Morgunblaðið - 10.06.2015, Page 18

Morgunblaðið - 10.06.2015, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015 Þegar þú ert að leita að gluggatjöldum er Luxaflex® augljós kostur. Með yfir 60 ára reynslu af markaðnum bíður Luxaflex® upp á mikil gæði og frábært úrval. Kíktu á okkur í Zenus og fáðu ráðgjöf um réttu gluggatjöldin fyrir þitt heimili. Smiðjuvegi 9 • Sími: 554 2450 zenus@zenus.is • zenus.is Augljós kostur 5 ára ábyrgð tug af Lífsvali ehf. Kúabú þetta er í stóru stálgrindahúsi sem áður hýsti graskögglaverksmiðju og þarna hafa að undanförnu verið um 115 kýr auk annars penings. Lífsval þraut örendið í hruninu og lá þá í loftinu að starfsemin legðist af. Bændur á Hornafjarðarsvæðinu báru kvíðboga gagnvart því ef svo illa færi, enda hefði það veikt stoðir land- búnaðar á svæðinu almennt, svo sem flutninga, þjónustu dýralækna og frjótækna og svo framvegis. Í því ástandi var leitað til Skinneyjar- Þinganess um aðkomu og var því kalli svarað jákvætt. Efling forsenda áframhalds „Gjarnan hefur verið leitað til sjáv- arútvegsins með aðkomu að ýmsum verkefnum er lúta að uppbyggingu samfélagsins hér á Hornafirði. Þessu höfum við reynt að sinna eftir föng- um. Við erum líka vel meðvituð um að Höfn hefði varla byggst upp sem út- gerðarstaður nema því aðeins að við höfðum sveitirnar og fólkið þar sem bakland,“ segir Gunnar Ásgeirsson. Með uppbyggingunni á Flatey og tvöföldun á stærð búsins telur Gunn- ar að megi skapa ágæta rekstrar- einingu. Að efla búskapinn heildstætt hafi í raun verið forsenda áfram- halds. Áætlaður kostnaður er mikill og hleypur á hundruðum milljóna króna. Iðnaðarmenn á vegum fyrir- tækjanna Rósabergs og Mikaels á Höfn sinna þessu verkefni, sem er á góðu skriði þessa dagana. Landbúnaðurinn skiptir máli „Þó að búið verði eitt af þeim stærstu landinu er það eitt og sér ekki endilega markmiðið. Þetta er samt þróunin. Verið er að stækka bú- in til dæmis hér eystra. Í Suðursveit, á Mýrum og í Nesjum; þar eru ekki nema ellefu kúabændur að Flateyj- arbúinu meðtöldu. Þá er enginn kúa- bóndi í Öræfum eða Lóni og hefur þeim fækkað mikið síðustu ár. Fjöldi gripa og mjólkurmagn hefur þó hald- ist svipað í alllangan tíma. Landbún- aðurinn skiptir miklu máli fyrir okk- ar samfélag,“ segir Gunnar Ásgeirsson. Í Flatey ganga kýrnar á sjálfvirka mjaltabása og vinnuaðstaðan er öll hin þægilegasta. Búreksturinn krefst því ekki þess mannafla sem ætla mætti. Friðrik Reynisson er bústjóri, Kristín Egilsdóttir er fjósameistari og Agnar Ólafsson, Páll Sigfinnsson og Atli Dagur Eyjólfsson eru al- mennir starfsmenn. Fleiri koma svo að búinu á sumrin, svo sem við hey- skap, en nytjuð tún á Flateyjar- jörðinni eru alls 240 hektarar. „Ég hef verið í landbúnaði alla mína tíð. Var lengi bóndi sjálfur og gef prófað flestar búgreinar og þetta hefur gengið upp og ofan. Núna bú- um við fjölskyldan í Lækjarhúsum, sem eru ekki langt héðan frá Flatey. Erum þar með hross og sinnum tamningum, en starfið hér er hinn fasti punktur og lífsviðurværi. Það eru auðvitað talsverð viðbrigði að vera launamaður í landbúnaði eftir að hafa lengi verið með eigin rekstur, en ég kann þessu vel,“ segir Friðrik Reynisson að síðustu. Uppbyggingin er samfélagsverkefni  Eitt stærsta fjós landsins í byggingu  240 kýr á Mýrum eystra  Ætla að framleiða 2 milljónir mjólkurlítra á ári Morgunblaðið/Sigurður Bogi Búmenn Fimm manns vinna við stórbúið í Flatey. Hér eru Agnar Ólafsson, til vinstri, og Friðrik Reynisson bústjóri. Framkvæmdir Búið er að steypa sökkla og gólfplötu nýja fjóssins, en vonir manna standa til þess að það verði tilbúið fyrir loks þessa árs. Flatey á Mýrum Flatey Hornafjörður Mýrar Loftmyndir ehf. BAKSVIÐ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Framkvæmdir við byggingu nýs fjóss í Flatey á Mýrum í Austur- Skaftafellsýslu, sem verður eitt hið allra stærsta á landinu, eru nú komn- ar á fullt skrið. Þessa dagana er verið að steypa sökkla og grunnplötu þessa mikla húss og reiknað er með að síðar í þessum mánuði verði komið með stóra límtrésbita sem verða burðarvirki. Er þess svo vænst að loka megi hús- inu fyrir haustið og hefja þá vinnu innan dyra, svo að fjósið megi taka í notkun í lok þessa árs. Þar verða þá alls um 240 kýr og mjólkur- framleiðslan á ári 1,8 til 2,0 milljónir lítra. Búreksturinn var að leggjast af „Við ætlum okkur að ná vel utan um reksturinn og byggja smám sam- an upp traustan efnahag. Gerum okkur þó vel grein fyrir því að útkom- an verði aldrei sérstaklega sterk, út frá þeim aðstæðum sem greinin býr við í dag. Við komum enda að þessu verkefni að miklu leyti út frá hags- munum samfélagsins í heild. Höfum ekki síst áhuga á því þess vegna. Búið í Flatey er mikilvægt fyrir byggð og atvinnulíf á svæðinu öllu. Fyrir okkur er þetta samfélagslegt verkefni,“ segir Gunnar Ásgeirsson, forsvars- maður Selbakka ehf. sem stendur að búinu í Flatey og þar með þessari miklu uppbyggingu. Gunnar er jafnframt stjórnar- formaður sjávarútvegsfyrirtækisins Skinneyjar-Þinganess á Höfn, sem á allt hlutfé í Selbakka. Stofnað var til búrekstrarins í Flatey fyrir um ára- Gunnar Ásgeirsson Með tilkomu nýja fjóssins í Flatey, þegar kýrnar þar verða orðnar alls 240 auk annarra nautgripa, er líklegt að einhverjir muni freistast til þess að kalla þetta verksmiðjubúskap. Hug- takið hefur á síðustu árum fengið fremur neikvæða merkingu með tilliti til velferðar dýra. Friðrik segist þó vara við slíkum staðhæfingum. Hvað varðar aðbúnað og umhirðu dýranna gildi eins og í öðru að veldur hver á heldur. Þannig munu kýrnar ganga fyrir opnum dyrum á sumrin og hafa gott aðgengi að beit. Þá verður rýmið á hvern grip í fjósinu talsvert meira en almennt þekkist í sveitum. „Miðað við að kýrnar verði 240 og að þær mjólka í tíu mánuði á ári og eru geldar í tvo þýðir það sennilega að frjótæknirinn eða sæðarinn sem sumir kalla svo þurfi að mæta dag- lega til okkar,“ segir Friðrik og held- ur áfram: „Ég er ánægður með hvernig til hefur tekist hingað til við búrekst- urinn. Nytin er góð,“ segir Friðrik og nefnir í því sambandi kúna Laufu 1089 sem er í Flateyjarbúinu. Hún skilaði rúmlega 13 þúsund kílóum í mjólkurtanka á síðasta ári og engin kýr á Íslandi var jafn afurðahá, sem segir sitt um að vel hafi tekist til. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fjósverk Kristín Egilsdóttir hugar að Laufu, afurðahæstu kú á Íslandi. Sæðarinn kemur daglega
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.