Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
klippið
Sendu okkur 5 toppa af Merrild
umbúðum og þú gætir unnið hina
sígildu kaffikönnu frá Stelton.
10 heppnir vinningshafar verða
dregnir út í hverri viku frá 30. júní til
1. september 2015, alls 100 talsins.
Þátttökuumslög í öllum verslunum. Á Facebook-síðu okkar, Facebook/Merrild á Íslandi, verða birt
úrslit auk frekari upplýsinga um leikinn.
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Eftir tæp tuttugu ár í Grindavík, þar
sem séra Jóna Kristín Þorvalds-
dóttir var sóknarprestur – og bæj-
arstjóri undir lokin, venti hún sínu
kvæði í kross og svaraði köllun sinni
sem prestur. Þegar sóknarprest
vantaði í Kolfreyjustaðarprestakalli
við Fáskrúðsfjörð, í þorpi þar sem
hún fæddist og ólst upp, sótti hún
um brauðið og fékk. Í haust eru liðin
sex ár síðan hún kom austur. „Á sín-
um tíma, 1989, vígðist ég sem svo-
kallaður farprestur austur í
Norðfjarðarprestakall, sem er sókn-
irnar á Norðfirði og í Mjóafirði. Það
má því segja að ég sé komin hring-
inn, aftur á Austfirði þar sem prest-
skapurinn hófst fyrir rúmum ald-
arfjórðung. Mér fannst gott að koma
hingað heim en viðheld tengslum
suður með sjó, þar sem elsta dóttirin
býr og barnabörnin og þar á ég líka
góða vini,“ segir Jóna Kristín og
heldur áfram skemmtilegri frásögn
sinni:
„Ef ég ber saman þessa staði tvo,
Grindavík og Fáskrúðsfjörð, þá eiga
báðir staðirnir djúpar rætur í sjó-
sókn og styrkar stoðir í öflugum
sjávarútvegsfyrirtækjum sem hafa
lagt grunninn að velferð og upp-
byggingu. Í smærri samfélögum
reynir oft meira á samheldni og sam-
stöðu. Það verður vel sýnilegt, bæði
þegar eitthvað bjátar á, ef þung áföll
verða og einnig þegar mikið stendur
til. Þetta sýndi sig líka vel núna á
dögunum þegar haldið var upp á 100
ára afmæli Fáskrúðsfjarðarkirkju.
Fjölmargir lögðu hönd á plóginn til
að gera afmælishátíðina að góðum
degi sem var staðnum til sóma.“
Franskur staður og
ferðaþjónusta vaxandi
Fáskrúðsfjörður er um margt
dæmigert kauptún úti á landi, hvar
íbúarnir byggja afkomu sína að lang-
mestu leyti á sjávarútvegi þó svo að
stoðir atvinnulífs þar séu nú orðnar
fleiri, bæði með tilkomu álversins á
Reyðarfirði og vaxandi ferða-
þjónustu.
Undanfarin misseri hafa verið
endurbyggð með miklum ágætum
söguleg hús, sem mynda í dag fal-
lega húsaþyrpingu og gegna hlut-
verki hótels og safns um tímabil
franskra sjómanna í firðinum. Teng-
ist þessi uppbygging vel við hátíðina
Franska daga, sem haldin er síðustu
helgi í júlí á sumri hverju. Þá er
minnst sögu og menningar frönsku
skútusjómannanna sem sóttu mikið
á Íslandsmið á fyrri öldum og fram á
þá síðustu og var Fáskrúðsfjörður
helsti viðkomustaðurinn fyrir Aust-
urlandi. Mannlíf í byggðinni mót-
aðist meðal annars af því, enda sér
franskra áhrifa víða stað. Má þar til
dæmis nefna að götur bæjarins eru á
skiltum einnig nefndar upp á
frönsku, sem vekur athygli.
Skotist milli staða
Á Fáskrúðsfirði búa nú rösklega
700 manns og er byggðarlagið hluti
af Fjarðabyggð. Vegtengingar eru
góðar. Með Fáskrúðsfjarðargöng-
unum sem tekin voru í notkun fyrir
tæpum áratug er fljótfarið til
Reyðarfjarðar, þangað sem margir
sækja vinnu, til dæmis í álver Alcoa
– Fjarðaáls.
„Byggðin hér á Fáskrúðsfirði var
ekki vel sett fyrir tíma jarðgang-
anna, þegar þurfti að fara fyrir
fjörðinn um erfiðar skriður. Nú er
skotist milli staða um risavaxinn bíl-
skúr. Bættar samgöngur eru for-
senda aukinnar samvinnu og sam-
runa milli staða. Með tilkomu
álversins hafa Austfirðir og Hérað
færst nær hvert öðru sem eitt at-
vinnusvæði. Þetta er nú stóra breyt-
ingin frá því áður. Og enn má vænta
meiri breytinga í þessa átt með til-
komu Norðfjarðarganga,“ segir
Jóna Kristín.
Í kalli sóknarprests á Fáskrúðs-
firði eru tvær kirkjur, það er forni
kirkjustaðurinn að Kolfreyjustað við
fjörðinn utanverðan og í þorpinu er
áður Fáskrúðsfjarðarkirkja. Ekki er
lengur talað um Búðakirkju, en Búð-
ir er hið gamla nafn kauptúnsins.
Treysti á jeppann
Þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins var eystra á dögunum og hitti
Jónu Kristínu var það á sunnudags-
morgni. Hún var þá til leið til messu,
en þennan dag var einmitt fyrrnefnt
kirkjuafmæli sem minnst var með
fjölsóttri hátíðarguðþjónustu. Af
kristniboðum heimsins eru til marg-
ar sögur og um harðdræg skilyrði til
þeirra við að koma mikilvægum boð-
skap á framfæri. En það er líka sagt
að trúin flytji fjöll – sem enginn
skyldi draga í efa. Fáskrúðsfjarðar-
presturinn er þó betur settur en
margir kollegar hennar, hvar hún er
á stórum Nissan Patrol-jeppa. Það
er bíll sem ekki bregst.
„Þessi gamli Patrol er eiginlega að
verða mér of kær,“ segir Jóna Krist-
ín og hlær. „Ég treysti mjög á hann
til að komast allra minna leiða og
enn hefur hann ekki brugðist mér í
ferðum. En það þykir mjög heppi-
legt à stað sem þessum að eiga
þokkalega búinn vetrarbíl og ég
keyri hann mikið, hvort sem er um
fjöll eða firnindi eða bara hér innan-
bæjar í firðinum fagra. Úti á landi
eru mikilvægt að vera á stórum og
traustum bíl, eigi hlutirnir í raun og
veru að ganga upp.“
Presturinn Jóna ekur
um þorpið á Patrol
Prestur og bæjarstjóri í Grindavík sneri aftur austur
Sinnir kristnihaldinu á Fáskrúðsfirði Franskur staður
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Messuferð Séra Jóna Kristín Þorvaldsdóttir í hempunni við jeppann góða sem aldrei hefur brugðist fyrir austan.
Austurland Liðlega 700 manns búa á Fáskrúðsfirði, sem er dæmigerður
landsbyggðarstaður, með sjávarútveg og ferðaþjónustu sem undirstöður.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
„Kirkjusókn, hún er og hefur
held ég á öllum tímum verið
nokkuð rokkandi. Í gegnum aldir
og ævi eru misjöfn skeið og
tímabil. En boðskapur Krists
hefur ekkert breyst og meðan
kirkjan stendur á því er hún og
verður, þó hún verði vissulega á
hverjum tíma að laga sig að
samtíma sínum,“ segir sér Jóna
Kristín Þorvaldsdóttir.
Kirkjustarf á Fáskrúðfirði á
rætur sínar bæði í hefð og
menningu, en einnig tekur það
mið af breyttum tíma. „Tilkoma
safnaðarheimilanna hefur stutt
við aukna fjölbreytni. Hér nýtum
við þá aðstöðu vel í æskulýðs-
starfi, þar eru líka foreldra-
morgnar og gott rými til nám-
skeiðahalds. Allt þetta starf er
hluti af grasrótinni og skilar sér
í góðri þátttöku í barna- og
æskulýðsstarfi,“ segir prest-
urinn.
„Hver starfsdagur kemur með
sín verkefni, sem oft eru harla
ólík og af ýmsum toga. Starfið
fellur illa að klukku og hefð-
bundnum starfsdegi, því auk
helgihalds, annarra kirkjulegra
athafna og safnaðarstarfs og til-
heyrandi ræðu- og skýrslugerða,
er sálgæsla oft töluverð og ann-
að tilfallandi er viðkemur ýms-
um þáttum mannlífsins. Fjölþætt
starf er snertir flesta strengi
mannlegrar tilveru bæði í gleði
og sorg,“ segir Jóna Kristín sem
er gift Birni Inga Knútssyni. Fyr-
ir á hún fimm dætur og hann
þrjú börn. Fjögur barna þeirra
búa eystra.
Kirkjan lagi sig að samtíma
STARFIÐ BYGGIST Á STERKARI HEFÐ
Kirkjan Varð nýlega 100 ára.