Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 58
58 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Skipholt 50c • 105 Reykjavík • 582 6000 • www.computer.is
Síðan 1986
3 ára ábyrgð
Tölvur og fylgihlutir
In Win Gamer Extreme
Ótrúleg leikjatölva sem spilar
alla leikina í bestu gæðum
In Win Office Pro
Alvöru vinnutæki sem
einfaldlega virkar
• Örgjörvi: Intel i7-4790
3,9 GHz Turbo
• Kæling: Coolermaster
212E Evo ofurhljóðlát
• Vinnsluminni: 16 GB
DDR3 1600MHz
• Skjákort: EVGA nVidia
GeForce GTX970 4GB
• SSD diskur: Samsung
EVO 850 250GB
• Harður diskur: Seagate
3TB 7200 RPM
• Netkort: 1Gbit kapaltengt
• Stýrikerfi: Windows 8.1
64ra bita
• Örgjörvi: Intel i3-4150
3,5 GHz
• Vinnsluminni: 8GB
DDR3 1600MHz
• Drif: DVD skrifari
• SSD diskur: 240GB
Kingston V300
• Net: þráðlaust og
kapaltengt
• Stýrikerfi: Windows
8.1 64ra bita
99.900 kr.
279.900 kr.
Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbæ
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir
varð á dögunum Evrópumeistari í
krossfit í Kaupmannahöfn. Hún býr
sig nú undir heimsleikana í íþrótt-
inni sem fara fram í Kaliforníu í lok
júlí.
Ragnheiður Sara, sem alltaf er
kölluð Sara, byrjaði að æfa krossfit í
janúar 2013 og má segja að tilviljun
ein hafi ráðið því. Hún hafði keppt á
krossfitmóti árið áður án þess að
vita hvað í íþróttinni fælist og lenti
þá í öðru sæti.
„Þarna hugsaði ég með mér: já ég
er greinilega ágætlega góð í þessu
og því fínt að prófa þetta. Síðan varð
ég fyrir því óhappi að úlnliðsbrotna
og þurfti að taka mér hvíld. Ég byrj-
aði svo á fullu aftur í ársbyrjun
2013,“ sagði Sara í samtali við blaða-
mann. Styrkur hennar í íþróttinni
liggur í því að hún er jafngóð í öllum
þeim íþróttagreinum sem rúmast
innan hennar.
Mikil fórn fyrir árangurinn
Þrátt fyrir mikla velgengni á und-
anförnum mánuðum, sem sýnir sig
m.a. í sigurgöngu á hinum ýmsu
mótum erlendis, þá sagðist Sara alls
ekki hafa búist við því að ná eins
langt og raunin er. Blaðamaður rifj-
ar upp með henni ársgömul ummæli
um að vilja skáka Annie Mist, stefna
á heimsleikana og verða atvinnu-
maður í krossfit. Nú þegar allt þetta
er í höfn eða blasir við er tilvalið að
huga að næstu áföngum.
„Ég stefndi reyndar alltaf að því
að komast á heimsleikana en ég
bjóst alls ekki við því að vinna Evr-
ópumótið, ég verð alveg að viður-
kenna það. Þetta er eiginlega of gott
til að vera satt og ég er eiginlega
ekki alveg að átta mig á því að það er
ég sem vann. Innst inni hugsaði ég,
jú það væri gaman að verða jafn góð
og Annie eða bara betri, en ég bjóst
aldrei við því að ég myndi ná því. En
þetta er bara þannig, þú uppskerð
það sem þú sáir.“
Góð uppskera er sannarlega ljúf,
en Sara gerir sér líka grein fyrir að
fórnin hefur verið mikil. „Það sem ég
hef fórnað til þess að komast á þenn-
an stað er svakalega mikið. Ég er
t.d. búin að fórna öllum tímanum
mínum. Vinkonur mínar eru allar að
skemmta sér og hafa gaman og
þurfa ekki að hugsa um neitt nema
lifa lífinu meðan ég þarf alltaf að
hugsa t.d. á ferðalögum hvenær ég
get æft mig? Ég þarf kannski að
sleppa því að fara í matarboð af því
að ég þarf að æfa þrisvar til fjórum
sinnum á dag. Ég þarf alltaf að
skipuleggja allt út frá æfingunum.
Ef stutt er í keppni hangi ég ekki
uppi í sófa með fjölskyldunni að
horfa á mynd og borða nammi. Á jól-
unum gat ég leyft mér að fá mér ís á
aðfangadag, en það var líka það eina
sem ég gat leyft því hálfur mánuður
var í mót. Ég var með lykil að Sport-
húsinu í vasanum og þurfti að æfa,
fór ein að æfa. Oft er þetta mjög erf-
itt og ég hugsa með mér, af hverju
er ég að þessu? En auðvitað er þetta
líka mjög gefandi, og eftir góðan ár-
angur á móti er þetta er allt þess
virði.“
Þjálfunarbúðir í mánuð
Velgengni Söru í krossfit hefur
aukið hróður íþróttarinnar í Reykja-
nesbæ og á Suðurnesjum öllum.
Hún og Andri Þór Guðjónsson tóku
við CrossFit Reykjanesbæ í Sport-
húsinu Ásbrú sl. haust, byggðu að-
stöðuna upp og breyttu í CrossFit
Suðurnes. Þá voru iðkendur um 50
en eru nú um 200 og alltaf að bætast
við í þessa stóru fjölskyldu sem Sara
segir iðkendurna vera.
Hún viðurkennir fúslega að hafa
þurft að slaka á í framkvæmda-
stjórninni á keppnisferlinum, sem
hefur verið nokkuð stífur að und-
anförnu, sérstaklega af því að hún
hefur verið að þjálfa sig upp sem
keppanda. Nú þegar heimsleikarnir
séu framundan verði enn minni tími
til stjórnunar og kennslu því stíft
æfingarprógramm bíði hennar
handan við hornið.
„Ég fer í æfingabúðir til Man-
chester 21. júní, sem er mánuð fyrir
heimsleikana og verð eingöngu að
lyfta í viku. Þaðan fer ég til Mallorka
í nokkra daga og verð bara að hugsa
um sund, hlaup og róður. Ég lýk svo
þjálfunarbúðunum í Kaliforníu og
verð að æfa þar fram að heimsleik-
unum sem haldnir verða þar 21.-26.
júlí.“
Með í för verður þjálfari Söru, Er-
ik Lau Kelner, osteopati, næring-
arfræðingur og þrír strákar sem æfa
krossfit hjá Erik. Sara sagði gott að
fá að æfa í hópi eftir alla einveruna
og sagði það henta sér betur að æfa
með strákum en stelpum. „Þetta var
það sem Erik lagði upp með strax
eftir Evrópumótið og það er ekkert
sem getur hjálpað mér meira fyrir
heimsleikana en þetta prógramm
hans.“
Og þó að heimsleikarnir séu topp-
urinn í krossfit hefur Sara hug á að
þiggja boð á tvö stór mót í sept-
ember, enda hvergi hætt.
Er bara orðin eins og prinsessa
Það er fleira sem hefur breyst á
íþróttaferli Söru en þjálfunin og að-
dráttaraflið að íþróttinni. Það já-
kvæðasta er að fólk sýnir henni
meiri stuðning eftir mikla velgengni
og umboðsmaður gaf sig á tal við
hana eftir keppni í Boston fyrr á
þessu ári og sér nú mikið til um flest
hennar mál. En áreitið hefur einnig
aukist.
„Eftir Evrópuleikana hef ég verið
að fá tugi vinabeiðna á Facebook á
dag, alls kyns innlegg og skilaboð
sem ég get ekki sinnt. Umboðsmað-
urinn stofnaði því aðdáendasíðu sem
hann sér um. Svo er mjög vinsælt að
biðja um eiginhandaráritun og fá
ljósmynd með mér eftir mót erlend-
is. Það er minna um þetta hér heima,
hugsunarhátturinn er öðruvísi hér
og íþróttin ekki eins stór hér. En ég
er bara eins og prinsessa í útlönd-
um,“ sagði Sara kímin.
Á Íslandi er hins vegar baklandið
og stuðningurinn og sagði Sara
ómetanlegt að hafa haft um 30
manna stuðningslið á Evrópu-
mótinu, fólk sem þekkir hana vel og
keyrði upp hvatningarorðin um leið
og það sá að þreytan var að yfirbuga
hana í keppninni. „Foreldrar mínir
eru auðvitað aðdáendur númer eitt,
tvö og þrjú en mér þykir mjög vænt
um allan þann stuðning sem ég hef
og að fá móttökur eins og ég fékk við
heimkomuna frá Kaupmannahöfn,
þegar 100 manns biðu mín í flugstöð-
inni og fögnuðu mér. Ég gæti þetta
ekki án þessa stuðnings. Ég á þó
ekki von á eins mörgum stuðnings-
mönnum til Kaliforníu því það er
bæði erfiðara og dýrara að fara
þangað en mamma og pabbi koma
með og nokkrir vinir og þau verða
bara að vera háværari í áhorfenda-
stúkunni. En það er líka gott að vita
af fólki við skjáinn hér í Sporthúsinu
að hrópa hvatningarorð og senda
mér góða strauma.“
Markmiðið að vera vel menntuð
Ástæðan fyrir stífum keppnis-
ferðum að undanförnu er vegna þess
að Sara hefur verið að ná sér í
reynslu sem keppandi, þurfti að
læra á sjálfa sig í keppni þar sem
bakgrunnurinn í íþróttinni var ekki
mikill. Námið í sálfræði við Háskól-
ann á Akureyri varð hún að leggja á
hilluna þar sem prófatíðin skaraðist
á við undirbúning Evrópumótsins,
en eins og sýn Söru er skýr þegar
kemur að krossfit þá er sýn hennar
einnig skýr í námi og starfsframa.
„Ég ætla að byrja aftur í fjarnámi
í haust og fara í viðskiptafræði við
Háskólann á Bifröst, prófa það, þar
sem ég sá mig ekki fyrir mér sem
sálfræðing. Annars ætla ég bara að
klára krossfit-ferilinn á næstu
tveimur til þremur árum og einbeita
mér svo að náminu. Ég ætla mér að
mennta mig og vera vel menntuð í
framtíðinni, það er mitt markmið.
Eftir mótin í september hugsa ég að
ég taki það rólega fram að næstu
Evrópuleikum og get því sinnt nám-
inu meira en ég hef getað hingað til.“
Hvað um áhugamál, er tími fyrir
önnur áhugamál en krossfit?
„Mér finnst mjög gaman að elda
og borða og raunin er sú að 80% af
árangrinum í krossfit er mataræðið.
Öllum tíma sem ég hef eyði ég með
vinum mínum, mér finnst gott að
hitta þá og dreifa huganum, en það
er ekki mikill tími fyrir annað. Ég
hef líka mjög gaman af að ferðast, þó
þessa dagana séu öll ferðalög tengd
keppnum. Mig langar að vera áfram
í Bandaríkjunum eftir heimsleikana
og slaka á.“
Og þó að Söru muni standa til
boða að dvelja enn lengur við at-
vinnumennsku í einu af krossfit lið-
um Bandaríkjanna þá er hún ekki
viss um að hugurinn stefni þangað
nú, hana langar að einbeita sér
meira að einstaklingskeppni. Heims-
leikunum fylgir hins vegar boð um
aukinn styrk frá framleiðendum
íþróttafatnaðar og það skiptir máli
þegar helga þarf lífið íþróttinni.
„Hef þurft að
fórna rosa-
lega miklu“
Nýbakaður Evrópumeistari í kross-
fit stefnir á heimsleikana í sumar
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Evrópumeistari Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir ætlar að einbeita sér að krossfit næstu árin og síðan að náminu.
Boðið er upp á verkefni fyrir frístundahópa
og börn á sumarnámskeiðum í Safnahúsinu
við Hverfisgötu í sumar. Opið er alla daga
vikunnar frá 10-17. Sýningin Sjónarhorn
stendur yfir í öllu húsinu og fræðandi og
skemmtileg verkefni eru í boði fyrir börn á
öllum aldri. Tekið er við bókunum á net-
fangið bokun.safnahusid@thjodminjasafn.is
eða í síma 530 2210 og fá frístundahópar ókeypis aðgang.
Einnig verður hinn 13. júní opnuð sýning í Nesstofu við Seltjörn sem
fjallar m.a. um lækningar á 18. öld. Í fréttatilkynningu segir að þar hafi
verið útbúin ýmis verkefni fyrir börn sem eru aðgengileg á vefsíðu Þjóð-
minjasafnsins. Einnig er bent á útivistarsvæðið umhverfis húsið sem er
skammt frá Gróttu.
Söfn fyrir börn í sumar
Nesstofa Sýning opnuð á Sel-
tjarnarnesi nk. laugardag.