Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 79
79
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
VIÐKVÆM HÚÐ?
PRÓFAÐU
ALLA LÍNUNA…
ÞVOTTAEFNI | HREINLÆTISVÖRUR | HÚÐVÖRUR | ANDLITSLÍNA | BARNAVÖRUR
ASTMA- OG OFNÆMISFÉLAG ÍSLANDS
MÆLIR MEÐ VÖRUM FRÁ NEUTRAL
…fyrir heimilið, fjölskylduna og þig.
Neutral er sérstaklega þróað fyrir viðkvæma húð og inniheldur
engin ilmefni, litarefni eða paraben – þannig hjálpar Neutral
þér að vernda húð allra í fjölskyldunni.
Skoðaðu allar Neutral vörurnar í næstu verslun eða kíktu á Neutral.is
ÍS
L
E
N
SK
A
SI
A
.I
S
N
A
T
71
68
2
02
/1
5
skapalega ánægð að tekist hafi að
tryggja komu Sirkus Íslands til
bæjarins á meðan á hátíðinni stend-
ur.
„Þau verða með tjaldið sitt í
miðju bæjarins og munu setja
sterkan svip á hátíðahöldin. Er líka
mjög við hæfi að hafa sirkus á
Frönskum dögum enda eiga frakk-
ar sterka sirkushefð.“
Þegar Fáskrúðsfirðingar ákváðu
að efna til bæjarhátíðar blasti við að
nýta frönsku tenginguna. Í þrjú
hundruð ár veiddu franskir sjó-
menn hér við land. Þeir höfðu bæki-
stöðvar sínar á Fáskrúðsfirði um
langt skeið og byggðu þar meðal
annars spítala. Spítalahúsið var ný-
lega gert upp og er þar í dag rekið
Fosshótel Austfirðir og veitinga-
staðurinn L’Abri, auk vandaðs safns
um sögu franskra sjómanna á Ís-
landsmiðum.
Tour de Fáskrúðsfjörður
Ekki skemmir fyrir að Frakkland
er skemmtilegt þema að vinna með,
enda land ríkt af menningu og
þekkt fyrir ljúffengan mat. „Meðal
árlegra viðburða á frönskum dögum
má nefna Tour de Fáskrúðsfjörður
sem er hjólreiðakeppni áhuga-
manna um fjörðinn. Einnig höldum
við Íslandsmeistaramót í pétanque,
frönsku kúluspili sem er ekki ósvip-
að botsía. Þá er Kennderísgangan
einn vinsælasti dagskrárliðurinn og
þessi skemmtilegi göngutúr um
bæjarfélagið farinn að laða að sér
hundruð gesta,“ segir Guðbjörg
Kennderísgangan er, eins og
nafnið gefur til kynna, ætluð full-
orðnum og þurfa börn yngri en 18
ára að vera í fylgd forráðamanna
því búast má við að einstaka þátt-
takandi hafi gripið með sér dós af
svalandi drykk í gönguna. „Gengið
er um bæinn og segja leiðsögumenn
frá sögu og sérkennum helstu
áfangastaða. Reglulega er svo
gengið fram á stoppistöðvar þar
sem smakka má ljúfmeti eins og
franska lauksúpu eða rabarbarapæ.
Skapast sérlega gott andrúmsloft í
göngunni og oft að þar hittir fólk
brott flutta Fáskrúðsfirðinga sem
komið hafa til bæjarins í tilefni há-
tíðarinnar. Verða þar fagnaðar-
fundir milli vina og ættingja og góð
stemningin farin að laða að fólk úr
næstu fjörðum.“
Harmonikkur og töframenn
Vitaskuld er margt í boði fyrir
börnin og nefnir Guðbjörg hann
Lalla töframann og íþrótta-
hetjurnar úr Latabæ. Leiktækin
mun ekki vanta, tónlistaratriðin eru
fjöldamörg og listatriði á götum úti.
Af tónlistaratriðum má telja til
tónleika Harmonikkufélags brott
fluttra Fáskrúðsfirðinga tónleika
Jónasar Sigurðssonar og hljóm-
sveitar, og sveitaballa þar sem
Rokkabillíbandið og Matti Matt
halda uppi fjörinu. Bjartmar og
Bergrisarnir ætla líka að leika
hressilega tónlist fyrir gesti og
sjálfur Árni Johnsen stýrir söng við
bjarmann af varðeldi þegar hátíðin
er formlega sett.
„Götuleikhúsnámskeið verða
haldin fyrir börn og unglinga vik-
urnar tvær í aðdraganda hátíð-
arinnar og sýna krakkarnir listir
sínar á götum bæjarins. Er öruggt
að þar á meðal má finna ekta lát-
bragðsleikara af þeirri gerð sem
Frakkar eru þekktir fyrir.“
Upplifun Svipmyndir frá
Frönskum dögum undan-
farin ár. Hefð er fyrir því að
leggja blómsveig að minn-
isvarða um frönsku sjó-
mennina, látbragðsmenn
eru með uppátæki úti á götu,
og siglingasögu bæjarins
gerð góð skil. Heimamenn
hika ekki við að klæða sig í
litríkan fatnað til að gera til-
efnið hátíðlegra og sum
skemmtiatriðin fá hárin til
að rísa af spenningi. Má
reikna með að þetta árið
verði hátíðin óvenju vegleg.