Morgunblaðið - 10.06.2015, Side 37

Morgunblaðið - 10.06.2015, Side 37
FRÉTTIR 37Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015 Eyþór Ingi Jónsson, organisti við Ak- ureyrarkirkju, varð var við gráþrast- arunga á ferð sinni um nágrenni Ak- ureyrar á dögunum en gráþrastavarp er tiltölulega sjaldgæft hér á landi. Jón Magnússon merkti ungann en hann er reyndur í þeim málum. „Ég merkti 1.400 fugla á síðasta ári, en hef aldrei merkt gráþrastarunga og aldrei séð,“ segir Jón en hann minnist þess ekki að varps þeirra hafi orðið vart fyrir norðan síðustu ár þótt dæmi um það séu vissulega til. Jón segir þá félaga stálheppna, enda hafi þeir leitað um allt að fuglinum. Þegar þeir settust niður í uppgjöf, hefði unginn loks látið sjá sig á trjá- grein, í augnhæð á milli þeirra félaga. Eyþór segir fleiri gesti hafa sést á svæðinu. „Í þessum sama reit voru bæði svartþrestir og skógarþrestir, þannig þar voru minnst þrjár þrast- artegundir, væntanlega allar verp- andi,“ segir Eyþór Ingi en hann fer um umrætt svæði af og til. Gráþrestir eru tíðir vetrargestir hér á landi og því heyrir til und- antekninga að þeir verpi. Staldri þeir við fram á vor skapast skilyrði fyrir varp eins og fyrir norðan. jbe@mbl.is Sjaldgæft gráþrastar- varp við Akureyri Fuglatalningamaður Jón Magnússon með einn gráþrastarunga. Ljósmyndir/Eyþór Ingi Jónsson Gráþröstur Sjaldséðir hér á sumrin. Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir, fulltrúi Fram- sóknarflokksins og annarra fram- farasinna í sveitarstjórn Rangárþings eystra, hefur sagt af sér. Hún segir ákvörðun- ina hafa átt sér langan aðdraganda og vísar til ágreinings við aðra fulltrúa meiri- hlutans. Fréttavefurinn Sunnlenska greindi frá því í janúar að Aðal- björg mætti ekki lengur á fundi sveitarstjórnar. Ástæðan var sögð trúnaðarbrestur innan meirihlut- ans vegna launakjara oddvitans. Í samtali við Sunnlenska sagðist Aðalbjörg vilja ná áttum eftir erfið samskipti við oddvita og sveitar- stjóra sem hefðu tekið á. Fulltrúi Framsóknar segir af sér í Rang- árþingi vegna deilna Deilur Laun oddvit- ans eru bitbein. Sigmundur Dav- íð Gunnlaugsson forsætisráð- herra hefur var- ið samtals 62 dögum í op- inberum ferðum erlendis það sem af er þessu kjörtímabili samkvæmt svari við skriflegri fyrirspurn Katrínar Júlíusdóttur, varaformanns Samfylkingarinnar. Nemur því ferðatími Sigmundar samanlagt um tveimur mánuðum, en yfirlitið í svarinu nær til loka maí á þessu ári. Fram kemur í svarinu að um samtals 17 ferðir er að ræða og hafa þær verið á bilinu 2-6 dagar. Heildarkostnaður vegna ferða Sigmundar er rúmar 16,7 millj- ónir króna, en að meðaltali hefur hver ferð kostað tæpa milljón króna. Með forsætisráðherra í för hafa verið einn til þrír fylgdar- menn. Hvert ferðalag kost- ar um milljón krónur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt konu í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt. Var konan fundin sek um að hafa á um það bil fjögurra ára tímabili dregið sér í 65 tilvikum samtals 953.416 krónur, í starfi sínu sem gjaldkeri hjá einkahlutafélagi. Í dómi héraðs- dóms kemur meðal annars fram að konan hafi ekkert greitt til baka, en hún játaði skýlaust brot sín við meðferð málsins. Dró sér rúmar 950 þúsund krónur Dómur Konan var fundin sek.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.