Gripla - 20.12.2014, Page 144
GRIPLA144
gildi. fyrst er að telja AM 713 4to (47r–48v), mikið safn af helgikvæðum
ritað um 1550. Þá er Vísnabók Guðbrands, prentuð 1612 en í henni er all-
nokkuð af kvæðum úr kaþólskum sið.5 Á blaðsíðu 193 hefst seinni hluti
bókarinnar og kemur þar fram í yfirskrift að hér séu prentuð „gømul og
god Kuæde og Vijsur fyrre Manna og forfedra huar af vier meigum sia
og merkia og Gude þacka ad j þeim blinda pauadome hafa marger haft
goda og sanna Kynning a Almattugum gude“. Á bls. 202 er yfirskriftin
„um Synder og osoma þessa Heims / gaumul Kuæde“. Þar kemur fyrst
Heimsósómi Skáld-Sveins og síðan það kvæði sem hér er gefið út. Loks er
kvæðið í sth. perg. 23 4to (36r–37r) sem er safn af rímum og veraldlegum
kvæðum frá lokum sextándu aldar. Hér eftir vísa ég til heimildanna þriggja
sem 713, v og 23.
Um samband heimildanna eru engar óyggjandi sannanir fyrir hendi.
Engar líkur eru til að 713 sé frumrit kvæðisins en það er elsta heimildin
og ekki ofsagt að kvæðið hafi þar upprunalegastan svip. er því sjálfsagt að
leggja það til grundvallar. greinilegt er að V og 23 eiga sér oft sameiginlega
lesháttu gegn 713. Allvíða eru þeir leshættir merkingarlega og bragfræðilega
til bóta. Hef ég þá leiðrétt textann eftir þeim í þeirri von að sameiginlegt
forrit v og 23 hafi varðveitt upphaflegan texta. Þessar yngri heimildir eiga
sér þó einnig sameiginlegar villur, allskýr dæmi eru t.d. í 12.5, þar sem
mannkenning hefur afbakast, og 8.7–8.8, þar sem snúin orðaröð hefur
ruglað uppskrifara í ríminu. Mér þykir því líklegast að sameiginlegt forrit
23 og V hafi verið systurhandrit 713:
5 Ein Ny Wiisna Bok: Med mỏrgum andlegum Viisum og Kuædum Psalmum, Lof sønguum og
Rijmum, teknum wr heilagre Ritningu. Almuga Folke til gagns og goda Prentud, og þeim ødrum
sem slijkar Vijsur elska vilia, og jdka Gude Almattugum til Lofs og Dyrdar, enn sier og ødrum
til Gagns og Skiemtunar, útg. guðbrandur Þorláksson (Hólum: [án útg.], 1612), 204–206,
stafræn endurgerð á http://baekur.is/bok/000594811/Ein_ny_Wiisna_Bok, sótt 29.
nóvember 2014.
Mynd 1: Líkleg tengsl heimildanna
*X
713 *y
23 v