Valsblaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 44
44 Valsblaðið 2014
Starfið er margt
sem haldið var í Keflavík. Önnur helstu
mót sem hægt er að nefna er Shellmótið
þar sem fjögur lið mættu til leiks. Öll lið-
in stóðu sig vel og fór eitt liðið í bikar-
leik sem endaði með jafntefli. Strákarnir
spiluðu síðan á Íslandsmótinu þar sem A
og C lið fóru upp úr undariðlunum og
enduðu í þriðja og fjórða sæti í lokariðl-
um mótsins. Þessir tveir árgangar sam-
nstanda af hörku duglegum strákum og
nóg af efnivið. Samheldnin er mikil og
því er mikilvægt að félagið haldi vel utan
um þessa stráka.
5. flokkur karla
Þjálfarar flokksins voru Andri Fannar
Stefánsson, Breki Bjarnason og Valdimar
Árnason. Nóg var um að vera hjá 5.
flokknum á árinu, Reykjavíkurmótið
spilaðist allan veturinn og í janúar fóru
þeir á Landsbankamót hjá Breiðabliki.
Svo tók Íslandsmótið við en það voru
fjögur lið sem flokkurinn sendi til leiks í
öll þessi mót. Hápunktur ársins var svo
N1-mótið á Akureyri þar sem strákarnir
stóðu sig frábærlega og má nefna að F-
liðið kom heim með gullið. Einnig var
haldið á Olísmótið á Selfossi á haust-
mánuðum svo það má segja að það hafi
verið nóg að gera innan vallar hjá
flokknum. Utan vallar var einnig fjör en
þær voru þó nokkrar gistinæturnar í Vals-
heimilinu hjá strákunum þar sem var gist
saman og spilað fótbolta og fleira. Flott
tímabil hjá frábærum hópi sem býr yfir
miklum hæfileikum.
Leikmaður flokksins: Benedikt Gunnar
Óskarsson
Mestu framfarir: Bjartur Jörfi Ingvason
Besta ástundun: Logi Sigurjón Fjeld sted
4. flokkur karla
Þjálfarar flokksins voru Aðalsteinn
Sverrisson og Andri Fannar Stefánsson
og í vetur var Þórhallur Valur aðstoðar-
þjálfari en Valdimar Árnason yfir sumar-
tímabilið. Flokkurinn var afar fjölmenn-
var nokkuð jafnt skiptur á milli áranna
2004 og 2005. Strákarnir æfðu þrisvar í
viku fyrir áramót og fjórum sinnum eftir
áramót. Tekið var þátt í fjölmörgum mót-
um og stóðu strákarnir sig heilt yfir mjög
vel. B liðið vann t.a.m mjög öflugt mót
með áhuganum vaxa hjá strákunum en
skráning og mæting jókst út allt tímabilið.
6. flokkur karla
Í september 2013 byrjuðu rúmlega 40
drengir tímabilið hjá 6 flokki. Hópurinn
Það fer að hlýna aftur …
Síðasta sumar var ekki sérstaklega heitt á Íslandi og það
sama átti við á Hlíðarenda, við vitum það flest. Það kom
sólarglæta í upphafi Pepsi-deildarinnar hjá meistaraflokki
karla, reyndar svo mikil að hún blindaði KR-inga í Laug-
ardalnum eins og ógleymanlegt er. Hins vegar dró strax
fyrir sól í næsta leik gegn Keflavík.
Óstöðugleiki einkenndi leiki karlaliðsins, sigurleik
fylgdi ávallt jafntefli eða tap. Það var ekki fyrr en í kring-
um Verslunarmannahelgina að tveir sigurleikir í röð náð-
ust (í Keflavík 1-2, 27. júlí og gegn Fjölni 4-3, 6. ágúst)
Hinir tveir sigurleikirnir í röð komu svo í lok ágúst.
Það er ótrúlegt að allt fram að síðasta leik hafi verið
raunverulegur möguleiki á að ná fjórða sætinu sem gaf
Evrópusætið eftirsótta. Við sem fylgdumst með í sumar vitum niðurstöðuna, 5.
sæti annað árið í röð.
Meistaraflokkur kvenna átti vonandi algjört undantekningar ár, sæti nr. 7 takk
fyrir. Þetta er sögulega dapur árangur því leita þarf aftur til ársins 2000 til að finna
Valskonur ekki meðal fjögurra efstu liða. Árið 2000 lendir Valur í 5. sæti. Öll önn-
ur ár frá 1992 hefur meistaraflokkur kvenna verið í topp fjórum í efstu deild
kvenna. Við vitum að það er uppbyggingarstarf í gangi og vonandi er það á réttri
leið. Stuðningur við ungt kvennalið okkar skiptir máli næsta sumar.
Það er trú mín að ákveðin kaflaskil séu hjá meistaraflokki karla með tilkomu
nýrra þjálfara. Ef það er einhver maður sem getur komið með enn meiri Valsanda
inn í hópinn er það Sigurbjörn Hreiðarsson, leikjahæsti leikmaður Vals frá upp-
hafi. Flestir stuðningsmenn vita alveg hvað „Bjössi“ stendur fyrir, það verður ekk-
ert gefið eftir á vellinum næsta sumar.
Ólafur Jóhannesson hefur gríðarlega reynslu af þjálfun og fleiri enn einn Ís-
landsmeistaratitil. Því er afskaplega hæft teymi komið til starfa. Við megum held-
ur ekki gleyma endurkomu Matthíasar Guðmundssonar, eða bara Matta eins og
stuðningsmenn segja. Síðastur, en ekki sístur, Salih Heimir Porca sem tekur 2.
flokk Vals, gríðarlega flottur þjálfari en ekki síður frábær maður.
Stuðningurinn frá okkur skiptir gríðarlegu máli og getur skipt sköpum við að
gera Vodafone-völlinn aftur að þeirri gryfju sem við viljum.
Það fer að hlýna aftur að Hlíðarenda næsta sumar, ég er sannfærður um það,
tökum öll þátt í því.
Ragnar Vignir
Ragnar Vignir