Morgunblaðið - 10.06.2015, Side 48

Morgunblaðið - 10.06.2015, Side 48
SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is Flakið af togaranum Surprise GK 4 frá Hafnarfirði gægist nú upp úr Landeyjasandi neðan við bæinn Sigluvík í Vestur-Landeyjum. Ný- sköpunartogarinn Surprise (sem merkir óvænt eða furða) var rúmlega 20 ára og nýkominn úr skveringu, grænmálaður og glæsilegur, þegar hann strandaði um klukkan 05.30 að morgni 5. september 1968. Um borð var 23 manna áhöfn. Henni var bjargað á hálftíma og vöknuðu skip- verjar ekki í fæturna þegar þeir voru dregnir í land í björgunarstól. Gerð var tilraun til að bjarga togaranum en veðrið kom í veg fyrir það og Surprise komst aldrei aftur á flot. Fjaran þar sem togarinn strand- aði er síbreytileg og stundum hefur skipsflakið horfið í sandinn jafnvel árum saman. Svo fer fjaran á flakk og sviptir hulunni af Surprise, alveg óvænt, líkt og nú er að gerast. Fyrstir á strandstað Jón Ágústsson, bóndi í Akurey í Vestur-Landeyjum, var 26 ára og bjó í föðurhúsum í Sigluvík þegar Surpr- ise strandaði. Jón man vel eftir strandinu. „Við faðir minn, Ágúst Jónsson, vorum fyrstir í fjöruna á bíl,“ sagði Jón. „Þetta var snemma um morgun. Það hringdi einhver upp á að komast fram úr og vildi fá okkur með. Við fórum bara á undan.“ Áhöfnin var enn um borð þegar feðgarnir úr Sigluvík komu í fjöruna. Togaramennirnir skutu línu í land og björgunarsveitin setti upp björg- unarstól. Gott veður var á meðan áhöfninni var bjargað í land. Rúta kom eftir skipverjum og flestir þeirra fóru beint suður. Nokkrir yfir- menn urðu eftir vegna þess að reyna átti að bjarga togaranum og komu m.a. heim í Sigluvík. Menn gerðu sér góðar vonir um að það tækist að draga Surprise á flot. Jón sagði að skipsflakið hefði alveg horfið í sandinn heilu árin. „Hann týnist eiginlega alveg. Svo kemur hann upp aftur. Það er svo mikil breyting á sandinum. Þetta er akkúrat sama og í Landeyjahöfn. Sandurinn er alltaf á fleygiferð. Höfnin fyllist á veturna, sandurinn er alltaf á ferðalagi. Þetta er ósköp svipað lögmál þarna,“ sagði Jón. Fór út af strikinu og strandaði Kristján Andrésson var skipstjóri á Surprise GK þegar togarinn strandaði og var þá búinn að vera með hann í tíu ár. Þeir voru að fiska fyrir siglingu til Þýskalands og voru aðallega á höttunum eftir ufsa. Túr- inn byrjaði suður af Reykjanesi og voru þeir komnir með um 70 tonn á fjórum sólarhringum. Þá kom slæm veðurspá og Kristján sagði að hann hefði ákveðið að færa sig á ný mið. Stefnan hafði verið sett norður fyrir Þrídranga og áfram austur með landinu þegar hann fór í koju. Hann vaknaði við vondan draum þegar Morgunblaðið/RAX Flakið í fjörunni Suðurströndin hefur orðið mörgum skipum að aldurtila. Landeyjasandur er síbreytilegur. Flakið af Surprise hefur grafist í sandinn og horfið sjónum manna jafnvel árum saman. Nú er aftur farið að örla á flakinu í fjöruborðinu en á stundum hefur flakið verið langt uppi á kambi. Stingst óvænt upp úr sandi  Flakið af togaranum Surprise GK 4 sést nú á Landeyjasandi  Togarinn strandaði í september 1968  Stundum hefur flakið horfið algerlega í sandinn en nú er það aftur að koma í ljós 48 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015 „Ég tók fyrst eftir flakinu fyrir rúmum mánuði,“ sagði Gísli Matthías Gíslason, þyrluflug- maður hjá Norðurflugi. Hann er ættaður úr Vestmannaeyjum og á oft leið með Suðurströndinni. Þá er Gísli af sjómönnum kominn og er áhugasamur um sjóferða- söguna. Ragnar Axelsson ljós- myndari var einmitt í flugferð með Gísla þegar stóra myndin hér á opnunni var tekin. Gísli sagði að fyrst hefði hann séð þegar gufuketillinn fór að stinga kollinum upp úr sand- inum. „Ég hélt að þarna væri bara ketillinn. Svo er ég búinn að fara nokkrar ferðir síðan og það hefur alltaf komið meira og meira í ljós af skipinu.“ Nú má greinilega sjá móta fyrir útlínum skipsins. Gísli sagði að flakið væri alveg í fjöruborðinu og út- línur skrokksins sjást ekki nema á fjöru. Skrokkurinn virðist vera nokkuð heillegur en yfirbygg- ingin er löngu horfin. Hún var yfir þar sem ketillinn var í vél- arrúminu. Gísli merkti inn á kort stað- setningu flaksins nokkurn veg- inn. Hann setti einnig mynd af skipsflakinu og færslu í umræðu- hóp á Facebook, Gömul íslensk skip, hinn 3. júní sl. Mikil umræða spratt upp um hvaða skipi flakið tilheyrði og komu ýmsar tilgátur þar um. Í gær höfðu verið skráðar 107 færslur um flakið sem sýnir að talsverður áhugi er á gömlum skipsflökum. Sá flakið fyrir rúmum mánuði Morgunblaðið/RAX Flugstjórinn Gísli Matthías Gíslason, þyrluflugmaður hjá Norðurflugi, fór að sjá örla fyrir flakinu af togaranum Surprise fyrir um mánuði. SÖLUAÐILAR: Reykjavík: Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100 | Gullúrið Mjódd s: 587-4100 | GÞ skartgripir og úr Bankastræti 12 s: 551-4007 | Meba Kringlunni s: 553-1199 | Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 | Rhodium Kringlunni s: 553-1150 | Jón Sigmundsson skartgripaverslun Laugavegi 5 s: 551-3383 | Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665 | Hafnarfjörður: Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 | Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 | Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 | Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 | Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 | Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.