Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 92
92 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Gerður Kristný rithöfundur er að ljúka við skáldsögu fyrir börná aldrinum 8-11 ára sem kemur út í haust. „Hún verður meðhryllingsívafi. Ég fékk hugmyndina á ferðalagi um Bandarík-
in í fyrra þar sem ég hnaut um óhugnanlega leikfangabúð. Mér fannst
ég verða að semja sögu þar sem þessi búð fléttist inn í dularfulla at-
burði.“ Gerður Kristný hefur áður skrifað barnabók af þessum toga
því árið 2008 kom út eftir hana draugasagan Garðurinn.
„Á morgun byrja ég að kenna börnum ritlist í Bókasafni Seltjarn-
arness og hlakka mikið til þess að leiða Yrsur, Arnalda og Svövur
framtíðarinnar inn í töfraheim skáldskaparins. Ég hef kennt börnum
ritlist í um áratug og veit að þessi námskeið hafa vakið áhuga þeirra á
bókmenntum og því að skrifa sjálf. Þau lesa líka bækur á annan hátt
eftir að hafa spreytt sig sjálf á skriftunum. Á föstudaginn held ég
fyrirlestur á Fundi fólksins í Norræna húsinu í tilefni af 100 ára
kosningaafmæli kvenna á Íslandi og í Danmörku.“
Gerður Kristný stundar jóga og les bækur í frístundum. „Síðast
lauk ég við ævisögu Ástu Sigurbjartsdóttur, Hin hljóðu tár, eftir
Sigurbjörgu Árnadóttur. Ásta var hjúkrunarfræðingur í Berlín á
stríðsárunum og lifði mjög ævintýralegu lífi. Í sumar ætla ég að dvelja
á Hrauni í Öxnadal með fjölskyldunni minni og ferðast um Vestfirði.“
Gerður Kristný er gift Kristjáni B. Jónassyni bókaútgefanda og
synir þeirra eru Kristján Skírnir, tíu ára, og Hjalti Kristinn, sjö ára.
Morgunblaðið/Golli
Kennir ritlist Auk þess að skrifa heldur Gerður Kristný námskeið og
kveikir áhuga barna á því að skrifa sjálf sögur.
Skáldsaga fyrir börn
kemur út í haust
Gerður Kristný er 45 ára í dag
S
igurður fæddist í Reykja-
vík 10.6. 1965 og ólst upp
í Laugarneshverfinu frá
þriggja ára aldri: „Ég var
í Vatnaskógi og Íþrótta-
skólanum að Leirá en að öðru leyti
aldrei í sveit. Hins vegar var Laug-
ardalurinn sveitin okkar strákanna.
Þar voru mýrar, tún og skurðir og
kýr á beit. Við lékum okkur þar allan
daginn, allan ársins hring.“
Sigurður var fyrst í Laugarnes-
skóla: „Kennari minn var Skeggi Ás-
bjarnarson sem var lengi með út-
varpsþætti fyrir börn og unglinga.
Hann var frábær kennari sem lagði
góðan grunn að minni menntun.“
Sigurður var síðan í Laugalækjar-
skóla, lauk stúdentsprófi frá MS
1985, BSc-prófi í byggingaverkfræði
frá HÍ 1989 og MSc-prófi í sama fagi
frá DTH í Kaupmannahöfn 1991,
auk aragrúa námskeiða, hér á landi
og erlendis. Hann er viðurkenndur
af IPMA sem verkefnastjóri á B-
stigi frá 1997 og er viðurkenndur af
IPMA sem verkefnastjóri á A-stigi
frá 2012, fyrstur Íslendinga.
Sigurður var verkfræðingur hjá
Línuhönnun hf. frá 1991, aðstoðar-
framkvæmdasstjóri fyrirtækisins
2001-2005, framkvæmdastjóri þess
2005-2006, en hefur verið fram-
kvæmdastjóri hjá ÍAV frá 2006 og
situr í framkvæmdastjórn félagsins.
Hjá Línuhönnun var Sigurður
verkefnastjóri ýmissa stærstu um-
ferðarmannvirkja sem unnið var að
á höfuðbogarsvæðinu 1991-2000, s.s.
við nýjar Elliðaárbrýr og breikkun
Sigurður R. Ragnarsson, framkvæmdastjóri hjá ÍAV – 50 ára
Á Rauðasandi Fjölskyldan á ferðalagi fyrir tveimur árum: Kjartan, Hjalti, Þórdís, Sigurður, Bjarki og Margrét.
Í framkvæmdahringiðu
Wow Cyclothon 2012 Sigurður hjólar á Skeiðarársandi ásamt félaga sínum.
Elísabet Kristín Gunnarsdóttir og Elísabet Nótt Guðmundsdóttir héldu tombólu
við Samkaup á Blönduósi. Þær seldu fyrir 4.153 krónur sem þær afhentu Rauða
krossinum.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is HEYRNARSTÖ‹IN
Snjallara heyrnartæki
Beltone First™
Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004