Valsblaðið - 01.05.2014, Side 9
Valsblaðið 2014 9
Starfið er margt
barna- og unglingasviði félagsins með
ýmsum fjáröflunum og styrkjum. Að lok-
um stóð svo Valskórinn fyrir glæsilegum
jólatónleikum 14. desember síðastliðinn
sem enginn Valsari hefði átt að láta
framhjá sér fara.
Að lokum vil ég óska öllum Völsurum,
fjölskyldum þeirra og ástvinum gleði
legra jóla og farsældar á nýju ári.
Áfram Valur
Björn Zoëga formaður
af Herrakvöldi Vals sem aldrei hafði ver-
ið fjölmennara og er stefna að gera
ennþá betur á næsta ári, á báðum víg-
stöðum.
Golfmót Vals var haldið í september
og var þátttaka í mótinu góð. Hið árlega
skákmót Vals var líka haldið og sömu
sögu er að segja um bridsmót Vals.
Mikill kraftur var í öðru hópastarfi,
Fálkarnir héldu vel utan um sín mál og
hittust reglulega, einu sinni í mánuði, og
halda áfram að styðja vel við bakið á
sem fór alla leið í oddaleik. Var þetta
108. titill sem félagið vinnur í einum af
þremur stærstu hópíþróttagreinum lands-
ins, fleiri titla hefur ekkert annað félag
unnið í þessum greinum. Eftir handknatt-
leikstímabilið lét Stefán Arnarson, þjálf-
ari liðsins til fjölda ára, af störfum – eru
honum færðar sérstakar þakkir fyrir sitt
framlag til félagsins.
Meistaraflokkur karla í handbolta fór
alla leið í undanúrslit í baráttu sinni um
Íslandsmeistaratitilinn en datt þar út í
oddaleik gegn Íslandsmeisturum ÍBV.
Mikill kraftur hefur þó einkennt liðið á
þessari leiktíð og eru þeir efstir í Olís-
deild karla þegar þetta er skrifað.
Kvennaliðið okkar í körfuknattleik
stóð sig með mikilli prýði en datt því
miður út í undanúrslitum í baráttu sinni
um Íslandsmeistaratitilinn. Karlalið Vals
í körfubolta átti því miður ekki nægilega
góðu gengi að fagna og féll úr deild
þeirra bestu en stefnir auðvitað beint upp
aftur.
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu
setti sér markmið um að komast í Evr-
ópusæti sl. sumar sem hefði verið frábær
árangur. Liðið var í baráttu um Evrópu-
sæti nánast allt tímabilið en að lokum
vantaði herslumuninn upp á og lenti liðið
í 5. sæti Pepsideildar karla. Kvennaliðs
Vals í knattspyrnu átti ekki sitt besta
sumar en meiðsli og veikindi settu strik
sitt í leikmannahóp liðsins sem að lokum
endaði í 7. sæti Pepsideildar kvenna.
Þess ber þó að geta að margir ungir og
efnilegir leikmenn fengu sitt fyrsta tæki-
færi í sumar og er ljóst að meistaraflokk-
ur kvenna á bjarta framtíð fyrir sér.
Félagsstarfið í Val
Eins og áður voru fastir liðir í okkar
blómlega félagsstarfi. Konukvöld Vals
var haldið í mars sl. og var mæting með
hinu besta móti. Sömu sögu er að segja
Valsarafjölskyldan Zoëga. Frá vinstri. Hjónin Jón Gunnar Zoëga og Guðrún Björnsdóttir
ásamt sonum sínum, Birni Zoëga, Gunnari Zoëga og Sveini Zoëga á afmælisdegi Vals
11. maí 2014, skömmu eftir að Björn tók við formennsku í Kattspyrnufélaginu Val.
Hattur séra Friðriks. Á jólafundi fulltrúaráðs Vals 2014 afhenti Björn Zoëga
formaður Vals Guðna Olgeirssyni ritstjóra Valsblaðsins til 12 ára Hatt séra
Friðriks. Um er að ræða nýlega hefð hjá fulltrúaráðinu að veita einum ein
staklingi árlega viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu félagsins. Var þetta í
annað sinn sem slíkt er gert, en Elías Hergeirsson fékk fyrstur Hatt séra Frið
riks á síðasta ári.
Mikilvægir sjálfboðaliðar standa vaktina í
miðasölunni hjá Val á heimaleikjum. Frá
vinstri: Helena Þórðardóttir, Dagný
Arnþórsdóttir og Magdalena Kjartansdóttir.