Valsblaðið - 01.05.2014, Page 40
40 Valsblaðið 2014
Meistaraflokkur kvenna
Þór Hinriksson og Ólafur Brynjólfsson
hafa tekið við meistaraflokki kvenna. Þór
tók við þjálfun liðsins um mitt sumar og
mun halda áfram þeirri uppbyggingu
sem er á Hlíðarenda. Ólafur hóf meist-
araflokksferil sinn með Val árið 1993, þá
einmitt með Sigurbirni Hreiðarssyni og
fleiri „gömlum“ kempum. Ólafur lék alls
24 leiki með Val, en á alls 65 meistara-
flokksleiki að baki. Árið 2004 hóf Ólafur
sinn þjálfaraferil einmitt með meistara-
flokk kvenna hjá Val þar sem hann að-
stoðaði Elísabetu Gunnarsdóttur (Betu).
Því má sannarlega segja að Ólafur sé að
snúa heim.
2. flokkur karla
Salih Heimir Porcha tekur við hinum
fjölmenna 2. flokki karla. Hann er reynd-
ur þjálfari sem lék einnig með Val á
árum áður og hampaði m.a. bikarmeist-
aratitli með liðinu árið 1992. Honum til
aðstoðar verður Þór Steinar. „Ég bind
miklar vonir við 2 flokk karla. Ég mun
gera mitt besta til að ala upp leikmenn
sem taka við keflinu í meistaraflokki
karla á næstu árum.“
2. flokkur kvenna
Knattspyrnudeild Vals og Knattspyrnu-
deild Þróttar hafa undirritað samstarfs-
samning til eins árs um að tefla fram
sameiginlegu liði í 2. flokki kvenna.
Sameiginlegt lið mun æfa saman, ásamt
því að taka þátt í Reykjavíkurmóti, Ís-
landsmóti og bikarkeppni KSÍ. Það er
von beggja félaga að samstarfið muni
verða farsælt. Það var áhersla lögð á að
ráða óháðan þjálfara og hafa félögin ráð-
meistaraflokks karla í knattspyrnu ásamt
Sigurbirni Hreiðarssyni, fyrrverandi fyr-
irliði liðsins. Ólafur hefur verið afar sig-
ursæll þjálfari sem hefur hampað Ís-
landsmeistaratitli þrisvar sinnum m.a.
með Val árið 1987. Hann hefur einnig
verið landsliðsþjálfari Íslands og gaf
mörgum af núverandi leikmönnum sín
fyrstu tækifæri með A- landsliði Íslands.
Sigurbjörn Hreiðarsson þarf ekki að
kynna fyrir Valsmönnum enda lifandi
goðsögn að Hlíðarenda. Sigurbjörn lék
yfir 300 leiki með Val og varð fyrst bik-
armeistari með liðinu árið 1992 og svo
aftur 2005 og Íslandsmeistari árið 2007.
Sigurbjörn þjálfaði með Ólafi Jóhannes-
syni hjá Haukum árið 2012 og tók síðan
alfarið við liðinu 2013 og stýrði liðinu
með ágætisárangri.
Jón Gretar Jónsson , leikmannaráð karla
og meistaraflokksráð karla
Sigurður K.Pálsson , formaður leik-
mannaráðs karla, formaður fjárhags-
ráðs
Davor Puresvic , meistaraflokksráð
kvenna
Stefán Garðarsson , meðstjórnandi
Við göngum inn í nýtt tímabil með bjart-
sýni að vopni og vongóðir um að árangur
náist innan sem utan vallar. Stuðningur
verði góður og að liðin okkar rísi upp og
nái settum markmiðum.
Nýtt fólk, ferskir vindar:
Meistaraflokkur karla
Ólafur Jóhannesson, fyrrverandi lands-
liðsþjálfari, hefur verið ráðinn þjálfari