Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 93
Vesturlandsvegar, og við gerð nokk-
urra mislægra gatnamóta. Þá var
hann ráðgjafi vegna fyrirhugðrar
Sundabrautar í tíu ár.
Er Sigurður hóf störf hjá ÍAV var
hann verkefnastjóri fyrir byggingu
Hörpu á árunum 2006-2011.
Hann er nú framkvæmdastjóri yf-
ir framkvæmdum ÍAV en meðal
þeirra má nefna fangelsi á Hólms-
heiði; Álftanesveg, Vaðlaheiðagöng,
fjögur verkefni við Flugstöð Leifs
Eiríkssonar, Kílisverksmiðju í
Helguvík, tengivirki á Akranesi,
snjóflóðagarð á Ísafirði og jarð-
gangaverkefni í Noregi.
Sigurður lék handbolta með
meistaraflokki Víkings um árabil,
varð Íslandsmeistari 1986 og 1987,
og bikarmeistari 1985 og 1986.
Sigurður sat í stjórn Forverks og
var framkvæmdastjóri þess 1997-
2001, sat í stjórn Reksturs og ráð-
gjafar, Umsýnar, var stjórnarfor-
maður Idega, í stjórn Línuhönnunar
2001-2006, var stjórnarformaður
Káraborgar 2003-2005, í stjórn Fé-
lags ráðgjafaverkfræðinga og situr í
stjórn Greenland Prime Contractor
(GPC) frá 2013.
Sigurður var formaður kynning-
arnefndar Verkfræðingafélags Ís-
lands og Tæknifræðingafélags Ís-
lands 1995-96, var fulltrúi í
endurmenntunar- og símenntunar-
nefnd VFÍ, TFÍ og SV 1996-97, er
félagi í VFÍ, BVFÍ, FRV og Verk-
efnastjórnunarfélaginu. Hann var
formaður Handknattleiksdeildar
Víkings 1998-2001.
Áhugamál Sigurðar snúast um
ferðalög og íþróttir: „Ég hef alltaf
ferðast mikið en einungis innanlands
á sumrin og vil þá helst liggja í
tjaldi. Ég hef farið um allt landið
nema Jökulfirði og Hornstrandir.
Ég hef einnig farið víða um heim
og hef yndi af að kynnast fjarlægum
löndum og framandi menningu.
Í seinni tíð hef ég svo verið að
hjóla með góðum hópum, upp í Heið-
mörk og til Þingvalla um helgar og
auk þess í skipulegar lengri ferðir.
Loks er ég í bridsklúbbi. Okkur
fer ekkert fram í spilamennskunni
en rækjusalatið verður sífellt betra
hjá okkur.“
Fjölskylda
Eiginkona Sigurðar er Þórdís
Kjartansdóttir, f. 19.6. 1965, lýta-
læknir. Dóttir Sigurðar og Þórdísar
er Þórdís Lára Sigurðardóttir, f.
19.11. 2013.
Barnsmóðir Sigurðar er Kristín
Magnúsdóttir, f. 12.6. 1962, við-
skiptafræðingur í Reykjavík. Börn
Sigurðar og Kristínar eru Bjarki
Már Sigurðsson, f. 10.11. 1996, nemi
við MS, og Margrét Eva Sigurð-
ardóttir, f. 17.10. 1999, að hefja nám
við VÍ í haust.
Synir Þórdísar eru Hjalti Pálsson,
f. 6.6. 1991, nemi í viðskiptafræði í
Róm, og Kjartan Pálsson, f. 13.2.
1996, nemi við VÍ.
Systkini Sigurðar eru Kristín Vala
Ragnarsdóttir, f. 27.3. 1954, prófess-
or við HÍ; Halldór Páll Ragnarsson,
f. 28.5. 1955, verkfræðingur og fram-
kvæmdastjóri MT Højgaard í Dan-
mörku, og Margrét Dóra Ragnars-
dóttir, f. 8.4. 1974, sálfræðingur og
tölvunarfræðingur í Boston í Banda-
ríkjunum.
Foreldrar Sigurðar eru Ragnar
Stefán Halldórsson, f. 1.9. 1929,
verkfræðingur og fyrrv. forstjóri
ÍSAL, og k.h., Margrét Kristín Sig-
urðardóttir, f. 27.3. 1931, viðskipta-
fræðingur.
Úr frændgarði Sigurðar R. Ragnarssonar
Sigurður R.
Ragnarsson
Sigríður Kristín Jóhannsdóttir
húsfr. í Stóru-Sandvík
Hannes Magnússon
b. og framkv.stj. í Stóru-
Sandvík í Flóa
Kristín Hannesdóttir
húsfr. í Rvík
Sigurður Jónas Þorsteinsson
búfr. og stórkaupm. í Rvík
Margrét Kristín Sigurðardóttir
viðskiptafr.
Margrét Oddný Jónasdóttir
húsfr. á Eyjólfsstöðum
Þorsteinn Konráðsson
b., smiður, kennari, oddviti,
organisti og fræðim. á
Eyjólfsstöðum í Vatnsdal, síðar
skrifstofum. í Rvík
Vilborg Elísabet Tærgesen
saumakona í Rvík
Sigfús Gíslason
b. á Hofsströnd
Halldóra Sigfúsdóttir
skrifstofum. í Rvík
Halldór Stefánsson
alþm. og forstj. í Rvík
Ragnar Stefán Halldórsson
verkfr. og fyrrv. forstj. ÍSAL
Ragnhildur Björg
Methúsalemsdóttir
húsfr. á Hjaltastað
Stefán Pétursson
pr. á Hjaltastað
Blómarós í blómahafi Sigurður og
yngri dóttirin, Þórdís Lára.
ÍSLENDINGAR 93
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Ástráður Jón Sigursteindórssonfæddist í Reykjavík fyrir rétt-um hundrað árum. Foreldrar
hans voru Sigursteindór Eiríksson
verkamaður, og Sigríður Jónsdóttir,
bæði ættuð úr Rangárþingi.
Eiginkona Ástráðs var Ingibjörg
Halldóra Jóelsdóttir sem lést árið
2008 og eignuðust þau þrjú börn, Val-
geir sóknarprest, Sigurð rekstrar-
stjóra og Herdísi hjúkrunarfræðing.
Ástráður lauk stúdentsprófi frá MR
1935, embættisprófi í guðfræði frá HÍ
1939 og sótti auk þess víða nám, hér á
landi og erlendis.
Ástráður var framkvæmdastjóri
KFUM. Hann hóf ungur kennslu, var
skólastjóri Gagnfræðaskólans við
Vonarstræti 1955-63, Réttarholtsskól-
ans 1963-81 og starfsmaður Hins ís-
lenska biblíufélags á árunum 1981-96.
Ástráður sat í stjórn Skólastjóra-
félags Reykjavíkur og var prófdómari
við Kennaraháskóla Íslands, ritstjóri
barnablaðsins Ljósberinn og meðrit-
stjóri Bjarma um skeið.
Ástráður beitti sér mjög að mál-
efnum kristni og kirkju í landinu.
Hann var formaður Skógarmanna
KFUM, var forstöðumaður sunnu-
dagaskóla KFUM um áratugaskeið,
einn af stofnendum Kristilegs stúd-
entafélags og stjórnarmaður þar um
árabil. Þá sat hann lengi í stjórn
KFUM í Reykjavík og var fyrsti for-
maður Landssambands KFUM og
KFUK, einn af stofnendum og stjórn-
endum Bókagerðarinnar Lilju, sat í
sóknarnefnd Laugarneskirkju um
áratugaskeið og var lengi í stjórn
Hins íslenska biblíufélags auk þess
sem hann átti lengi sæti á Kirkju-
þingi. Eftir Ástráð liggja umtalsverð
ritstörf og greinar. Hann var kunnur
og vinsæll fyrirlesari, hér heima og
erlendis.
Ástráður var sæmdur heiðurs-
merki Hinnar íslensku fálkaorðu
fyrir störf að kristindómsmálum og
æskulýðsstörfum.
Ástráður lést 20.7. 2003.
Merkir íslendingar
Ástráður Jón
Sigursteindórsson
90 ára
Anna Júlíusdóttir
Helga Hermóðsdóttir
80 ára
Hrafn Þórisson
Jóhann B. Sigurgeirsson
Kjartan Konráð Úlfarsson
75 ára
Jónas Gestsson
Kristín María
Þorvaldsdóttir
Páll Trausti Jörundsson
70 ára
Aldís Gústafs
Hermann Kristján Jónsson
Ingi Magnfreðsson
Jóhanna Guðnadóttir
Sigrún Sigurðardóttir
Sigurbjörg G.
Jóhannesdóttir
Sigvaldi Gunnarsson
Þorleifur Ófeigur Jónsson
Þórarinn Óskarsson
Þórður Ólafsson
60 ára
Björn Guðbjörnsson
Dýrfinna Torfadóttir
Ellert Vigfússon
Gunnhildur Valgarðsdóttir
Haraldur H. Guðmundsson
Heiðrún Björk
Guðbrandsdóttir
Jónas Jónsson
Jón Elías Jónsson
Kristjana Svanh.
Garðarsdóttir
Randver Víkingur Rafnsson
Sigurbjörg Halldórsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Wilhelm Steinarsson
50 ára
Anna Þóra Bragadóttir
Baldvin Örn Arnarson
Benedikt Sigurðsson
Guðrún Jóna Bragadóttir
Herdís H. Ingimundardóttir
Hjalti Dagsson
Magnús Magnússon
Malín Sirimekha
Marianna Plodowska
Nongnart Lue-U-Kosakul
Ragna Ársælsdóttir
Svandís Tryggvadóttir
40 ára
Anna María Bjarnadóttir
Arndís Th. Friðriksdóttir
Einar Guðmar Halldórsson
Gunnar Smári
Steinþórsson
Haddur Áslaugsson
Jón Birgir Einarsson
Jón Guðmundur
Benediktsson
Jón Hjörtur Harðarson
Sigrún Eiríksdóttir
Símon Bergsson Hjaltalín
Stuart Fraser
30 ára
Berglind Ósk Magnúsdóttir
Guðrún Björg Ellertsdóttir
Heiða Björk Árnadóttir
Hjalti Axel Yngvason
Hrafnhildur
Guðmundsdóttir
Malvina Elísabet
Momuntjuk
Til hamingju með daginn
30 ára Þorsteinn ólst upp
á Borðeyri, býr í Reykja-
vík, lauk stúdentsprófi frá
Tækiniskólanum og starf-
ar við Landsbankann.
Unnusta: Brynja Ingi-
marsdóttir, 1986, starfs-
maður hjá VÍS.
Sonur: Breki Snær, f.
2011.
Foreldrar: Sveinn Karls-
son, f. 1957, bifvélavirki
með eigin verkstæði, og
Guðný Þorsteinsdóttir, f.
1953, skrifstofumaður.
Þorsteinn Ingi
Sveinsson
30 ára Linda býr í Kópa-
vogi og er fjármálastjóri
hjá Einar P og Kó.
Maki: Sigurður Rúnar
Guðmundsson, f. 1982,
byggingatæknifræðingur
hjá Já – Verk.
Börn: Amelía Ísól, f.
2010, og Tristan Styff, f.
2011.
Foreldrar: Jónína Sess-
elja Gísladóttir, f. 1969,
nemi við HÍ, og Sigurður
Styff, f. 1969, fyrrv. fram-
kvæmdastjóri.
Linda Marín
Styff
30 ára Kristrún býr á
Tálknafirði, lauk BA-prófi í
félagsfræði og stundar nú
MEd-nám í kennslufræð-
um grunnskóla við HÍ.
Maki: Arilíus Marteins-
son, f. 1984, fangavörður
við Litla-Hraun.
Börn: Erla Maren, f.
2008; Ragna Evey, f.
2011, og Elmar Ottó, f.
2013.
Foreldrar: Freyja Magn-
úsdóttir, f. 1959, og Mar-
inó Bjarnason, f. 1953.
Kristrún Helga
Marinósdóttir
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Gler, gluggar, glerslípun & speglagerð frá 1922
Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími: 565 0000 | Fax: 555 3332 | glerborg@glerborg.is | www.glerborg.is
Hljóðeinangrandi
glerveggir