Gripla - 20.12.2014, Page 143
143
HAUkUR ÞORGeIRssON
DrÓttKVÆÐur HEIMSÓSÓMI1
hé r er geFiÐ út kvæði sem nefnist Heimsósómi og er 26 dróttkvæð
erindi. Verkið er varðveitt í AM 713 4to (skrifað um 1540–1560), Sth. perg.
23 4to (frá lokum 16. aldar) og Vísnabók Guðbrands Þorlákssonar biskups
(prentuð 1612). Málfar og stíll kvæðisins benda til að það sé varla eldra en
frá um 1500. Kvæðið gagnrýnir valdníðslu yfirstéttarinnar og hefur sterk
efnisleg líkindi við þann Heimsósóma sem kenndur er við Skáld-Svein. Hér
er á ferð eina kvæðið undir dróttkvæðum hætti sem ort er fyrir siðaskipti
en aldrei hefur birst í fræðilegri útgáfu. Það hefur nokkurt gildi fyrir sögu
þess bragarháttar og fyrir sögu ádeilukveðskapar á síðmiðöldum.
Handrit og útgáfur
Heimsósómi hefur ekki verið tekinn upp í útgáfur dróttkvæða enda hefur
hann þótt of unglegur til þess. jón Helgason ráðgerði að birta hann í
þriðja bindi Íslenzkra miðaldakvæða en það bindi kom aldrei út.2 kvæðið
er prentað með nútímastafsetningu og nokkrum skýringum í endurútgáfu
Vísnabókarinnar árið 2000 en þar er, eins og gefur að skilja, ekki tekið tillit
til handritanna.3 Fyrsta erindið er birt hjá jóni Þorkelssyni í riti hans Om
digtningen på Island i det 15. og 16. århundrede sem kom út 1888.4
kvæðið er, sem fyrr segir, varðveitt í þremur heimildum sem hafa texta-
1 Hersteini Brynjólfssyni þakka ég ítarlegar athuganir á huldu orði í vísu 13. Katrínu Axels-
dóttur, Helga guðmundssyni og Helga Skúla Kjartanssyni þakka ég ábendingar um túlkun
áttundu vísu.
2 Martin Chase, „Devotional Poetry at the End of the Middle Ages in Iceland,“ í Eddic,
Skaldic, and Beyond. Poetic Variety in Medieval Iceland and Norway, ritstj. Martin Chase
(new York: fordham university Press, 2014), 149.
3 Vísnabók Guðbrands, útg. Jón torfason og Kristján Eiríksson (reykjavík: Bókmennta-
fræðistofnun Háskóla íslands, 2000), 230–233 (texti) og 471 (skýringar).
4 jón Þorkelsson, Om digtningen på Island i det 15. og 16. århundrede (Kaupmannahöfn: Høst,
1888), 103.
Gripla XXV (2014): 143–161