Morgunblaðið - 10.06.2015, Page 73

Morgunblaðið - 10.06.2015, Page 73
UMRÆÐAN 73 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015 Savana Junior Kuldaþol -15°C Þyngd 0,95 kg VERÐ 11.995,- Trekking Kuldaþol -20°C Þyngd 1,65 kg Verð kr. 13.995,- lÍs en ku ALPARNIR s FAXAFENI 8, 108 REYKJAVÍK • SÍMI 534 2727 • ALPARNIR@ALPARNIR.IS • WWW.ALPARNIR.IS 20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM TJÖLDUM Á FIMMTUDAG Micra Kuldaþol -14°C Þyngd 0,95 kg Verð kr. 16.995,- Kúlutjöld - fjölskyldutjöld - göngutjöld ÖLL TJÖLD TIL S ÝNIS Í SAL Heilbrigð- isráðherra Póllands, Ewa Kopaca, tók þá ákvörðun að kaupa ekki óöruggt bóluefni gegn svínaflensu þar sem lítið sem ekkert af upplýsingum var að finna í leiðbeining- unum. Hér heima var byrjað að flytja okk- ur þau ósannindi, að „bóluefnið gegn svínaflensu sé öruggt“ (Vísir 6. sept. 2009). Lyfjastofnun Evrópu veitti markaðsleyfi eingöngu undir farsóttarkringumstæðum og aug- lýsti bóluefnið aldrei öruggt. Hræðsluáróðurinn frá embætti landlæknis fékk hér forgang í fjöl- miðlum, og með þeim áróðri, að „782 Íslendingar gætu látist úr svínaflensu“ (DV 2009). En miðað við að 60 þúsund manns höfðu sýkst (Vísir 20. nóv. 2010) áttu menn von á því að allt að 140 manns gætu látist, en þetta var ekki í neinu samræmi við hræðslu- áróðurinn. Þrátt fyrir að ekki væru neinar upplýsingar fyrir hendi í fylgiseðlum mælti embætti land- læknis með bólusetningu fyrir barnshafandi konur. Barnshafandi konur voru hér flokkaðar í for- gangshóp, og það þrátt fyrir að niðurstöður dr. Erics Beeths sýndu fram á að bóluefnið Pan- demrix ylli vansköpun og fóst- urmissi hjá rottum. Hérna heima heyrði maður svo um fósturmissi hjá konum, en Þrýstihópur skipu- lagðra kvenna (National Coalition of Organized Women) gaf það út, að ekki færri en 3.587 fósturlát og andvana fæðingar hefðu átt sér stað eftir bólusetn- ingar gegn svínaflensu í heiminum. Banda- ríska umhverfisstofn- unin varar barnshaf- andi konur við 18 mcg af kvikasilfri í skelfiski og túnfiski, en hér þekkist ekki ennþá að vara við þrátt fyrir að 25 mcg af kvikasilfri séu í svona flensubólu- efnum. Í leiðbeiningum með bóluefninu voru ekki heldur neinar upplýsingar um börn og unglinga yngri en 18 („No Data“) og síðan var ekkert af upplýs- ingum yfir 60 ára og eldri, en þetta segir okkur að bóluefnið var ekki öruggt. Ábyrgðarleysi og léleg til- kynningaskylda til almennings Allt að 800 manns fengu sjálfs- ónæmissjúkdóminn drómasýki eftir Pandemrix, og að minnsta kosti þrjú tilfelli komu upp hér á landi, en eins og gefur að skilja kom ekki upp eitt einasta tilfelli í Póllandi. Embætti landlæknis var algjörlega ósammála því að bóluefni gæti valdið sjálfsónæmissjúkdómum á borð við gigt og svefntruflanir o.s.frv. En fólk sem haldið er þess- um sjúkdómum í dag talar á síð- unni „Levet efter sprutan Pandem- rix“ ekki um neitt annað en þessa sjálfsónæmissjúkdóma og tengsl skvalen (squalen) við þá. Af hverju var okkur ekkert sagt frá þessari áhættu fyrr? Frá 26. maí 2011 að telja var búið að skrá inn í Eudra- Vigilance-gagnagrunninn alls 281 tilfelli drómasýki eftir bólusetn- ingar og af þeim komu 185 tilfelli upp í Svíþjóð og Finnlandi og hin 96 drómasýkistilfellin höfðu komið upp í Frakklandi, Noregi, Þýska- landi, Sviss, Hollandi, Portúgal, Ír- landi og Bretlandi. Meira en fimm mánuðum síðar voru sóttvarn- arlæknar hér að reyna að koma inn þeim ósannindum, að „í Finn- landi og Svíþjóð tengdist bólusetn- ing með Pandemrix-drómasýki hjá ungu fólki“. Þessi tengsl hafa hins vegar ekki sést í öðrum löndum þrátt fyrir milljónir bólusetninga og hafa heldur ekki sést á Íslandi.“ (FB 27. des. 2011.) Þannig að allt frá öðrum þjóðum en Svíþjóð og Finnlandi í grunninum höfðu sótt- varnarlæknar ekki hugmynd um eða litu á sem lygar, rétt eins og hin þrjú skráðu drómasýkistilfelli hér á landi frá 2. mars 2011 væru bara lygar. Það er greinilegt að stefnan var hér að hætta ekki bólusetningum fyrr en bóluefnið væri útrunnið. Í stað þess að ríkið borgi nú þessar 30 milljónir í skaðabætur eftir úrskurð ættu yf- irmenn sóttvarna, sem lýstu því yf- ir að bóluefnið væri öruggt, að bjóðast til þess að greiða þessar skaðabætur úr eigin vasa! Áhættan meiri en einhver vörn Ljóta leyndarmálið sem Mike Adams talar um er að af öllum dauðsföllum af völdum svínaflensu höfðu 20% áður verið bólusett, sem segir okkur að Pandemrix- bóluefnið virkaði ekki neitt, rétt eins og inflúensubóluefnið í ár, sem virkaði ekki. Embætti landlæknis tekur lítið sem ekkert mark á upp- lýsingum úr VARES-gagnagrun- inum, en Gayle DeLong prófessor, sem hefur þó skoðað VARES- grunninn, segir að af 50 þúsund tilkynningum um aukaverkanir hafi hann fundið nærri því 2.400 al- varleg tilfelli og fleiri en 1.100 dauðsföll eftir inflúensubólusetn- ingar. (Hafið í huga að aðeins brot af öllum aukaverkunum eftir bólu- setningar er skráð í VARES- grunninn.) Há tíðni Guillan Barré- sjúkdómsins, Bell’s palsy og tauga- sjúkdóma eftir bólusetningar er það sem er sammerkt þessum bólusetningum, sjá vaccineriskaw- areness.com/Swine-Flu-Epidemic- H1N1-Vaccine-Deaths-and- Injuries. Þeir hjá embætti land- læknis eru mikið fyrir að koma inn áhættusömum bóluefnum, rétt eins og t.d. HPV-bóluefninu, er dr. Gayle DeLong talar um að tíðnin á alvarlegum aukaverkunum sé 125,23 á hverjar 100 þúsund HPV- bólusetningar, og þess vegna verð- ur reynt að koma inn fleiri áhættu- sömum gerviónæmisaðgerðum (Ar- tifical immunity). Nú og það að bóluefni geti framkallað gervi- ónæmi er ekki sönnun fyrir því að bóluefnið virki gegn sjúkdómum, og það er rangt að auglýsa að bóluefni séu örugg og virki, þegar það er ekkert sem styður það. Bóluefnaskaði og auglýst öruggt bóluefni Eftir Þorstein Sch. Thorsteinsson » Allt að 800 manns fengu sjálfsónæm- issjúkdóminn dróma- sýki eftir Pandemrix. Þorsteinn Sch. Thorsteinsson Höfundur er margmiðlunarfræðingur og meðlimur í Félagi áhugamanna um bólusetningar. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson brids@mbl.is Bridsfélag eldri boragara í Hafnarfirði Föstudaginn 5. júní var spilaður tvímenningur með þátttöku 24 para. Efstu pör í N/S (% skor): Bjarnar Ingimarss. - Bragi Björnss. 58,3 Erla Sigurjónsd. - Jóhann Benediktss. 53,9 Skarphéðinn Lýðss. - Stefán Ólafsson 52,5 Bjarni Þórarinss. - Sigfús Skúlason 52,3 Örn Ingólfsson - Örn Isebarn 52,1 A-V Kristrún Stefánsd. - Sverrir Gunnarss. 63,2 Tómas Sigurjss. - Björn Svavarss. 61,1 Anton Jónsson - Ólafur Ólafsson . 53,7 Auðunn Guðmss. - Guðm. Sigursteinss. 51,9 Birgir Sigurðss. - Jón Svan Sigurðss. 48,8 BFEH spilar á þriðjudögum og föstudögum í félagsheimili eldri borgara í Hafnarfirði að Flata- hrauni 3. Spilamennska byrjar kl. 13. Keppnisstjóri er Sveinn R. Ei- ríksson og hjálpar hann til við myndun para ef spilarar mæta stak- ir. Allir spilarar eru velkomnir. Heimasíða BFEH er: www.bridge.is/BFEH Sautján borð hjá FEBR Mánudaginn 8. júní var spilaður tvímenningur á 17 borðum hjá bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík. Efstu pör í N/S Hrafnh. Skúlad. – Guðm. Jóhannsson 403 Guðm. Sigursteinss. – Unnar Guðmss. 377 Magnús Oddss. – Oliver Kristófersson 370 Ágúst Helgason – Haukur Harðarson 365 A/V Þórir Sigurbjörnss. – Ásta Jónsd. 367 Logi Þormóðsson – Björn Arnarson 360 Bergljót Gunnarsd. – Gróa Guðnad. 345 Óli Gíslason – Magnús Jónsson 339 Spilað er í Síðumúla 37, mánu- daga og fimmtudaga kl. 13.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.