Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 52
52 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Erum flutt að Strandgötu 24, Hafnarfirði
Opið
virka daga kl. 10-18,
laugardag kl. 11-15
Teg. Mary 3 – 1 – 1
Strandgötu 24 – 220 Hafnarfjörður – Sími 565 4100 – www.nyform.is
Teg. Giulia 3 – 1 – 1
Tokyo rafm. lyftustóllSvefnsófi, teg. Plútó Hornsófi teg. Indy
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Síðari hluta þessa mánaðar fara
menn á vegum Vegagerðarinnar
hringinn í kringum landið á bát sem
tekinn verður á leigu. Verkefnið er
að þjónusta 35 vita frá sjó, en þá er
unnið að fyrirbyggjandi viðhaldi,
vatni bætt á geyma, skipt er um per-
ur eftir þörfum, linsur og gler þrifið
svo dæmi séu tekin. Þá er ástand
ljósdufla eða bauja kannað, en í
fyrra voru síðustu járnbaujurnar
lagðar af og komu staurabaujur úr
plasti í staðinn.
104 landvitar
Væntanlega verður farið á
Dröfn RE í þessa tveggja vikna vita-
ferð eins og gert hefur verið síðasta
áratug, en eigendur buðu rúmar níu
milljónir í verkefnið í útboði Vega-
gerðarinnar. Eitt annað tilboð barst
og hljóðaði það upp á tæpar 50
milljónir króna. Fram eftir síðust
öld voru sérstök vitaskip í þjónustu
við vitana, en einnig afskekktar
byggðir þar sem samgöngur voru
erfiðar á landi og sjó.
Nú eru 104 landvitar á skerjum
og eyjum, nesjum og björgum og
stöðum við strendur landsins þar
sem þeirra var mest þörf fyrir sjó-
farendur. Sumum þeirra er hægt að
sinna frá landi, en aðeins á þremur
stöðum er búið; Dalatanga, Hrauni
á Skaga og Sauðanesvita við Siglu-
fjörð. Ekki eru ýkja mörg ár síðan
vitaverðir voru búsettir á mörgum
afskekktum vitum og sumir þeirra
vor þjóðsagnapersónur í lifanda lífi.
Fyrsti vitinn við strendur Ís-
lands var byggður á Valahnúk á
Reykjanesi árið 1878. Í byrjun 20.
aldar voru vitarnir fimm að tölu en
uppbyggingu vitakerfisins lauk
með byggingu Hrollaugseyjavita
árið 1954. Þá var ljósvitahringnum
um landið lokað. Á vegum Vega-
gerðarinnar eru tveir vinnuflokkar
í viðhaldi á vitabyggingum á sumrin
og er reynt að taka um 20 vita á
sumri. Á þann hátt tekst að halda í
horfinu og klára hringinn á fimm
árum.
Guðmundur Bernódusson,
starfar sem rafvirki á vitadeild sigl-
ingasviðs Vegagerðarinnar, en
hann hefur í 35 ár unnið við
vitaþjónustuna, fyrst hjá Vita- og
hafnamálastofnun, þá Siglinga-
stofnun og loks Vegagerðinni, sem
tók við þessu verkefni síðasta vetur.
Hann var reyndar sjálfur vitavörð-
ur sem ungur maður á Galtarvita
1979-1982. Hann segir að miklar
breytingar hafi orðið á síðustu ára-
tugum og nefnir að vitum hafi að-
eins fækkað með breytingum á bú-
setu og atvinnuháttum. Þannig hafi
vitar í Ingólfsfirði og Bjarnarfirði á
Ströndum verið lagðir af.
Þá séu lyklar að vitum, sem
auðvelt er að komast að, nú komnir
í þjónustustöðvar Vegagerðarinnar
um allt land. Þaðan sé eftirliti sinnt
og brýnustu viðgerðum, en samn-
ingum við yfir 20 menn í héraði sem
áður höfðu þessi störf með höndum
var sagt upp í fyrravetur. Guð-
mundur segir að þetta hafi verið
gert í hagræðingarskyni og sé í
samræmi við vinnulag sem tíðkast á
öðrum Norðurlöndum.
Gasvitar aflagðir 2005
„Mesta einstaka breytingin í
vitunum var þó þegar við losnuðum
við bölvað gasið,“ segir Guðmund-
ur. „Fyrsti sólarorkuvitinn var sett-
ur upp á Vatnsleysuströnd 1988 og
upp úr 1990 var farið í stórt átak í
þessu verkefni. Nú er orku sólar-
innar safnað í rafgeyma og notuð á
48 af vitum landsins, 55 staðir eru
með tengingu við rafveitu. Í Norð-
fjarðarhorni er notast við einnota
rafhlöður því þar er vitinn svo ná-
lægt brúninni að sólin nær ekki að
skína nógu mikið til að hlaða raf-
geyminn. Síðasti gasvitinn var í
Hvalfirði og var aflagður 2005.“
Vegagerðin annast rekstur
landsvitakerfisins og hefur umsjón
og eftirlit með uppbyggingu hafn-
arvita og innsiglingarmerkja.
Landsvitar eru til leiðbeiningar á
almennum siglingleiðum og eru í
eigu og umsjá ríkisins en hafnar-
vitar, sem vísa leið inn til hafnar,
eru í eigu og umsjá sveitarfélaga.
Hafnarvitakerfið er byggt upp af
tæplega 20 ljósvitum, um 90 innsigl-
ingarljósum á garðsendum og
bryggjum, rúmlega 80 leiðarljósa-
línum og tæplega 50 baujum er vísa
leið í innsiglingum að höfnum, að
því er fram kemur á heimasíðu
Vegagerðarinnar.
Ekki íþyngjandi kerfi
Öryggishlutverki vitanna má
skipta í þrennt. Þeir leiðbeina um
staðsetningu, vara við siglinga-
hættum og vísa leið inn á hafnir og
skipalægi. En eru ljósvitar nauðsyn-
legir á öld gervitungla og fullkom-
inna rafrænna leiðsögukerfa?
„Vissulega hefur öryggishlut-
verk vitanna breyst, en þeim mun
meira öryggi þeim mun betra,“ seg-
ir Guðmundur. „Heimamenn eru
ekki eins háðir vitunum og þeir
voru áður, en finnst örugglega gott
að vita af þeim. Ókunnir aðkomu-
menn, oft erlendir, nota vitana hins
vegar mikið þegar komið er að í
dimmu. Við höfum fylgt fordæmi
Norðurlandanna á mörgum sviðum
og meðan þeir eru ekki lagðir af þar
held ég að við höldum okkar striki.
Svo er annað mál að þetta vita-
kerfi er alls ekki íþyngjandi því öll
skip borga vitagjald, frá smábátum,
til togara, flutningaskipa og far-
þegaskipa. Umferðin hefur aukist
mikið, til dæmis með fjölgun
skemmtiferðaskipa, og rekstur á
vitakerfinu er sjálfbær og rúmlega
það.“
Árið 2002 kom út bókin Vitar á
Íslandi, Leiðarljós á landsins
ströndum 1878-2002, og er þar að
finna mikinn fróðleik um vita á Ís-
landi og í sögulegu samhengi. Höf-
undar eru Guðmundur L. Haf-
steinsson, Kristján Sveinsson og
Guðmundur Bernódusson.
Sólarorka nýtt í 48 af 104 vitum
Tveggja vikna hringferð vegna vita-
þjónustu Mesta breytingin að losna
við gasið Búið á þremur vitastöðum
Í fjörunni á Horni Vegagerðin annast þjónustu við landsvitana, frá vinstri
eru Sigurjón Eiríksson, Guðmundur Bernódusson og Ingvar Engilbertsson.
Erfitt Gúmmíbátar breyttu miklu og eftir lendingu í fjörunni
var ekki eftir neinu að bíða en að taka þunga pokana á bakið.
Í einkennisbúningi Ásgrímur Björnsson, stýrimaður og skip-
stjóri, leggur hönd á plóg í steypuvinnu á Svalvogum.
Á Ströndum Verkefni skipverja á vitaskipinu Árvakri voru
margvísleg, meðal annars að flytja hesta og búfé á milli staða.
Vitaþjónusta fyrr og nú
Ljósmynd/Guðmundur Bernódusson
Selskersviti Vitinn stendur á skeri
út af Ófeigsfirði á Ströndum.
Ljósmynd/Þjóðbjörn Hannesson