Morgunblaðið - 10.06.2015, Blaðsíða 90
90 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015
Smáauglýsingar 569
Ýmislegt
VIÐ BREYTUM OG RÝMUM!
Úrval af vönduðum leðurskóm
fyrir dömur á 50% afslætti!
Teg. 5602 Verð áður: 14.685.-
Verð nú: 7.342.-
Teg. 7904 Verð áður: 14.685.-
Verð nú: 7.242.-
Teg. 2766 Verð áður: 14.785.-
Verð nú: 7.392.-
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
Sendum um allt land
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
3 GÓÐIR !
Teg 12208 - spangarlaus, fæst í
hvítu og svörtu í stærðum 75-95 C,D
á kr. 5.700,-
Teg 13012 - haldgóður, mjúkur í 80-
100 C,D,E á kr. 5.700,-
Teg 81103 - létt fylltur í stærðum
70-85B og 75-90C á kr. 5.700,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
Nýjar
spennandi
vörur
Póstsendum
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Kíktu á heimasíðuna
lifstykkjabudin.is
Mikið úrval
Fylgstu með á Facebook
Frú Sigurlaug
Mjóddin
s. 774-7377
Sundbolir • Tankini
Bikini • Strandföt
Náttföt • Sloppar
Undirföt • Undirkjólar
Inniskór • Aðhaldsföt
Kæri Konni.
Mig langar að
minnast þín með
nokkrum orðum og
reyna að vera ekki
væminn því ég veit að þér þótti
ekkert væmnara en þegar allir
voru orðnir „ástkærir og elsku-
legir“ eftir að hafa kvatt þetta líf.
Ég ætla hins vegar frekar að
reyna að minnast góðu tímanna
og samverunnar með þér.
Ég man vel hvað þið Svava
tókuð vel á móti mér þegar við
Sigrún kynntumst rétt um tví-
tugt og ég kom fyrst norður í
Burstabrekku.
Með okkur tókst strax traust
samband sem einkenndist af
gagnkvæmri virðingu. Og margt
höfum við brasað saman, aðstoð-
að hvor annan við húsbyggingar
og alls konar smíðavinnu. Ég
minnist líka frásagnanna þinna,
þú hafðir gaman af að segja frá
því sem á daga þína hafði drifið
og ekki síst frá því í gamla daga.
Þar áttir þú af nægu að taka.
Þegar við Sigrún bjuggum í Sví-
þjóð komuð þið Svava í heimsókn
Konráð
Gottliebsson
✝ Konráð fæddist30. apríl 1930,
hann lést 30. maí
2015.
Útför Konráðs
fór fram 5. júní
2015.
en það var seinni
ferð þín út fyrir Ís-
land. Þú sagðir allt-
af: „Ég þarf ekki að
skoða heiminn í
þessu lífi, ég geri
það þegar ég er far-
inn. Þá hef ég nógan
tíma.“
Með síðustu
minningum er þeg-
ar þú komst suður
til okkar eftir ára-
mótin síðustu og Sigrún kom þér
að hjá augnlækni með stuttum
fyrirvara.
Skipti engum togum að á
tveimur dögum var skipt um
augasteina í þér og okkur fannst
svo fyndið að sjá þig skyndilega
lausan við gleraugun sem þú
varst búinn að vera með frá ung-
lingsárum.
Og mikið er búið að hlæja með
þér, eftir að þú komst suður og
lást á Landspítalanum, á hverj-
um degi vildir þú fá „Rauð“ send-
an suður svo þú gætir farið norð-
ur að sjá lömbin þín nýfædd.
Já, nú er komið að hinstu
kveðjustund, Konni. Ég þakka
þér fyrir allar samverustundirn-
ar og ég veit að nú munt þú fara
og hitta tvíburana, skoða ný-
fæddu lömbin og allan heiminn,
með nýju augunum þínum.
Minningin lifir,
Ólafur Haukur.
Það er mér ljúft
að skrifa nokkur
orð um góða vin-
konu og nöfnu.
Gunna eins og hún var jafnan
kölluð af þeim næstu, ólst upp
við óblíð náttúruöflin á Horn-
ströndum, nánar tiltekið í Horn-
vík. Það hefur sennilega lagt
hornsteininn að hennar lífi því
ósérhlífni einkenndi hana alla tíð.
Nærveran við móður náttúru
hefur sennilega eflt næmi henn-
ar, hún var mikill dýravinur og
átti við þau sérstakt samband.
Stundum rifjaði hún upp sögur
úr æskunni og fann ég að erf-
iðast hjá henni var að tala um
þegar stóð til að slátra vinunum.
Þá fór hún með hundinn og faldi
sig þar til allt var yfirstaðið. Hún
sagði að þetta hefði verið kallað
tilfinningasemi í þá daga. Guð-
rún fór vel með sínar Guðs gjafir
og næmleiki hennar fyrir lífinu
var sterkur.
Dugnaður einkenndi hennar
líf og ekkert virtist of erfitt að
Guðrún Elín
Kristinsdóttir
✝ Guðrún ElínKristinsdóttir
fæddist 5. nóv-
ember 1923. Hún
lést 18. maí 2015.
Útför Guðrúnar
fór fram 27. maí
2015.
yfirstíga. Hún kom
drengjunum sínum
vel til manns og veit
ég að þeirra er
þakklætið. Það var
ekki til kynslóðabil í
hennar huga og
börn hændust að
henni, enda gjaf-
mild og kærleiksrík
með afbrigðum.
En heilsuleysi
síðastliðinna ára tók
sinn toll og þar stóð Torfi eig-
inmaður hennar hæst og best, en
hann lést þann 11. febrúar sl.
Kletturinn í hennar lífi, meðan
hans heilsa entist. Ófáar heim-
sóknir átti ég á Seilugrandann
og síðar Sléttuveginn þar sem
þau bjuggu í níu ár þar til þau
urðu að flytja á heimili fyrir aldr-
aða, Litlu-Grund. Þar var vel
hugsað um þau þar til yfir lauk.
Alltaf stóð þeirra heimili mér
opið, gestrisnin og hlýjan í fyr-
irrúmi. Að leiðarlokum vil ég
þakka þeim heiðurshjónum Guð-
rúnu og Torfa fyrir að vera stór
hluti af mínu lífi frá því að ég var
unglingur og bið Guð að geyma
þau.
Sæbirni, Inga, Kidda og Betu
og þeirra fjölskyldum sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur
Elín Eygló Steinþórsdóttir.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn-
ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein-
göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar