Valsblaðið - 01.05.2014, Qupperneq 13
Valsblaðið 2014 13
Ungir Valsarar
Margrét byrjaði fyrst að æfa hand-
bolta þegar hún var 9 ára en hætti eft-
ir stuttan tíma og fór að æfa skauta í
nokkur ár. Síðan ákvað hún í 5. flokki
á eldra ári að fara aftur yfir i hand-
boltann og hún sér ekki eftir að hafa
byrjað aftur.
Hvers vegna handbolti, hefur þú æft
aðrar greinar? „Mér þykir handbolti
mjög skemmtileg íþrótt og hef haft
áhuga í langan tíma en eins og áður kom
fram hef ég æft skauta, ég hef líka eitt-
hvað prufað mig áfram í dansi, það hent-
aði mér ekki heldur.“
Hvernig gengur ykkur á þessu ári?
„Okkur hefur ekki alveg gengið nógu vel
í ár í deildinni en erum á uppleið. Við
tókum þátt í Reykjavíkurmótinu og okk-
ur gekk mun betur þar en okkur er búið
að ganga í deildinni. Hópurinn er mjög
sterkur og góður, skemmtilegar stelpur
sem ég er að æfa með.“
Hvernig eru þjálfararnir? „Arnar Daði
er núna að þjálfa 3. flokkinn og mér þyk-
ir hann góður þjálfari, hann hlustar á
hvað maður hefur að segja og sýnir
metnað við þjálfun. Það sem mér þykir
einkenna góðan þjálfara er að hann hlust-
ar, sýnir metnað og gerir kröfur til leik-
manna.“
Skemmtileg atvik úr boltanum. „Það
sem er mér ofarlega í huga var þegar lið-
ið mitt vann fyrsta leikinn sinn. Þá vor-
um við staddar í Eyjum á Vestmanna-
eyjamótinu allar tiltölulega nýbyrjaðar í
handbolta og höfðum ekki unnið leik, þá
lentum við á móti liði sem var líka ný-
byrjað og við unnum þær 3-2. Það ríkti
mikil gleði innan liðsins og við vorum
loksins orðnar góðar.“
Fyrirmyndir í handboltanum. „Fyrir-
myndin mín í handboltanum er fyrrum
Valsarinn Anna Úrsúla. Það að hafa
fengið að æfa með henni í fyrra sýndi
mér hvað hún er frábær karakter bæði
utan sem innan vallar.“
Hvað þarf til að ná langt í handbolta
eða íþróttum almennt? „Til þess að ná
langt í handbolta þarf að æfa sig auka-
lega og gefa alltaf 100% í allar æfingar,
einnig er gríðalega mikilvægt að sýna
metnað og setja sér markmið bæði lítil
og stór. Það sem ég þarf að bæta hjá mér
er styrkur ég er ekki alveg nógu sterk lík-
amlega.“
Hverjir eru framtíðardraumar þínir?
„Eftir 10 ár ætla ég að vona að ég verði
ennþá á fullu í handboltanum. Ég mun
einnig verða vel menntuð og komin með
fjölskyldu.“
Frægur Valsari í fjölskyldunni? „Eng-
inn frægur Valsari í minni fjölskyldu svo
að ég býst við því að ég sé frægust hing-
að til. Pabbi minn var hins vegar besti
íþróttamaðurinn í fjölskyldunni, hann
æfði handbolta og fótbolta og spilaði fyr-
ir yngri landsliðin í báðum greinum.“
Hvaða hvatningu og stuðning hefur þú
fengið frá foreldrum þínum og fjöl-
skyldu í sambandi við handboltann?
„Ég fæ mikinn stuðning frá foreldrum
mínum og systur, þau mæta á alla leiki
sem þau komast á og yfirleitt verður
mamma hás daginn eftir. Stuðningur for-
eldra er gífurlega mikilvægur að mínu
mati. Allir ættu að hafa einhvern að til
þess að styðja við bakið á sér því að
hvatning er svo mikilvæg.“
Hvað finnst þér mikilvægtast að gera
hjá Val til að efla starfið í yngri flokk-
um? „Mér þykir mikilvægt að yngri
krakkar hafi góða þjálfara sem gefur
þeim góðan grunn og metnað, hann verð-
ur einnig að vilja að krakkar nái langt í
greininni sem þau æfa.“
Hvernig er aðstaðan á Hlíðarenda til
að æfa handbolta? „Mér þykir aðstaðan
mjög góð, flottir salir bæði handboltasal-
ir og lyftingarsalurinn.“
Hvað finnst þér að Valur geti gert til
að stuðla að jafnrétti í íþróttum?
„Mikilvægt er að stelpur og strákar hafi
jafn góða þjálfara og jafn marga æfinga-
tíma í viku.“
Hver stofnaði Val og hvenær? „Friðrik
Friðriksson, 11. maí 1911.“
Hver eru þín einkunnarorð (mottó)?
Komdu fram við aðra eins og þú vilt að
aðrir komi fram við þig.“
Komdu fram við
aðra eins og þú
vilt að aðrir komi
fram við þig
Margrét Vignisdóttir er 17 ára og
leikur handbolta með 3. flokki