Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Page 42
42 Föstudagur 28. nóvember 2008 Jólablað
Jólaherbergi
barnanna
Jólin eru hátíð barnanna og að skreyta heimilið fyrir jólin getur orðið mikið tilhlökkunarefni fyrir þau. Að fá
að skreyta sitt eigið herbergi gæti því orðið ævintýralegt þar sem barnið er konungur í eigin höll. DV gefur
nokkur ráð um hvernig hægt er að skreyta herbergi barnanna.
Börnin hafa jafngaman af því að
skreyta eins og fullorðna fólkið. Þó
að börn taki jafnmikinn þátt í skreyt-
ingum heimilisins finnst þeim æð-
islegt að fá að skreyta sitt eigið her-
bergi.
Oft eru foreldrar og börn ekki
sammála um hvernig raða skuli
skrautinu og geta börnin fengið út-
rás fyrir sköpunargleðina í sínu eig-
in herbergi. Það er mismunandi eftir
aldri barnsins hversu vel og hvernig
skreyta má herbergið. Eftir því sem
þau eru eldri er auðveldara að gefa
þeim lausan tauminn. Þegar hafist
er handa við skreytingar finnst ef-
laust eitthvað skraut sem foreldrarn-
ir eru hættir að nota eða vilja hætta
að nota. Það er því kjörið að endur-
nýta skrautið og gefa það til barn-
anna í stað þess að henda því. Góð
afsökun fyrir húsmæður að eignast
nýtt jólaskraut.
Fyrst þarf auðvitað að setjast nið-
ur með barninu og ræða hvað má og
hvað má ekki. Hægt er að vera með
leiðandi stjórnhætti með því að gefa
barninu hugmyndir og leyfa því svo
að fylgja þeim eftir. Það skraut sem á
að fara upp þarf að fara yfir með barn-
inu. Athuga hvað það vill nota sjálft.
Svo má leyfa barninu að spreyta sig.
Gott er að fylgjast aðeins með svo
hlutirnir fari ekki úr böndunum. Því
eldra sem barnið er þarf minna að
fylgjast með. Þó að það geti reynt á
taugarnar hjá foreldrunum að horfa
upp á herbergi barnsins drekkhlað-
ið ósamstæðu skrauti getur það ekki
verið annað en virði þess að sjá barn-
ið sitt gleðjast yfir sjálfstæðinu.
DV gefur nokkrar hugmyndir um
hvað er hægt að gera í barnaherberg-
inu og hvað þarf til.
Jólatré
Það er eflaust fátt eins spennandi
fyrir krakkana en að fá sitt eigið
jólatré. Þegar farið er að kaupa eða
höggva jólatré er tilvalið að grípa eitt
lítið með. Ekki henda gömlu jóla-
skrauti heldur notið það á barnajóla-
tréð. Einnig er hægt að nota umfram
skraut en á svo lítil tré þarf ekki mik-
ið til. Gamlir jólatrésfætur eru einnig
góðir og gildir. Leyfið svo barninu að
skreyta tréð sjálft.
Músastigi
Músastigar eru eitt helsta skreyting-
artæki grunnskólanna svo börnin
læra að gera hann mjög snemma. Ef
þau koma ekki með einn slíkan heim
úr skólanum er tilvalið að eyða einni
kvöldstund í að búa til flotta mús-
astiga. Það sem þarf er kreppappír,
skæri og heftari. Kreppappírinn er
klipptur upprúllaður í litla hluta og
raðaður saman til skiptis og í kross.
Endarnir eru svo heftir saman. Einn-
ig er hægt að gera músastiga með
því að klippa pappír í litla strimla og
búa til hringi sem heftaðir eru sam-
an. Börnin þurfa svo aðstoð við að
hengja hann upp.
JólalJós
Börn hafa svo gaman af jólaljósum
í gluggann að það er varla hægt að
sleppa þeim. Hægt er að leyfa þeim
að velja hvernig liti þau vilja hafa.
Einnig hvort þau vilji jólaseríu, jóla-
stjörnu, jólafígúru eins og snjókarla
og jólasveina. Ef eitthvað ákveðið er
stílbrot við aðra glugga í húsinu er
til fullt af öðrum hugmyndum sem
börnin geta stjórnað.
Jólaföndur
Tilvalið er að nota allt jólaföndrið
sem barnið kemur með heim úr
skólanum til að skreyta barnaher-
berið séu þau búin að gefa mömmu
og pabba nóg. Hvort sem það eru
englar sem standa, myndir til að
hengja á vegginn eða jólakúlur úr
myndmenntinni er hægt að nýta það
á góðan hátt.
ilMur
Jólailminn má ekki vanta og þarf
ekki annað til en ávexti. Það er þar
að auki hættulaust skraut. Af hverju
ekki að láta lítil epli og mandarín-
ur í skál sem krakkarnir geta fengið
sér úr þegar þau vilja? Þótt þau verði
stundum södd getur það ekki verið
slæmt að fá góðan skammt af vítam-
ínum í kroppinn.
Eigið jólatré Börnin hafa
gaman af því að fá sitt eigið
jólatré í herbergið.
Jólaskraut barnanna Hafa
þarf í huga að jólaskrautið sé
að mestu hættulaust