Valsblaðið - 01.05.2014, Page 12
12 Valsblaðið 2014
eftir Ragnar Vignir
Þetta eru þær minningar sem koma fyrst
upp þegar ég hugsa um Val, sannarlega
eftirminnilegar.
Kæri Valsari. Það eru forréttindi að fá að
vera hluti af þessu sigursæla félagi okk-
ar. Við verðum alltaf að vera til staðar
fyrir okkar félag, þegar vel gengur og
líka þegar illa gengur. Það er einmitt í
mótbyr sem stuðningurinn kemur hvað
mest í ljós. Ert þú ekki örugglega Valsari
bæði í blíðu og stríðu?
Vonandi, því mikið svakalega er gam-
an að vera Valsari.
Það eru forréttindi að vera hluti af jafn
frábæru Knattspyrnufélagi og Valur er.
Félagið okkar er sigursælasta boltafélag
á landinu ef þú vissir það ekki. Valur er
ekki eingöngu í þessari stöðu sökum
allra sigranna á vellinum því hluti þess-
ara sigra er vegna stuðningsmannanna,
stjórnarmannanna og starfsmannanna
sem til viðbótar við leikmenn leggjast á
eitt við að gera sitt besta fyrir félagið, fé-
lagið okkar. Valur sameinar okkur öll því
við viljum tengja okkur við eitthvað
stærra sem skiptir okkur máli.
Fyrir mér er það ekki áhugamál að
vera Valsari, það er lífsstíll. Sem betur
fer er hægt að verða Valsari strax í barn-
æsku með því að fara á völlinn og styðja
sína menn eða að, fara á Hlíðarenda í
Íþróttaskóla Vals, þar sést merki félags-
ins strax.
Eftir því sem árin líða finnur maður að
það er eitthvað smitandi við félagsand-
ann í Val, einstaklingar verða hluti af
liðsheild, hittast reglulega á Hlíðarenda
af ýmsum tilefnum.
Valur er sigursælasta boltafélagið hér-
lendis eins fyrr kom fram og af því leiðir
að margir afar færir íþróttamenn/konur
hafa keppt fyrir félagið okkar. Nöfnin
eru of mörg til að telja hér upp en bara
við að skrifa þetta koma nokkur nöfn og
atvik upp í hugann. Þessir einstaklingar,
öll sigursælu liðin sem félagið hefur átt í
gegnum árin og áratugina hafa gefið ótal
minningar, góðar og aðeins verri sem
aldrei gleymast.
Að vera
Valsari …
Sem betur fer ert ÞÚ, kæri lesandi í
sömu sporum og ég, Þú ert Valsari
… Manstu:
• Þegar Anthony Karl Gregory jafn-
aði gegn KA í Mjólkurbikarnum í
fótbolta 1992?
• Þegar Dagur Sigurðsson kom
„okkur“ í framlengingu í hand-
boltanum gegn KA 1995?
• Þegar Hrafnhildur Skúladóttir
tryggði „okkur“ titilinn í bráða-
bananum gegn Fram 2011?
• Þegar Valur féll í fyrsta skiptið í
fótboltanum í Grindavík árið
1999?