Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Sjónvarpsstjórar stóru sjónvarps-
stöðvanna, RÚV, Stöð 2 og Skjásins
eru allir sammála um að hliðrað
áhorf sé tekið við af línulegri dag-
skrá. Fólk fari ekki lengur eftir því
hvenær uppá-
haldsþátturinn er
á dagskrá heldur
er horft á þegar
tími gefst. Slíkt
getur ekki endi-
lega komið fram í
mælingum Gall-
up. Hliðrað áhorf
síðar en einn
sólahringur er
liðinn frá frum-
sýningu mælist
ekki. Dæmi eru
um að þættir fái
betri mælingu í
hliðruðu áhorfi en
í línulegri dag-
skrá.
Jóhanna Mar-
grét Gísladóttir,
framkvæmda-
stjóri sjónvarps-
sviðs 365, segir að
á árinu 2014 hafi
10% áhorf verið á
Stöð 2 í hliðruðu
áhorfi miðað við
mínútur á dag.
„Þetta svokall-
aða playback
áhorf, sem kallast
hliðrað áhorf á ís-
lensku, hefur
aukist mikið. Við
sjáum að þættir
sem eru vinsælir,
eins og á föstudögum, þegar Út-
svarið er á RÚV gegn Spurninga-
bombunni sem er á Stöð 2, þá er
hliðrað áhorf stundum meira á
Spurningabombuna en áhorf í línu-
legri dagskrá.
Fólk er ekki lengur að setjast nið-
ur og horfa á þáttinn sinn heldur
horfir á hann þegar það vill og hefur
tíma,“ segir hún.
Skarphéðinn Guðmundsson, dag-
skrárstjóri RÚV, tekur undir með
Jóhönnu.
„Áhorf á sjónvarpsefni hefur tekið
miklum breytingum og liður í þeim
breytingum er að áhorf á sumt frum-
sýnt efni í sjónvarpi hefur dregist
saman. Einkum gildir þetta um er-
lenda framhaldsþætti en síður á ís-
lenska efnið, sem hefur haldið velli
og hefur meira að segja í einhverju
tilvikum aukist.
Helsta skýringin á þessu minna
áhorfi er að áhorfið hefur hliðrast,
mun meira er horft á efnið eftir á, á
Sarpinum eða í gegnum Tímaflakk
og Frelsis-þjónusturnar.
Það er því einföldun að tala um að
sjónvarpsáhorf hafi minnkað án þess
að taka tillit til þessara breyttu og
mun flóknari neysluvenja ef svo má
kalla. Það má jafnvel finna til æði
sterk rök fyrir að því að áhugi og
áhorf á sjónvarp og sjónvarpsefni
hafi sjaldan verið meira ef allt er
tekið saman,“ segir Skarphéðinn.
Pálmi Guðmundsson, sjónvarps-
stjóri Skjásins, segir að hliðrað
áhorf sé rétt tæplega helmingur af
áhorfi á Skjáinn, sem á og rekur
Skjáeinn, SkjáKrakka og Skjábíó.
„Hliðrað áhorf hjá Skjánum er um
50% og notkunin er alltaf að aukast.
Skjárinn (Skjáreinn, Skjárbíó og
Skjárkrakkar) er með yfir 600 þús-
und pantanir á mánuði í hliðruðu
áhorfi,“ segir Pálmi.
100 þúsund stakar leigur
Ein birtingarmynd á auknum
áhuga á sjónvarpi, sem ekki kemur
fram í mælingum Gallup, er Stöð 2
Maraþon, Skjár Krakkar, áhorf á
Netflix og niðurhal.
Samkvæmt Jóhönnu voru yfir 100
þúsund stakar leigur í janúar í Stöð
2 maraþon en þar má finna þætti
eins og Game of Thrones og Home-
land sem þykja standast tímans
tönn.
„Þótt línulegt áhorf sé að minnka
þá er fólk ekkert endilega að horfa
minna á sjónvarpsefni. Gæði sjón-
varpsefnis hafa í raun verið að
aukast samhliða þessari þróun og
eru stór nöfn í kvikmyndaheiminum
til dæmis í auknum mæli að leika í
vönduðu sjónvarpsefni svo sem frá
HBO,“ segir hún og bætir við að 365
sé með stóran samning við HBO fyr-
irtækið sem skili fyrirtækinu vönd-
uðu efni. „Einnig viljum við tryggja
okkur breskar og skandínavískar
seríur sem gefa dagskránni meiri
fjölbreytni og erfiðara er að ná í það
efni á netinu.“
20 þúsund heimili með Netflix
Talið er að yfir 20 þúsund íslensk
heimili séu tengd efnisveitunni, sam-
kvæmt könnun MMR sem gerð var í
fyrra, þrátt fyrir að þjónustan sé
ekki aðgengileg á Íslandi með lög-
legum hætti.
Jóhanna segir að vandað íslenskt
efni eigi enn hug og hjörtu áskrif-
enda hjá 365.
„Vandað íslenskt efni er alltaf vin-
sælt. Leikið efni og stórir íslenskir
þættir eins og Ísland got talent, Hið
blómlega bú og annað hafa verið að
fá mjög gott áhorf. Það varð ákveðin
stefnubreyting innan veggja 365 fyr-
ir tveimur árum þegar það var
ákveðið að fara í meiri framleiðslu á
íslensku efni því fólk vill borga og
vera áskrifandi til að sjá gott ís-
lenskt efni. Það vill líka ekki stela ís-
lensku efni á netinu. Íslenska efnið
virkar alltaf og við erum að leggja
mikið í íslenska framleiðslu í ár. Við
erum með nýja seríu af Rétti í haust,
seríuna Borgarstjórinn með Jóni
Gnarr á næsta ári og það er að
ganga mjög vel hjá okkur.“
Skarphéðinn segir að mælingar
sem RÚV fái sýni að íslenskt efni sé
alltaf jafn vinsælt hvort sem þátta-
röðin sé sýnd í línulegri dagskrá eða
ekki.
„Þær mælingar sem við fáum hafa
sýnt glögglega fram á, og það ítrek-
að, að áhorfið hafi frekar dreifst en
dregist saman. Nýleg dæmi um það
og kannski þau skýrustu eru áhrif á
leiknu íslensku þáttaraðirnar Fólkið
í blokkinni og Hraunið en nær þriðj-
ungur heildaráhorfsins á það geysi-
vinsæla sjónvarpsefni var hliðrað
áhorf. Nýjasta dæmið og af sama
meiði er svo Drekasvæðið en sú
þáttaröð fær afar mikið hliðrað
áhorf og hefur til að mynda að jafn-
aði verið það dagskrárefni sem flest-
ir velja að sjá í Sarpinum og á Frels-
inu eftir frumsýningu í sjónvarpi,
ásamt barnaefninu.“
Niðurhal eyðilagði eina þáttaröð
Hjá Skjánum er íslenskt efni mjög
vinsælt, ekki aðeins hjá áskrifendum
heldur einnig hjá þeim sem ekki eru
með áskrift og sækja þættina ólög-
lega í gegnum niðurhal.
„Við höfum markað okkur þá
stefnu að gera færri þætti og stóra,
þætti sem hafa mikil ruðningsáhrif í
áskrift og auglýsingum. Sönn ís-
lensk sakamál er mest niðurhalaði
íslenski þátturinn. Hann var kominn
á svokallaða torrent síðu um 45 mín-
útum eftir frumsýningu. Sönn ís-
lensk sakamál er fyrsti þátturinn
sem verður fyrir barðinu á ólöglegu
niðurhali - bókstaflega. Tekjumiss-
irinn var of mikill,“ segir Pálmi.
Hliðrað áhorf tekið við línulegri dagskrá
Mun meira er horft á sjónvarpsefnið eftir á í Sarpinum eða í gegnum Tímaflakk og Frelsisþjónustu
Hliðrað áhorf hjá Skjánum er tæplega helmingur 100 þúsund stakar leigur í Stöð2 Maraþon
Morgunblaðið/Kristinn
Úraránið Upptökur á sjónvarpsþættinum Sönn íslensk sakamál sem Skjárinn framleiddi og sýndi á Skjáeinum. Þátturinn var gífurlega vinsæll meðal
niðurhalara og Skjárinn sá ekki annan kost í stöðunni en að hætta framleiðslu enda var tekjumissirinn mikill vegna ólöglegs niðurhals hér á landi.
Stórvirki Stöð 2 sýnir nú Game of Thrones á sama tíma og þátturinn er sýndur í Bandaríkjunum.
Jóhanna Margrét
Gísladóttir
Pálmi
Guðmundsson
Skarphéðinn
Guðmundsson
sími 553 9990
nutima@nutima.is