Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2012, Side 98

Náttúrufræðingurinn - 2012, Side 98
Náttúrufræðingurinn 98 Gunnar Bjarnason og Hreinn Haraldsson Jarðfræði og vegagerð Í greininni er birt yfirlit yfir jarðfræðilegar rannsóknir vegna vegagerðar. Þorleifur Einarsson var frumkvöðull í slíkum rannsóknum hér á landi og vakti athygli ráðamanna á mikilvægi rannsókna í vegagerð auk þess sem hann vann mikið starf sem ráðgjafi Vegagerðarinnar á sviði umhverfis- mála. Fjallað er í stuttu máli um sögu vegagerðar á Íslandi en síðan um rannsóknir við undirbúning vegagerðar, brúargerðar og jarðganga. Mismiklar kröfur eru gerðar til steinefna eftir því til hvaða nota þau eru ætluð og eru þær mestar þegar steinefni í efri lög vegarins og til stein- steypuframleiðslu eru annars vegar. Hinar ýmsu jarðmyndanir setlaga og berglaga hafa mismunandi efniseiginleika, m.a. hvað varðar korna- dreifingu og berggæði, og það er mikilvægt hlutverk jarðfræðinga að velja þær jarðmyndanir sem henta til framleiðslu steinefna til mismun- andi nota. Ávallt þarf að hafa í huga að efnistakan og mannvirkjagerðin valdi sem minnstum umhverfisspjöllum. Náttúrufræðingurinn 82 (1–4), bls. 98–104, 2012 Ráðgjafarstörf Þorleifs Einarssonar við mann- virkjagerð Eftir heimkomu frá námi starfaði Þorleifur Einarsson fyrstu árin við Atvinnudeild Háskólans, sem eftir það markaði töluvert afstöðu hans til hagnýtrar jarðfræðiþekkingar í þágu framfara og úrbóta á ýmsum sviðum. Hann lagði metnað sinn í að vekja athygli ýmissa forsvars- manna í atvinnulífinu á hagnýtu gildi jarðfræðiþekkingar og skapaði mörg tækifæri fyrir unga jarðfræð- inga til að nýta menntun sína í starfi. Oft leiddi það síðan til þess að sú starfsstétt varð ómissandi hluti af sérfræðiþekkingu stofnana og má nefna Vegagerðina sem gott dæmi þar um. Þorleifur sýndi vegamálum og mannvirkjum sem þeim tengj- ast alla tíð mikinn áhuga. Vegagerð fylgir hagnýting jarðefna og tölu- vert jarðrask og um þá þætti veitti Þorleifur starfsmönnum Vegagerðar- innar lengi ýmis ráð og leiðbein- ingar áður en jarðfræðingar urðu fastir starfsmenn á stofnuninni. Góð umgengni um náttúruna var honum hugleikin, jafnframt því sem hann var talsmaður þess að nýta gæði hennar og auðlindir. Þorleifur var lengi fulltrúi og eftirlitsmaður Nátt- úruverndarráðs við verklegar fram- kvæmdir og undirbúning mann- virkjagerðar á stórum hluta lands- ins. Þá reyndi oft á þetta samspil og að mati Vegagerðarinnar reyndist hann þar góður sáttasemjari. Hann hafði gott auga fyrir því hvernig fella mætti mannvirki að landslagi þannig að vel færi og sjónmengun og náttúruspjöll yrðu í lágmarki. Þorleifur vann mikið fyrir Vega- gerðina að jarðfræðirannsóknum vegna jarðgangagerðar í Strákum við Siglufjörð og í Oddsskarði milli Eskifjarðar og Norðfjarðar. Einnig hóf hann fyrstu athuganir við undirbúning ganga í Breiðadals- og Botnsheiði og í Ólafsfjarðar- múla. Hann sýndi eftir það slíkri mannvirkjagerð einlægan áhuga og fylgdist af kostgæfni með undir- búningi og gerð Vestfjarðaganga og Hvalfjarðarganga og öðrum hug- myndum sem upp komu um slík mannvirki. Einnig vann hann að skoðun og úttekt á undirstöðum brúa víða um land, ekki síst þar sem óvissa var fyrir hendi um jarð- fræðilegar aðstæður sem gátu haft veruleg áhrif á mannvirkjagerðina. Þótt samstarfið við Vegagerðina hafi minnkað þegar stofnunin hóf að ráða til sín eigin jarðfræðinga, ekki síst að tilhlutan hans sjálfs, fylgdist hann áfram með framgangi mála og hafði oft samband við ýmsa starfsmenn. Vegagerð í árdaga og fram á okkar daga Fyrstu frásögn af vegalagningu á Íslandi er að finna í Eyrbyggju, þar sem lýst er vegagerð um Berserkja- hraun á Snæfellsnesi. Fyrstu ákvæði varðandi slíkar framkvæmdir eru svo í Jónsbók frá 1281. Eins og gefur að skilja var fyrstu aldirnar ein- göngu um reiðvegi að ræða og vega- gerðin fólst einkum í því að „velta steini úr götu“ og gera „brýr“ úr upphlöðnu torfi yfir verstu keldur. Var þetta einkum gert með skyldu- vinnu bænda. Í konungsbréfi frá 1776 eru síðan fyrstu tæknilegu ákvæðin um vegagerð á Íslandi. Þar segir að sýslumenn skuli sjá um að árlega séu ruddir vegir um byggðir og styttri fjallvegir milli byggða „og skal breidd veganna vera ekki
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.