis
tekur lítið sem ekkert mark á upp-
lýsingum úr VARES-gagnagrun-
inum, en Gayle DeLong prófessor,
sem hefur þó skoðað VARES-
grunninn, segir að af 50 þúsund
tilkynningum um aukaverkanir
hafi hann fundið nærri því 2.400 al-
varleg tilfelli og fleiri en 1.100
dauðsföll eftir inflúensubólusetn-
ingar. (Hafið í huga að aðeins brot
af öllum aukaverkunum eftir bólu-
setningar er skráð í VARES-
grunninn.) Há tíðni Guillan Barré-
sjúkdómsins, Bell’s palsy og tauga-
sjúkdóma eftir bólusetningar er
það sem er sammerkt þessum
bólusetningum, sjá vaccineriskaw-
areness.com/Swine-Flu-Epidemic-
H1N1-Vaccine-Deaths-and-
Injuries. Þeir hjá embætti land-
læknis eru mikið fyrir að koma inn
áhættusömum bóluefnum, rétt eins
og t.d. HPV-bóluefninu, er dr.
Gayle DeLong talar um að tíðnin á
alvarlegum aukaverkunum sé
125,23 á hverjar 100 þúsund HPV-
bólusetningar, og þess vegna verð-
ur reynt að koma inn fleiri áhættu-
sömum gerviónæmisaðgerðum (Ar-
tifical immunity). Nú og það að
bóluefni geti framkallað gervi-
ónæmi er ekki sönnun fyrir því að
bóluefnið virki gegn sjúkdómum,
og það er rangt að auglýsa að
bóluefni séu örugg og virki, þegar
það er ekkert sem styður það.
Bóluefnaskaði og auglýst öruggt bóluefni
Eftir Þorstein Sch.
Thorsteinsson » Allt að 800 manns
fengu sjálfsónæm-
issjúkdóminn dróma-
sýki eftir Pandemrix.
Þorsteinn Sch.
Thorsteinsson
Höfundur er margmiðlunarfræðingur
og meðlimur í Félagi áhugamanna um
bólusetningar.
BRIDS
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
brids@mbl.is
Bridsfélag eldri boragara
í Hafnarfirði
Föstudaginn 5. júní var spilaður
tvímenningur með þátttöku 24 para.
Efstu pör í N/S (% skor):
Bjarnar Ingimarss. - Bragi Björnss. 58,3
Erla Sigurjónsd. - Jóhann Benediktss. 53,9
Skarphéðinn Lýðss. - Stefán Ólafsson 52,5
Bjarni Þórarinss. - Sigfús Skúlason 52,3
Örn Ingólfsson - Örn Isebarn 52,1
A-V
Kristrún Stefánsd. - Sverrir Gunnarss.
63,2
Tómas Sigurjss. - Björn Svavarss. 61,1
Anton Jónsson - Ólafur Ólafsson . 53,7
Auðunn Guðmss. - Guðm. Sigursteinss. 51,9
Birgir Sigurðss. - Jón Svan Sigurðss. 48,8
BFEH spilar á þriðjudögum og
föstudögum í félagsheimili eldri
borgara í Hafnarfirði að Flata-
hrauni 3. Spilamennska byrjar kl.
13. Keppnisstjóri er Sveinn R. Ei-
ríksson og hjálpar hann til við
myndun para ef spilarar mæta stak-
ir. Allir spilarar eru velkomnir.
Heimasíða BFEH er:
www.bridge.is/BFEH
Sautján borð hjá FEBR
Mánudaginn 8. júní var spilaður
tvímenningur á 17 borðum hjá
bridsdeild Félags eldri borgara í
Reykjavík.
Efstu pör í N/S
Hrafnh. Skúlad. – Guðm. Jóhannsson 403
Guðm. Sigursteinss. – Unnar Guðmss. 377
Magnús Oddss. – Oliver Kristófersson 370
Ágúst Helgason – Haukur Harðarson 365
A/V
Þórir Sigurbjörnss. – Ásta Jónsd. 367
Logi Þormóðsson – Björn Arnarson 360
Bergljót Gunnarsd. – Gróa Guðnad. 345
Óli Gíslason – Magnús Jónsson 339
Spilað er í Síðumúla 37, mánu-
daga og fimmtudaga kl. 13.